19.03.1936
Sameinað þing: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (3101)

75. mál, þingfréttir í útvarpi

*Jónas Jónsson:

Hv. 1. þm. Reykv. hefir nú játað það út af aðalumræðuefni þessa dags, að forsetar Alþingis hefðu vald til þess að ráða mann til þess að flytja þingfréttir í útvarpið, vegna þess að útvarpsráðið hefði a. m. k. tvisvar óskað eftir því, að forsetar gerðu það. Þess vegna stendur þeim það opið, og ef þeir hafa ekki skipt sér af því, er það vegna þess, að þeir eru ánægðir með þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið. Þess vegna er gersamlega tilgangslaust að vera með þessa þáltill., og ég mun alls ekki greiða atkv. um hana, af því að ég álít, að hún sé út í hött. Hún hefir enga þýðingu aðra en þá, að koma af stað umr., sem einkum hljóta að verða til þess að sýna, hvað útvarpið er trúverðugt, hvað því er vel stjórnað og hvað vel er starfað frá þess hálfu. Og það, að forsetar eru ekki búnir eða hafa dregið að taka formlega afstöðu til þessa máls, er af því, að þeir eru ánægðir með, hvernig útvarpið hefir séð fyrir því.

Þá sagði hv. þm., sem ég skoða sem óverðskuldað kompliment til mín, að þetta góða útvarp væri mitt egg. Þó að ég hafi stutt útvarpið og átt þátt í því með samherjum mínum, að það hefir reynzt svona vel, þá vil ég ekki taka allan heiðurinn til mín, en ég er þakklátur hv. 1. þm. Reykv. fyrir að unna mér frekar of góðs hlutar.

Þá var það alveg rétt hjá hv. þm. að játa, að hið fyrra útvarp var ekki aðeins ófullkomið, heldur alveg ómögulegt á annan hátt. Hann veit, að það voru hans nánustu samherjar, sem stóðu að þessu útvarpi, sem bæði átti að vera gróðafyrirtæki og byggt í því skyni að nota það til áróðurs vissri stefnu í landinu. Því fór sem fór, ekki af því, að það væri einkafyrirtæki, heldur af því, hvað það var spillt og ófullkomið. Hv. þm. var ekki betur að sér um núv. útvarp en það, að hann hélt, að stöðin væri ekki nema 5 kw. Hann veit ekki, að hún er 16 kw., og hann veit ekki, að núv. útvarpsráð og útvarpsstjóri hafa beitt sér fyrir því, að útvarpsstöðin verði stækkuð svo, að hún verði 100 sinnum sterkari en íhaldsútvarpið var. — Annars er ræðumennska hv. þm. svo langdregin og leiðinleg í allra annara eyrum en sjálfs hans, að það vill helzt enginn hlusta á hann.

Í sambandi við ræðu hv. 2. þm. Reykv. vil ég benda á eitt ofsóknarmál, sem staðið hefir lengi yfir af hálfu íhaldsins á hendur einum af þeim starfsmönnum útvarpsins, sem lengst og bezt hefir starfað á vegum þess og með réttu hefði átt að njóta fyllsta trausts og viðurkenningar allra fyrir sitt vel unna starf. Hver er svo þessi maður? Enginn annar en einn af hv. þm., Sigurður Einarsson, fréttamaður við útvarpið. Ofsóknirnar á hendur honum sem starfsmanni við útvarpið hafa staðið yfir síðan hann byrjaði sem starfsmaður við útvarpið, látlaust í 4 ár, og einu sinni var ég á fundi, þar sem hv. 1. þm. Reykv. var líka, og hafði þangað verið hóað æsingafólki til þess að lýsa vantrausti á þennan mann; þessum ofsóknum var svo haldið áfram þangað til eftir síðustu kosningar, að íhaldinu var loksins orðið það ljóst, að þessi hamagangur þess hafði enga þýðingu. Það stafaði þó ekki af því, að íhaldið batnaði nokkuð; það var ekki af því, að það sýndi neinn drengskap, heldur af því, að þessir menn skildu þó það, að allur þorri landsmanna vissi, að hér var um pólitíska ofsókn að ræða á hendur þessum manni; þess vegna sáu þeir þann kost vænstan að leggja niður ofsóknirnar um stund. Það, sem gerist svo næst í þessu máli, er það, að síðastl. vor varð ofurlítil verkaskipting á milli Vilhjálms Gíslasonar og Sigurðar Einarssonar, sem ofsóttur hafði verið í 4–5 ár, ekki aðeins án nokkurs tilefnis, heldur af sérstakri rangsleitni, og skal ég síðar færa fram rök fyrir því. Þegar þessi verkaskipting átti sér stað, varð Morgunblaðið bókstaflega snarvitlaust enn á ný. Það var haldinn æsingafundur og núv. prófessor í guðfræði, hv. 1. þm. Reykv., var einn af þeim fremstu á þeim fundi. Að þessu sinni var ekkert hægt að gera frekar en fyrr, og svo þegar líður að næsta hausti, getur íhaldið loks komið því í höfuðið, að þessar ofsóknir hafi enga þýðingu, og í allan yfirstandandi vetur hefir hvorki heyrzt stuna né hósti frá íhaldinu út af þessu máli, og Sigurður Einarsson hefir nú fengið að vinna verk sitt nokkurnveginn óáreittur í 4–5 mánuði.

Þótt ræða hv. 2. þm. Reykv. væri ekki löng, þá gefur hún samt sem áður tilefni til þess að athuga þetta mál dálítið. Það er ómótmælanlegt, að Sigurður Einarsson hefir einhverja þá beztu rödd, sem heyrist í útvarpinu, en auk þess hefir hann annan kost; hann á mjög auðvelt með að taka saman efni í fréttir úr blöðum og skeytum á stuttum tíma og gera þær skemmtilegar, svo að allir vilja hlusta á þær, nema útvaldir heimskingjar, svo að það má hafa þennan fréttaflutning fyrir gáfnapróf, þannig að ef manni leiðist að hlusta á fréttirnar, þá er hann heimskur. Sigurður Einarsson hefir alveg sérstaka náttúrugáfu til að bera í þessum efnum, svo að mér er óhætt að fullyrða, að þó að jafngóðir menn og ég og hv. 1. þm. Reykv. vildum fara að keppa við hann, þá hefðum við ekki, þótt við séum að öðru leyti prýðilegir menn, til að bera þann hæfileika, sem hann hefir í ríkum mæli. Hvað segja nú hv. þm. um það, að þessi maður skuli hafa verið lagður í einelti af einum flokki gersamlega án tilefnis? Andstæðingar þessa manns hafa gert sér allt far um að draga fjöður yfir þessa sérstöku hæfileika og starfshæfni Sigurðar Einarssonar; þeir hafa ofsótt hann eingöngu vegna sérstakrar löngunar til þess að beita þennan mann rangaleitni, því að það er vitanlegt, að þótt þeim hefði tekizt að flæma hann burt frá útvarpinu þá hefði komið óhæfari maður í hans stað. Ég vona því, að sá flokkur, sem á þennan mann, sem ofsóttur hefir verið, gerist ekki ginningarfífl hv. þm. V.-Sk., því að hann hefir tekið þátt í þessum ofsóknum á hendur Sigurði Einarssyni, eftir því sem hann hefir getað, og ástæðan fyrir því, að þessar ofsóknir hafa ekki náð tilætluðum árangri, er blátt áfram sú, að íhaldið hefir ekki getað gert meira en það hefir gert í þessu efni vegna þess, að bæði Framsfl. og Alþfl. hafa síðan 1930 megnað að hrinda þessum ofsóknum af Sigurði Einarssyni.

Þá vil ég víkja nokkuð að því, sem hv. þm. sagði í sambandi við ferðaskrifstofu ríkisins. Hún á að taka til starfa í vor, svo að það sjá allir óvitlausir menn — en náttúrlega ekki hv. 1. þm. Reykv., — að það er langt frá því, að nógur undirbúningur fáist í þessu efni, svo að það verður að teljast mikill skaði fyrir þjóðina, að ekki var þegar í haust ráðinn maður til þess að gegna þessu starfi.

Hv. 1. þm. Reykv., sem álitinn er vera einhver ósannsöglasti maður í opinberum málum hér á landi, en lifir samt á því að kenna guðfræði við Háskóla Íslands, þessi maður heldur því fram, að útvarpsstjórinn eigi að vera þulur eða bókhaldari; þessi hv. þm. gleymir því, að þetta fyrirtæki hefir árlega 100 þús. kr. veltufé og þarf að standa í sambandi við þúsundir innlendra og erlendra manna; þessi hv. þm. heldur, að forstjóri þessarar stóru stofnunar eigi að vera þulur eða bókhaldari. Það er leiðinlegt fyrir háskólann, að hann skuli hafa mann fyrir prófessor, sem getur haldið annari eins fjarstæðu fram, og það má ef til vill segja, að það sé afsökun fyrir þjóðina, þótt hún hafi ekki enn séð háskólanum fyrir viðunanlegu húsnæði, að hann skuli velja slíka menn fyrir prófessora. Það, sem olli því, að Jónas Þorbergsson var valinn til þess að gegna þessu starfi, var það, að hann var hæfur til þess, og það hefir hann sýnt með því að gera útvarpið að því gróðafyrirtæki, sem það er að verða fyrir landið. Eftir að menn höfðu séð afdrif gamla útvarpsins, þá datt þeim ekki í hug, að nýja útvarpið gæti borið sig án stórkostlegs fjárstyrks. Vegur og velgengni útvarpsins er ekki sízt dugnaði og gáfum útvarpsstjórans að þakka, og líka þeim hæfileika hans að velja góða starfsmenn, eins og t. d. Sigurð Einarsson. Sem dæmi um dugnað núv. útvarpsstjóra má nefna það, að honum hefir tekizt að afla útvarpinu tekna svo tugum þúsunda skiptir með auglýsingastarfsemi þeirri, sem rekin hefir verið í útvarpinu. Þetta er aðeins hugkvæmni hans og dugnaði að þakka. — Þar sem hv. 1. þm. Reykv. fór að ráðast á útvarpsatjórann, sem er fjarverandi, vil ég biðja hæstv. forseta um að afsaka, þótt ég taki upp vörn fyrir þennan mann, sem ráðizt er á með ósvífni og ódrengskap.

Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að Jónas Þorbergsson hefði of há laun. Hvað hafði Sigurður Briem fyrrv. póstmeistari í laun? 13000–l4000 kr. Hvað hafði Gísli Ólafson landssímastjóri? 12–l4 þús. kr. Stóðu þessir menn betur í sínum stöðum en útvarpsstjórinn? Tók skipulagið á póstmálunum miklum framförum undir stjórn Sigurðar Briems? Póstmálin voru undir hans forustu í 30 ár og standa eftir þennan tíma eins mikið í stað og hugsazt getur. Menn ættu að bera saman glæsilega starfsemi útvarpsins og eymd og volæði pósthússins undir stjórn fyrrv. póstmeistara. — Í þessu sambandi má benda á Geir vegamálastjóra Zoëga. Hann hefir um 11000 kr. í laun; þar af eru regluleg laun 6000 kr., en bitlingar 5000 kr. fyrir eftirlit með vatnsveitumálunum og brunamálum. Það er viðurkennt, að Geir Zoega hefir marga kosti til að bera, þrátt fyrir ýmsa galla, og þess vegna hefir hann verið látinn halda þessum bitlingum. — Það er ef til vill rétt að taka það fram að gefnu tilefni, að árið 1922–1923 lét Geir Zoëga leggja niður landssmiðjuna, ettir að hann var orðinn hluthafi í „Hamri“. Mér þætti gaman að vita, hvort hv. 1. þm. Reykv. álítur slíkt athæfi heiðarlegra heldur en það, sem hann er að áfella vissan mann fyrir að hafa gert. Hv. þm. áfellir Jónas Þorbergsson fyrir að hafa notað bíla; hv. þm. gætir þess ekki, að útvarpið þarf á bíl að halda vegna starfsmannanna. Hvað sagði íhaldið um bílanotkun Gísla Ólafsonar? Það minntist ekkert á, að nokkuð væri athugavert við það; sama er að segja um Geir Zoëga í þessu efni. — Ég vil lýsa því yfir hér með, að ég er til með að taka þetta mál upp að nýju, ef íhaldið langar til, að reiknaður sé út kostnaður við embættisfærslu ýmsra starfsmanna ríkisins, svo að hægt sé að fletta ofan af þeim; mér væri stór ánægja að því, að þetta yrði gert, því að það hefir ekki verið gert nógu rækilega enn. — Ég get ennfremur bent á það, þegar hv. 1. þm. Reykv. er að tala um kostnað við rekstur útvarpsins, að núv. landssímastjóri, sem er bæði duglegur og sparsamur starfsmaður, hélt nýlega veizlu með leyfi stj. á kostnað landssímans. Við þessu sagði íhaldið ekkert, vegna þess að þessi maður hefir ekki enn boðið sig fram til þings, svo að það var ekki ástæða til þess að ofsækja hann. Einnig má benda á þann góða mann Jóhann P. Jónsson skipherra; þegar verið var að byggja Óðin í Kaupmannahöfn, þá hélt hann dýrindis „reisugildi“ fyrir hina og þessa kunningja sína, allt á kostnað íslenzka ríkisins.

Þá minntist hv. þm. á jólagjafir. Ég vil minna hann á það, að sá siður hefir verið ríkjandi í þessum bæ meðal allra verzlana, að gefa starfsfólkinu jólagjafir. Í því sambandi má t. d. benda á það, að þegar Mogensen lyfsali var forstjóri áfengisverzlunarinnar, þá gaf hann starfsfólkinu tvær vínflöskur í jólagjöf, og var hann ekki kallaður þjófur fyrir það.

Þá minntist hv. þm. á Miss Johnson; hún er Vestur-Íslendingur, nýkomin hingað til lands, en henni hefir ekki farizt eins við landa okkar vestan hafs eftir að hún kom hingað og hv. 1. þm. Reykv., sem hafði verið gestur hjá þeim, en skrifaði svo níðgrein um þá, þegar hann kom heim. Þessi kona er vel menntuð, og hún er líklega eina íslenzka konan, sem hefir sérstaklega búið sig undir þetta starf, sem hún hefir við útvarpið. Þessir peningar, sem hv. þm. var eitthvað að masa um, voru sendir þessari konu upp í ferðakostnað hennar, svo að hún gæti komizt hingað til að taka við starfinu. Enginn, sem þekkir nokkuð til þess, hvað útvarpið starfar vel, mun telja það eftir, þótt nokkur hundruð krónur hafi verið greiddar í ferðakostnað þessarar konu. — Í þessu sambandi má minnast á það, að þegar Einar Arnórsson var í lögjafnaðarnefnd ásamt Bjarna Jónssyni frá Vogi og Jóh. Jóhannessyni, þá skrapp hann í skemmtiferð suður á Ítalíu á meðan hinir biðu í Danmörku. Þannig var nú heiðarleikinn á þessum bæ. — Í þessu sambandi má einnig nefna Björn Þórðarson lögmann; þegar hann var nýbúinn að taka við þessu embætti, gerði hann reikning upp á 2000 kr. fyrir aukatekjum, sem ráðuneytið vildi ekki ganga inn á, svo að hann varð að borga þessa upphæð sjálfur. Vitanlega datt engum manni í hug að kalla þennan embættismann þjóf fyrir þetta. Þeir, sem hér áttu hlut að máli, voru það miklir drengskaparmenn, að þeir sáu, að hér var ekki ástæðu til ofsókna.

Tökum annað dæmi. Hvað halda hv. þm., að Páll Eggert Ólason hafði fengið fyrir verk sitt um Jón Sigurðsson? Hann fekk 50000 kr. fyrir þetta verk, og það hafði hann svona stórt aðeins til þess að græða á því; um þetta hefir ekkert verið talað, en samt er þetta bók, sem enginn les.

Ég vil svo að endingu vona, að íhaldið með hv. 1. þm. Reykv. í broddi fylkingar skilji nú loksins, að það muni ekkert græða á því að taka þessi mál upp að nýju.