22.04.1936
Neðri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í D-deild Alþingistíðinda. (3131)

130. mál, símaleynd

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég sé nú ekki, þó að hv. 3. þm. Reykv. segi, að við tveir ráðh. höfum staðið hér sem meintir afbrotamenn, að sakir þær og fullyrðingar, sem hann og hv. 5. þm. Reykv. hafa látið falla, hafi sannað þá sekt, sem þeir vilja. Því sannleikurinn er sá, að ræður þeirra hafa verið fleipur eitt og fullyrðingar. Það eru fullkomin ósannindi, — og ég hefi ekki stutt að slíkum fullyrðingum með nokkrum minnstu líkum í þessum umr. Hv. 5. þm. Reykv., sem er borgarstjóri, sagði í ræðu sinni áðan, að hann hefði orðið var við, að hlustað hafi verið í sinn síma. Virtist mér hann beina þeirri fyrirspurn til mín, hvort það hafi verið eftir mínum fyrirmælum. Mér er algerlega ókunnugt um það, í hvaða númer var hlustað. En ég verð að segja, að það hefir þá tekizt klaufalega, ef hv. þm. hefir heyrt það, því að Ég hélt, að þetta væri framkvæmt þannig, að þeir vissu ekki af, sem hlustað væri hjá. Ég vísa þess vegna á bug öllum þessum fullyrðingum um það, að ríkisstj. sé að nota símann til þess að njósna um pólitíska andstæðinga. Það er ekkert annað en hugarburður og firrur og fásinna, sem sjúkir menn eru að búa sér til. (Rödd: Í hvaða tilgangi var látið hlusta í verkfallinu?). Þessu þarf ég engu að svara. Það er lögreglustj. í bænum, sem verður að ákveða, hvort hann telur ástandið þannig, að það þurfi, til að halda uppi röð og reglu og friði í bænum og öryggi manna, að taka til slíkra ráðstafana. Mér dettur ekki í hug, að þurft hafi að óttast neinar óspektir af borgarstjóranum í Rvík eða neinum þm. En allt þetta málæði er í raun og veru ekkeri annað en tilraun til að setja þetta mál fram öðruvísi en það liggur fyrir. Það, sem hér er um að ræða, er þetta: Á að leyfa afbrotamönnum að nota þessa stofnun til sinnar afbrotastarfsemi, án þess að notaður sé þessi möguleiki til að hefta slíkar aðgerðir, — sá möguleiki að hlusta, þegar svo miklar sannanir liggja fyrir, að hlutaðeigendur — —? (Rödd: Það má líka taka af þeim símann). Það mun þykja nokkuð hart að gera það án þess að úrskurður liggi fyrir. Og málið upplýsist ekki, þó að síminn sé tekinn.

Hv. þm. sagði einnig, að bréf landssímastjóra væri næsta einkennilegt plagg, sem hann skildi ekki, hvers vegna væri lesið upp, en liti svo út sem væri verið að koma lögreglustjóra í skilning um, hvað eru lög. Þetta er mesti misskilningur. Það, sem bréfið hefir inni að halda, er ekkert annað en upplýsingar frá landssímastj. um það, hversu þessu verður fyrir komið og undir hvaða kringumstæðum. En eins og sést á bréfinu, ber að skoða þar ýmislegt sem hans skoðun í þessu efni. En það er hlutaðeigandi valdsmaður, sem kveður á í þessu efni; það getur landssímastjóri ekki gert. Og ég verð að endurtaka það, sem ég sagði, að ég er sammála landssímastjóra um það, að óheppilegt sé, að lengra sé gengið í þessu en eins og hann benti til, sem sé að þetta sé gert, ef rökstuddur grunur liggi fyrir um landráðastarfsemi, glæpsamlegt athæfi eða undirbúning að víðtækri lögbrotastarfsemi, sem verði að teljast verulega hættuleg. En í því sambandi vil ég taka það fram, — og landssímastjóri er staddur hér og má leiðrétta, ef ég fer rangt með, — að ég spurði, hvort hann teldi þetta umfangsmikið mál, og hvaða opnun símanúmera hefði verið gerð. Eftir upplýsingum frá lögreglustjóra taldi hann svo vera.

Ég lýsi ánægju minni yfir því, að þeir, sem mest hafa andmælt þessu, hafa ekki treyst sér til að neita, að rétt geti verið að nota símann á þennan hátt í vissum kringumstæðum. Það er það, sem um er að ræða í þessu sambandi. En það dettur engum lifandi manni í hug að mæla því bót, að leynd símasamtala sé rofin á annan veg en þann, að hlutaðeigandi dómari meti ástæður og felli úrskurð þar um. Aðrar og þrengri takmarkanir er ekki hægt að setja, án þess að taka þann rétt dómarans, sem honum ber að lögum, — nema þá að breyta l. Mér þykir vel, að yfirlýsing þessi liggur fyrir, því að þá er ekki hægt að deila á öðrum vettvangi en þeim, hvort í því gefna tilfelli, sem er fyrir hendi, hafi verið ástæða til að fella slíkan úrskurð.