25.04.1936
Neðri deild: 56. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í D-deild Alþingistíðinda. (3139)

130. mál, símaleynd

Forseti (JörB):

Hv. 6. þm. Reykv. hefir algerlega misskilið mig áðan. Það er fjarri því, að ég hafi ætlað að amast við því, að málið væri tekið til þinglegrar meðferðar og rætt. En það er ekki venja, að annað heldur en smávægilegar aths. og fyrirspurnir sé rætt utan dagskrár. Þess vegna vék ég að þessu áðan, því ég sé ekki, hvað þessar umr. geta orðið miklar, ef þær eru látnar íhlutunarlausar. En ég vil skjóta því til hv. 6. þm. Reykv., að á dagskránni í dag er nú það mál til umr., sem þetta mál var fyrst sett í samband við hér á Alþingi (frv. um ráðstafanir til varnar því, að skipum sé leiðbeint við ólöglegar fiskveiðar), og gefst þá tækifæri til að víkja að þessu máli nánar. En þyki það ekki nóg, þá vil ég benda hv. þm. á það, að þá væri réttast að bera þetta mál upp sem fyrirspurn til ríkisstj. eða sem þáltill. — Þessu vil ég skjóta til hv. 6. þm. Reykv., til að leiðrétta misskilning hans á þeim ummælum mínum, sem ég viðhafði áðan í þessu sambandi.