29.04.1936
Neðri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (3146)
130. mál, símaleynd
*Flm. (Jakob Möller):
Tilefni þess, að þessi till. er fram komin, er svo þekkt og svo mikið rætt, að ég þarf ekki að vera margorður um það. Ég tel, að aðalhlutverk framsögumanns að þessu sinni sé það, að gera grein fyrir nauðsyn þess, að mál þetta sé svo rannsakað, að öll kurl komi til grafar.
Ég sagði hér um daginn, að framkvæmd hlustunar í bæjarsíma Reykjavíkur og Hafnarfjarðar mætti teljast áþekk því, að þjófur hefði framið innbrot í hús að öllum íbúum þess í fasta svefni, og við nánari athugun bygg ég, að flestir muni sannfærast um, að þetta er rétt samlíking. Þegar síminn er notaður á þann hátt, að hlustað er í hann að öllum óvörum, jafnvel þótt ekki sé hlustað nema á ákveðin númer, þá bitnar það engu síður á þeim, sem alsaklausir eru og ekki eru grunaðir um nokkurt ólöglegt athæfi, ef þeir þurfa að tala við þau númer, sem hlustuð eru, heldur en á þeim, sem grunaðir eru um ólöglegar framkvæmdir. Það er óhafandi ástand, að borgararnir geti sí og æ átt það yfir höfði sér, að slík misnotkun á símanum geti verið framkvæmd út af hve lítilfjörlegu atriði sem er, aðeins ef stjórnarvöldin telja, að þess þurfi, eða þeim þóknast það.
Það er hlutverk símans að greiða fyrir viðskiptum manna og auðvelda þau án tillits til fjarlægðar. Ef leynd símans er ekki örugg, þá er hann óhæfur til þessa hlutverks, og færist þá bæði viðskiptaleg þróun þjóðarinnar og þjóðlífið í heild áratugi aftur í tímann, og þetta gildir jafnt um símtöl og símskeyti, og af þessu leiðir það, að með njósnum um símtöl og símskeyti er starfi þessarar stofnunar stefnt í beinan voða. Ef menn vita það, að leynd símans má ekki treysta og búast má við, að allskonar njósnir séu fyrirskipaðar í sambandi við þessi tæki, þá hætta menn að nota símann og stofnunin bíður af því svo mikið tjón, að spursmál er, hvort hún getur staðizt fjárhagslega.
Til símans er þannig stofnað, að þeir, sem nota hann, eru í raun og veru eigendur hans. Hann hefir verið borgaður af notendum og verður að haldast uppi af áframhaldandi notkun, og það er auðsætt, að gagnvart þessari stofnun er slík framkvæmd stjórnarvalda algerlega óhæf, nema ýtrasta nauðsyn krefji, að þvert ofan í það traust, sem menn hafa til leyndar símans, sé ráðizt að þeim óvörum og látið hlusta á samtöl þeirra, og það ef til vill af þeim aðiljum, sem þeir sízt vilja. Það er líka auðsætt, að löggjafarvaldinu hefir þegar í upphafi verið þetta ljóst, því að í sambandi við uppljóstranir símamanna á því, sem þeir heyra af símasamtölum, er ákveðin svo þung refsing, að leita verður til glæpaframkvæmda til þess að finna svipuð ákvæði í löggjöfinni. — En það er líka önnur hlið á þessu máli. Þessi hlið, sem ég nú hefi lýst, er ópólitísk og snýr að stofnuninni sjálfri og viðskiptamönnum hennar, og það er rík ástæða til þess að taka tillit til þessarar hliðar. En það er engu síður rík ástæða til þess að taka tillit til annarar hliðar málsins, og sú hliðin er pólitísk.
Hæstv. ríkisstj. hefir reynt að skjóta sér bak við lögregluvaldið. Hún hefir reynt að afsaka þær framkvæmdir, sem hér hafa verið gerðar á hlustun í bæjarsímann, með því að segja, að þær hafi verið samkv. fyrirmælum lögreglustjórans í Reykjavík og án tilhlutunar ríkisstj. En hvað sem því líður, að þetta hafi á þann hátt komið til kasta ríkisstj., þá ber ríkisstjórnin, sem verndari þessarar opinberu stofnunar, ábyrgð á þessu, og í öllum lýðfrjálsum löndum væru ríkisstjórnir látnar í slíkum málum standa reikningsskil fyrir þinginu. Þetta hygg ég ekki, að ég þurfi að rökstyðja. Það mun öllum hv. þdm. vera fullkunnugt. En af því að hæstv. ríkisstj. telur sér þetta með öllu óviðkomandi og að lögreglustjóri megi halda þessu öllu leyndu, hefir það leitt, að Alþ. hefir ekki fengið upplýsingar um það, í hverju skyni leynd símans hefir verið rofin eða hve víðtækar þessar njósnir hafa verið. Og þá er ekki annað eftir en að bera fram slíka till., eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir, að þingið geri í slíkum tilfellum — samkvæmt 34. gr. stjskr. — og það er að skipa slíka nefnd, sem hafi fullan rétt til að krefjast þess af öllum hlutaðeigandi embættismönnum, að þeir láti í té allar þær skýrslur, sem nefndin þarf til þess að upplýsa málið.
Í sambandi við þetta er rétt að vekja athygli á því, að með slíkum aðgerðum sem símanjósnum þessum er öllu persónufrelsi í landinu stefnt í hættu. Beint framhald af því, að þannig sé hlerað á samtöl í símann, er, að sett sé á almenn símskeytaskoðun, og sannleikurinn er sá, að það má vel vera, að hér sé komin á allsherjar símskeytaskoðun, þótt ekki sé um það vitað. Það var fullkomin tilviljun, að upp komst um hlustanirnar í vetur. Þeim hefir getað haldið áfram án þess að vitnazt hafi. Hlustanirnar í apríl í sambandi við vínsöluna hlutu að komast upp við frekari rannsókn málsins. En með þessu er sýnt, að slíkar hlustanir og aðrar svipaðar njósnir í sambandi við talsímann og ritsímann er hægt að framkvæma án þess að almenningur fái að vita um það fyrr en seint og síðar meir. Það má líka jafnvel segja, að fyrir liggi rökstuddur grunur um, að víðtækari símanjósnir hafi verið framkvæmdar heldur en þessi hlerun símtala í bæjarsímann í Reykjavík og Hafnarfirði.
Mér þykir miður, að hæstv. forsrh. hefir orðið að fara út, því að ég ætlaði að beina máli mínu sérstaklega til hans í sambandi við ræðu, sem hann flutti hér á dögunum, þar sem hann lét orð falla á þá leið, að hann teldi, að slík hlerun og símaskeytaskoðun væri í rauninni heimil, lögreglustjóri hefði fullkomna heimild til að láta almenna skeytaskoðun fara fram, og í rauninni féllu orðin þannig, að skilja mátti, að hann teldi, að stj. hefði jafna heimild til þess að láta fara fram almenna símskeytaskoðun eins og hún hefði heimild til að láta fram fara rannsókn á loftskeytum, sem send væru milli skipa í hafi og til skipa af mönnum í landi. En þetta er auðvitað mesta fjarstæða, því að í öðru tilfellinu er bein heimild til, en í hinu tilfellinu er engin heimild, en þungar refsingar lagðar við að ljósta upp leyndarmálum símans. En þó að hæstv. ráðh. kynni að hafa sagt þarna meira en hann meinti, og að hann meinti ekki annað en að slík skeytaskoðun mætti fara fram samkv. lögregluúrskurði á sama hátt og hlerun símtala, þá er auðsætt, að símaviðskipti eru hér ekki síður í hættu fyrir afskiptum ríkisvaldsins heldur en símasamtöl. Og þegar svo stendur á, að stj. getur ekki haft ákveðnari ummæli um það, hvenær til slíkra ráðstafana mætti grípa, heldur en það, að það yrði að vera og ætti að sjálfsögðu að vera á valdi lögreglunnar, hvenær gripið yrði til slíks, þá er augljóst, að notendur þessa tækis verða að sjálfsögðu að ganga út frá, að alltaf kunni að vera hlustað á samtöl þeirra og símaviðskipti þeirra séu að staðaldri undir nákvæmri skoðun, eða m. ö. o., það hefir ekki fengizt annað um þetta frá hæstv. stj. en að slíka njósnarstarfsemi mætti fyrirskipa, hvenær sem stjórnarvöldunum byði svo við að horfa. Að vísu hefir í öðru orðinu verið um það talað, að slíkt mætti ekki framkvæma nema rökstuddur grunur lægi fyrir um alvarlega glæpa- eða landráðastarfsemi, en í hinu orðinn hefir verið sagt, að þetta yrði alveg að vera á valdi lögreglunnar, svo að þessi ummæli um alvarlega glæpa- eða landráðastarfsemi verða í raun og veru ákaflega lítil leiðbeining um það, hvenær þau stjórnarvöld, sem nú eru, telja heimilt, að slíkar ráðstafanir séu gerðar.
Það er auðvitað mesta fjarstæða, að hægt sé að einangra þetta mál við lögregluvaldið, því að sambandið milli lögregluvaldsins og stjórnarvalda landsins er svo náið, að þar er ómögulegt að greina á milli. Vil ég í því sambandi benda á, að ef stj. teldi rökstuddan grun liggja fyrir um, að stofna ætti til einhverrar víðtækrar landráðastarfsemi eða uppreisnar gegn stjórnarvöldunum, getur þá nokkrum dottið annað í hug en að stj. sneri sér til lögreglunnar og beinlínis fyrirskipaði henni að rannsaka þetta með öllum þeim meðulum og aðferðum, sem hún hefði yfir að ráða? Í því sambandi vil ég minna á, að þegar bílstjóraverkfallið stóð yfir í vetur, þá létu blöð stj. þannig um málið, að með því væri verið að gera uppreisn gegn ríkisvaldinu. Það er enginn vafi, að þessi ummæli þeirra voru höfð um þetta í þeim ákveðna tilgangi að gera sem eðlilegast, að af hálfu stj. yrðu hafðar frammi hinar öflugustu ráðstafanir til að njósna um allt í sambandi við þetta verkfall, og ég efast ekki um, og ég er sannfærður um, að þær símahleranir, sem þá voru fyrirskipaðar, hafa ekki verið fyrirskipaðar öðruvísi en í beinu samráði við stj., og að öllum líkum beint eftir hennar fyrirskipun, því að ef hún hefði ekki gert það, þá mætti jafnvel telja, að ef virkilega hefði verið alvara á bak við þessi fáránlegu ummæli stjórnarblaðanna — að hér væri um uppreisn að ræða —, þá mætti telja, að það hefði verið skylda hennar að hafa nákæmt eftirlit með því, hvað fram færi í því sambandi. En ef á að vera heimilt að fyrirskipa símanjósnir, hlerun í talsíma og allsherjar skeytaskoðun, ef til vill hvenær sem stj. þykist hafa ástæðu til að gruna um einhverja starfsemi, sem beint væri gegn stj., þá er auðsætt, að það hlýtur að leiða til hinnar frekustu misnotkunar á þessari rannsóknaraðferð, og það endar ekki með neinu öðru en því, að hér skapast alveg sama ástand og nú ríkir í hinum römmustu einræðislöndum, þar sem persónufrelsi og yfirleitt lýðfrelsi er gersamlega að vettugi virt. Þetta verður að stöðva. Það verður að stöðva á að ósi í þessu efni. Það má ekki hleypa stjórnarvöldunum inn á þessa braut. Það verður að taka í taumana þegar í byrjun og krefjast þess, að menn gjaldi varhuga við, að nokkur slík misnotkun eigi sér stað um símann.
Til þess að fá allar upplýsingar um það, hver misnotkun kann að hafa átt sér stað, hvað víðtæk hún er og í hvaða tilefni, höfum við sjálfstæðismenn ekki séð aðra leið en að skipa slíka rannsóknarnefnd, sem farið er fram á í þessari till., og ég þykist hafa rökstutt það nokkuð með þessum orðum mínum, að skipun slíkrar n. er nauðsynleg undir þeim kringumstæðum, sem nú eru fyrir hendi, og alveg sjálfsögð.