22.04.1936
Neðri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í D-deild Alþingistíðinda. (3121)
130. mál, símaleynd
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Mig furðar ekki lítið á því uppþoti og þeim stóru orðum, sem hér hafa orðið út af þessu máli. Það, sem hér er um að ræða, er að opnuð hafa verið nokkur símanúmer, og menn, sem bundnir eru þagnarskyldu, hafa verið látnir hlusta á þau. Allar fullyrðingar um það, að ríkisstj. geti látið hlusta í síma, eða hafi tekið sér vald til þess, eru algerlega út í loftið og hafa ekki við nein rök að styðjast. Enda hafa þeir hv. þdm., sem báru þetta fram, algerlega fallið frá að færa nokkur rök að því.
Ég get ekkert um það sagt, hvort ástæða hefir verið til þess fyrir lögreglustjóra að fella þennan úrskurð; um það er ég ekki fær að dæma. En ég tel þó víst, eftir því sem ég hefi heyrt, að til þess hafi verið næg ástæða. Að því er landssímastjóra snertir, þá er ekki snefill af heilbrigðri skynsemi í því að ásaka hann fyrir að hafa ekki áfrýjað úrskurði lögreglustjóra. Það hefir ekki við neitt að styðjast. Það liggur í augum uppi, að ef sú leið hefði verið farin af landssímastjóra, að neita að hlýða úrskurðinum og áfrýja honum til hæstaréttar, þá hefði hann með því tekið sér dómsvald, sem honum ekki bar. Það er vitanlegt, að framkvæmd úrskurðarins hefði þá verið ónýtt, þegar öllum var kunnugt um hann. Hitt er þá líka vitanlegt, að ef hæstiréttur hefði ákveðið úrskurðinn réttmætan, þá hefði landssímastjóri verið búinn að ónýta þá sjálfsögðu rannsókn, með því að taka sér það vald, sem honum ekki bar. — Á nú að vera sú sérstaka helgi yfir símanum, sem er ríkisstofnun, að það eigi að vera hægt óhindrað að nota hann til þess að koma fram í gegnum hann ólöglegum athöfnum? Ég vil ekki ætla, að nokkur hv. þdm. telji, að svo skuli vera. Hv. þm. G.-K. beindi þeirri fyrirspurn til hæstv. forsrh. og mín, hvort sömu aðferð hefði verið beitt í vetur í sambandi við bílstjóraverkfallið. Ég heyrði ekki allt, sem hæstv. forsrh. sagði, af því ég þurfti að fara út úr þd., en ég skal segja allt það, sem ég veit um það atriði, því að ég þarf ekki á neinu að liggja eða neitt að fela í því máli. Hv. þm. G.-K. þarf ekki að brýna röddina út af því. Það hefir aldrei, hvorki í sambandi við bílstjóraverkfallið né annað, síðan ég varð ráðherra, verið hlustað í símann, nema um það hafi legið fyrir úrskurður lögreglustjóra. (PHalld: Hefir þá aldrei verið hlustað í símanúmer Morgunblaðsins?). Mér er ekki kunnugt um, hvaða númer hafa verið hlustuð, en ég fullyrði, að það hafa engin símanúmer verið hlustuð án þess að um það hafi legið fyrir úrskurður lögreglustjóra, og þá með ströngum varúðarreglum. Ég hefi nú rætt um þetta við landssímastjóra, og hann hefir sent mér skýrslu, sem staðfestir það, að þetta mun ekki hafa verið framkvæmt á annan hátt. (JakM: Þetta mun víst ekki mega telja misbeiting á framkvæmdavaldinu?). Það er það náttúrlega frá sjónarmiði þeirra, sem hallast að málstað glæpamannanna. (JakM: Hvað var glæpsamlegt í sambandi við bílstjóraverkfallið?). Hvaða órétti voru símanotendur beittir í sambandi við bílstjóraverkfallið? (JakM: Þeir voru beittir órétti með úrskurðinum). Þetta er fleipur eitt og kjaftháttur í þessum hv. þm., og ekkert annað.
Áður en ég kem að skýrslu landssímastjóra vil ég benda á eitt atriði. Því hefir verið haldið fram, að við það að hlusta í síma væri það ekki útilokað að fá vitneskju um eitt eða annað frá öðrum en þeim, sem lægi undir grun, án þess þeir hefðu hugmynd um það, og að í þessu lægi sá mikli munur, sem væri á venjulegri húsrannsókn og því að hlusta í síma. Þessi misskilningur byggist á því, að við húsrannsóknina kæmi ekki annað í ljós en það, sem til heyrir þeim, er grunurinn hvílir á; en það er fjarri því, að svo sé. Setjum svo, að um bréfaskoðun sé að ræða eða húsrannsókn hjá manni, sem liggur undir grun um eitthvert ólöglegt athæfi, þá liggur í augum uppi, að vitneskju er hægt að fá um ýms atriði viðvíkjandi öðrum mönnum en þeim, sem húsrannsókn er gerð hjá. — Þetta er ekki hægt að fyrirbyggja, en öryggið liggur í því, að rannsóknin er ekki látin í hendur annara manna en þeirra, sem eru bundnir trúnaðar- og þagnarskyldu. Og mér er ekki kunnugt um, að sú skylda hafi verið brotin. Ég skal svo leyfa mér að lesa upp þá skýrslu, sem ég fékk frá landssímastjóra.
„Út af frásögn blaðanna um hlerun á símtölum nokkurra númera í Reykjavík, sem lögreglan framkvæmdi um páskana, að undangengnum dómsúrskurði lögreglustjórans í Reykjavík um, að svo skyldi gert, hafa mér borizt megnar kvartanir, og margir símanotendur hafa látið óánægju sína og andúð í ljósi yfir því, að þetta skuli vera liðið. Jafnframt hefi ég orðið var allmikils misskilnings á ýmsum atriðum hér að lútandi, eins og t. d. því, að í símastöðinni nýju muni hvenær sem er vera „hægt á einfaldan hátt að hlusta á öll símtöl, sem fram fara í bænum“, eins og stóð í einu dagblaðinu í gær. Þetta er helber misskilningur.
Þegar lögreglustjóri kom til mín hinn 8. þ. m. og spurðist fyrir um þetta, tjáði ég eða bæjarsímastjóri honum, að til þess að hlera símtöl yrði að setja upp talsverðan útbúnað, og hann því meiri, sem númerin væru fleiri, sem hlera skyldi. Þetta væri og með öllu óleyfilegt og lægi hin strangasta hegning við, og kæmi því ekki til mála, að slíkt væri gert, nema landssíminn væri skyldaður til þess með dómsúrskurði, enda virtist lögreglustjóra það ljóst.
Úrskurðurinn, uppkveðinn sama dag, hljóðar svo (með úrfellingu númeranna, sem tiltekin voru):
Ár 1936, miðvikudaginn 8. apríl, var lögregluréttur Reykjavíkur settur á lögreglustöðinni í Pósthússtræti og haldinn í forföllum lögreglustjóra af fulltrúa hans Ragnari Jónssyni með undirrituðum vottum.
Fyrir var tekið:
að kveða upp úrskurð um sérstaka rannsókn í tilfelli af ólöglegri áfengissölu í bænum.
Lögreglan hefir fengið rökstuddan grun um, að ólögleg áfengissala ætti sér stað hjá ýmsum bifreiðastöðvum hér í bænum og einnig hjá ýmsum einstaklingum. Hefir verið gert sérstakt orð á því, að áfengi væri pantað gegnum síma. Til að staðreyna. hvort þetta eigi sér stað eða ekki, þykir nauðsyn bera til að hlusta
á samtöl þau, er fram fara við símanúmer hinna grunuðu bifreiðastöðva og manna.
Af framangreindum ástæðum úrskurðast: Símtöl þau, er fara fram að og frá ofan
töldum símanúmerum, skulu hlustuð og efni þeirra látið réttinum í té til afnota í áðurgreindum tilgangi. Ber símastjórninni að framkvæma þessa ráðstöfun.
(Sign.) Ragnar Jónsson ftr. Úrskurðurinn var lesinn í réttinum í heyranda hljóði.
Rétti slitið.
( Sign.) Ragnar Jónsson ftr. Það þarf naumast að taka það fram, að hlerunarútbúnaðurinn var allur tekinn sundur og burtu strax að hleruninni lokinni. Lögregluþjónarnir, sem framkvæmdu hlerunina, voru og látnir undirrita þagnarheit símamanna, svo tryggt væri, að ekkert bærist út af símtölum þessara númera, annað en það, sem rétturinn kynni að krefjast skýrt frá viðvíkjandi afbrotunum sjálfum.
Með því að mér var ljóst, að hér mátti heita um nýmæli að ræða, sem gat skapað fordæmi, þá reit ég lögreglustjóranum í Reykjavík strax eftir símtalið bréf, dags. 11. þ. m., svo hljóðandi:
„Út af samtali því, er fram fór milli yðar og vor hinn 8. þ. m., um hlerun símasamtala til afnota fyrir lögregluna, leyfi ég mér hér með að láta í ljós eftirfarandi skýringar og álit, ef það mætti vera til leiðbeiningar framvegis, er til greina gæti komið að fella dómsúrskurð þar að lútandi.
Tilgangur stofnunar talsímasambanda er sá, að menn geti, þótt fjarlægir séu, talazt við svo sem þeir sætu að samræðu innan fjögurra veggja. Er það eitt af aðalhlutverkum símastjórnanna, að vernda símanotendur frá því, að aðrir geti orðið áskynja um það, sem sagt er í síma. Starfsmenn símastofnana eru því bundnir hinu strangasta þagnarheiti, og varða brot á því hinni ströngustu hegningu og óhjákvæmilegum stöðumissi.
Sérhverjar upplýsingar um símtöl — einnig um það, hvort símtöl hafi farið fram. — eru því stranglega bannaðar, og það er stolt og heiður hverrar símastjórnar að gæta þess sem örugglegast, að leynd símtalanna sé fullkomin.
Þannig fengust t. d. hjá símanum í Ameríku mjög litlar upplýsingar um símtöl Hauptmanns í Lindbergsmálinu fræga.
Hér á landi er hlerun símtala ókunn þangað til nú, og lít ég svo á, að henni skuli heldur ekki beitt, nema mikið liggi við fyrir lögregluna, t. d. ef rökstuddur grunur liggur á um:
1. landráðastarfsemi,
2. glæpsamlegt athæfi eða undirbúning slíks,
3. víðtæka lögreglubrota-starfsemi, sem verði að telja verulega hættulega og skaðlega þjóðinni.
Hinsvegar lít ég svo á, að ekki beri að beita hlerun símtala, þótt grunur liggi á um einstök lögreglubrot.
Að sjálfsögðu og undantekningarlaust má hlerun símtala ekki fara fram öðruvísi en eftir undangengnum dómsúrskurði þar um.
(Sign.) G. J. Hlíðdal.“
Það er vitanlega skylda landssímastjórnarinnar að vera á verði um það, að símaleyndin sé sem öruggust, og ég vænti þess eindregið og treysti því, að lögreglustjórar og dómarar landsins beiti ekki frekar hér eftir en hingað til, nema í ýtrustu nauðsyn, þeim rétti, er þeir kunna að hafa til úrskurðunar á hlerun símtala.
Reykjavík, 22. apríl 1936. (Sign.) G. J. Hlíðdal.“
Ég hefi í raun og veru engu við þessa skýrslu landssímastjóra að bæta. Ég er sammála honum um það, að ekki sé vert að grípa til þessara ráða, nema svo sterkur grunur um óleyfilegt athæfi liggi fyrir, að fullkomin ástæða þyki til þess. En matið á því hlýtur að liggja hjá hlutaðeigandi yfirvöldum. Ef þau telja gruninn svo sterkan, að nauðsynlegt sé að grípa til þessara ráða, þá álít ég, að landssímastjóri sé skyldugur að hlýða. Annars gerir hann sig að dómara, og slíkt vald hefir hann ekki rétt til að taka sér. — Ef úrskurðinum er áfrýjað til hæstaréttar, þá er hann vitanlega ónýtur. — Ég álít, að landssímastjóri hafi gert rétt í því að láta rannsóknina fara fram, eins og það er rétt, að fylgt sé fram ýtrustu kröfum um varúð, og að rannsóknarmennirnir séu bundnir þagnarheitum.
Hv. 5. þm. Reykv. spurði áðan, og virtist beina þeirri spurningu til mín, hvaða takmörk núv. stjórn viðurkenndi um notkun á símanum til þess að hlusta eða njósna. Ég vil í því efni vísa til skýrslu landssímastjóra, og hygg ég, að það megi svara þessu með því, sem hann segir í bréfinu, að þessu eigi ekki að beita nema fyrir liggi úrskurður hlutaðeigandi yfirvalds. Og að slíkan úrskurð eigi ekki að kveða upp af lögreglustjóra, nema svo sterkar líkur séu um saknæmt athæfi, að hann telji fulla ástæðu að taka til þessa ráðs.