29.04.1936
Neðri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (3147)

130. mál, símaleynd

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég skal fara nokkrum orðum um þessa ræðu hv. 3. þm. Reykv., því að þar eru nokkur atriði, sem ég sé ástæðu til að drepa á, þar sem ég get ekki verið honum sammála, eins og ég get yfirleitt ekki verið honum sammála um nauðsyn þessarar till., sem hér liggur fyrir.

Ég vil þá fyrst minnast á það, sem hann sagði í upphafi ræðu sinnar, að hlustun lögreglunnar í þessi símanúmer væri eins og innbrot á næturþeli, en það er nafn, sem andstæðingablöðin hafa valið þessari rannsókn lögreglustjóra. Vitanlega er svona rannsókn, sem lögreglan sér ástæðu til að framkvæma, alltaf framkvæmd að óvörum þeim, sem rannsóknin er gerð hjá. Það er t. d. ekki hægt að rjúfa bréfahelgina án þess að það sé gert að óvörum þeim, sem bréfin senda og setja í póst. Hver sá, sem setur bréf í póst, gerir það í því trausti, að lögreglan gruni hann ekki umi neitt, sem gefi henni ástæðu til að opna bréfið. Þetta gerir hver og einn borgari. En ef hann liggur undir grun um að hafa með því framið ólöglegt athæfi, þá getur lögreglan kveðið upp úrskurð um, að bréfið skuli tekið og opnað, og sá, sem sendir, veit ekkert um það fyrr en eftir á, að bréfið hefir verið tekið. Alveg nákvæmlega á sama hátt er hægt að fara inn á heimili manns hvenær sem er, þó að það sé í fjarveru þessa manns, sem heima á, á þessu heimili, skoða öll þau gögn, sem þar liggja fyrir, lesa bréf frá hverjum sem er, alveg eins þó að þau séu frá saklausum mönnum, sem hafa skrifað um allt önnur málefni en þau, sem verið væri að grennslast eftir. Til alls þessa hefir lögreglan leyfi, og alveg eins getur hún hlustað í síma án þess að gera þeim viðvart, enda næði rannsóknin annars ekki tilgangi sínum. Og það, sem mest er, það er hægt að koma hverjum borgara á óvart og svipta hann því, sem dýrmætast er, sjálfu frelsinu. Þetta vald er dómurunum fengið í hendur, og hjá því verður ekki komizt, svo að hægt sé að framkvæma nauðsynlegar rannsóknir til þess að vernda þá borgara, sem liggja ekki undir grun gegn þeim, sem drýgja lögbrot, svo að hægt sé að halda uppi lögum og reglum í landinu.

Það er því ekki óeðlilegt, þó að þessar rannsóknir séu framkvæmdar að mönnum óvörum, því að það er nauðsynlegt til þess að þær nái tilgangi sínum. Og ég verð að segja, að ég býst ekki við, að í síma hér í bæ tali menn yfirleitt um öllu meiri leyndarmál en þau, sem ritað er um í bréfum manna á milli. Það munu þvert á móti vera meiri persónuleg launungarmál í bréfum en símtölum, og þó getur lögreglan opnað bréfin, eins og ég sagði áðan. Nákvæmlega er það sama að segja um símskeyti, sem menn senda, og þá vitanlega í því trausti, að þau séu ekki tekin og skoðuð af lögreglunni. Þessi skeyti má taka og skoða af lögreglunni og hefir þráfaldlega verið gert á undanförnum árum.

Það er alveg rétt hjá hv. þm., eins og ég hefi drepið á áður, að leyndin er ekki síður nauðsynleg fyrir símskeyti, en í því sambandi fór hann inn á skoðun mína, og skal ég ekki sérstaklega fara inn á það, en eitt vil ég þó benda á í þessu máli, sem er satt að segja einkennilegt í okkar löggjöf — og er dálítið viðfangsefni fyrir þá, sem vilja rannsaka, hversu mikil leynd hvílir yfir skeytunum, — að skv. ákvæðum l. nr. 82 frá 1917, sem mest hefir verið deilt um, og í reglugerð nr. 32 frá 1918 er svo ákveðið, að stj. megi láta skoða eða stöðva öll þau loftskeyti, sem að hennar áliti eru skaðleg eða hættuleg fyrir velferð landsins. Þessi ákvæði í reglugerðinni frá 1918 eru ákaflega teygjanleg, eins og ég hefi bent á áður. En það er annað, sem er ennþá einkennilegra við þessi ákvæði, og það er það, að þótt ekki verði talið, að þessi ákvæði nái til símskeyta, og ég hefi aldrei haldið því fram hér á þingi, að mikill hluti af verzlunarskeytum, sem send eru á milli landanna, eru send sem loftskeyti. T. d. á árinu 1928 voru send 12875 loftskeyti milli landa, og mikið af þeim voru náttúrlega verzlunarskeyti, send þegar ritsíminn var bilaður. Það er sent mikið af loftskeytum til Vestmannaeyja, Flateyjar og Hesteyrar, þegar síminn er bilaður, o. s. frv., og svo höfum við ákvæði, þessi takmarkalausu ákvæði um loftskeyti, sem send hafa verið, svo takmarkalaus, að eftir þeim mætti stj. ganga í skeytin og skoða þau, eins og t. d. í togaramálinu, og það hefir verið fundið að því, að stj. skyldi ekki gera það þegar í stað. Þannig er þessi heimild, ef hún er notuð eins og orð standa til. Hún er þá — og það sést beint á ákvæðum reglugerðarinnar — komin út yfir talsvert mikinn hluta af öðrum skeytum en þessum venjulegu loftskeytum, sem venjulega eru send milli skipa í landhelgi eða milli skipa og lands, af því að loftskeytastöðin er þráfaldlega notuð, þegar ritsíminn er bilaður, og þá koma þau undir ákvæði l., sem gilda um skeyti, sem eru send frá loftskeytastöðinni. Og þá er sú spurning, hvort eigi að gilda annað um skeyti, sem send eru í dag gegnum loftskeytastöðina vegna þess að síminn er bilaður, en þau, sem send eru á morgun í gegnum ritsímann, þegar hann er kominn í lag. Þetta er ekki praktiskt atriði, því að það hefir aldrei verið ástæða til að skoða þessi skeyti eða athuga, hver þessi heimild kann að vera, en ég bendi á þetta fyrir þá, sem eru að tala um þessa heimild, ef hún skyldi vera eins víðtæk og þeir vilja halda fram, en ekki eins víðtæk og ég hefi viljað skoða hana. Hún er þá komin lengra, þessi heimild, og orðin nokkuð víðtækari en flestir vilja kannske kannast við.

Það hefir vitanlega ekki við nein rök að styðjast og er því bara sagt út í bláinn, að settar hafi verið á stofn almennar njósnir í sambandi við þessi tvö mál. Það var getið um það í dagblöðunum í dag — ég hefi ekki vitað um það fyrr — að formanni símanotendafélagsins var fyrir fundinn á sunnudaginn boðið af lögreglustjóra að sjá þá úrskurði, sem lögreglustjóri hefir kveðið upp, til þess að hann gæti séð, á hvaða tiltekin númer hefir verið hlustað, og séð, hvort þar hafi verið beitt hlutdrægni við pólitíska andstæðinga, eins og haldið hefir verið fram, jafnvel í þessari hv. d. Þetta hefir formaðurinn ekki þegið, því að lögreglustjóri setti það skilyrði, að bann segði ekki frá því fyrr en úrskurðunum hefði verið áfrýjað, en því skilyrði skildist mér, að hann hefði ekki viljað fullnægja. En það liggur í hlutarins eðli, og ég efast ekki um, að hver hv. þm. í þessari d. skilji það, að það gæti leitt til vandræða, ef dómsmrh. færi að fyrirskipa dómurum landsins, hvenær þeir eiga að birta úrskurði í máli, sem er undir rannsókn. Ef dómsmrh. færi að gera þetta, þá gæti vel svo farið, þar sem hann getur ekki fylgzt með rannsókninni, og ef hann hefði heimild til að gefa svona fyrirskipanir, sem er vafasamt, þá gæti vel svo farið, að þær fyrirskipanir gereyðilegðu alla rannsókn í málinu. Þessir úrskurðir verða að sjálfsögðu, eins og aðrir úrskurðir, birtir á sínum tíma. Það koma sennilega innan skamms dómar í þessum málum, og þá ganga úrskurðirnir til hæstaréttar með málunum, sem að sjálfsögðu verður áfrýjað, þar sem þau eru svo víðtæk, og þá verða úrskurðirnir birtir á sínum tíma.

Það er ekkert nema getsakir gagnvart lögreglustjóra, að þetta hafi komizt upp af tilviljun. Ég veit ekki betur en að við rannsókn á þeim mönnum, sem talið var að hefðu selt áfengi og þessari rannsóknaraðferð hafði verið beint gegn, hafi verið sagt, að þeim þýddi ekki að þræta, því að þetta hefði verið athugað í gegnum síma. A. m. k. hefi ég skilið þetta þannig, að þeir menn, sem hlustuðu í gegnum símann, hafi verið leiddir fram sem vitni í málinu. Þess vegna hefir hér ekkert verið dulið, enda ekki ástæða til að dylja neitt, vegna þess að úrskurðirnir hljóta að koma fram við áfrýjun á málunum. Þessir úrskurðir eru alls ekki neitt launungarmál, þegar rannsókninni er lokið og málunum verður áfrýjað. Þeir geta ekki orðið neitt launungarmál, vegna þess að úrskurðirnir og dómarnir eru birtir í tíðindum hæstaréttar, en þeir geta hinsvegar verið það meðan á rannsókninni stendur, því að það mundi torvelda eða gera ómögulega rannsóknina, ef þeir væru birtir áður en rannsóknin er búin. (ÓTh: Er bílstjóraverkfallið ekki búið?). Ég er fús til að ræða það mál á eftir við hv. þm., ef hann vill. En fyrst hann er að grípa fram í fyrir mér, þá vil ég spyrja hann að því, hvort hann áliti, þegar ástandið var þannig, að jafnvel yfirvöldum landsins var rænt og þau send hingað til bæjarins, að engin ástæða hafi verið fyrir hina lögreglustjórana að grennslast eftir því, sem gert var. Og þegar ástandið er orðið þannig, að farið er að ræna yfirvöldunum, og það jafnvirðulegu yfirvaldi og því, sem hér var um að ræða, þá er sannarlega ástæða til að fylgjast með málunum, þó að jafnvel málsókn falli niður á eftir. Ég vil nú spyrja hv. þm., hvort persónufrelsið sé minna skert, þar sem lögreglunni er samkv. l. landsins leyft ekki aðeins að fara inn á heimili manna til rannsókna, heldur einnig að taka menn fasta. En hvers vegna á að takmarka meira rétt lögreglunnar til þess að nota símann en til þess að taka menn fasta? Frelsi borgaranna er vitanlega dýrmætt, enda er einmitt verið að vernda það.

Hv. þm. minntist á, að takmörkin milli ríkisvaldsins og dómsvaldsins væru óljós, og þess vegna fælist ekkert öryggi í því að fela dómaranum að skera úr um það, hvenær og fyrir hvaða tegundir lögbrota hlustun skuli leyfð. Það, sem um er deilt, er, hvort minniháttar lögbrot eigi að vera vernduð bak við símaleyndina. Og menn mega vera vissir um, að eigi að vernda lögbrot bak við símann, þá vilja ýmsir einnig fá vernd á bak við loftskeytin. Eigi þannig að halda nokkurskonar friðhelgi yfir vissum tegundum lögbrota, vex vitanlega upp heill hópur lögbrjóta, sem lifir í því skálkaskjóli, sem með því væri skapað. Og hvers vegna ætti líka síminn að vera skjól fyrir vissa tegund lögbrota? Eða hvers vegna ætti síminn að hafa annan rétt en bréf, heimilin og persónufrelsi manna? — En öryggið í þessum efnum fyrir heimilin, bréfin og persónufrelsið er einmitt í því fólgið, að samkv. stjskr. er þetta í höndum dómsvaldsins. Og það er eina öryggið, sem þjóðfélagið getur búið til. Við skulum segja, að skipaður væri maður með lögreglustjóra, sem ætti að segja til, hvenær skyldi hlusta; þá er það ekki annað en það, að kominn er nýr maður, nýr dómari, sem á að segja til um, hvenær símaleynd skuli rofin. Ber því að sama brunni, að menn verða að treysta einum manni til þess að kveða á um það í hvert sinn. Hér er þess vegna komið fram, að raunverulega er ekki um annað en ræða en það, að verið er að láta í ljós, að lögreglustjóri hafi framkvæmt verk sitt með hlutdrægni, og því sé ekki hægt að treysta honum. En þó settur væri með honum umsjónurmaður eða einskonar yfirdómari til þess að skera úr um, hvenær mætti opna símann, þá kemur alveg að því sama, að treysta verður einum einstaklingi, og öryggið yrði því sízt meira en hjá dómaranum, sem á að vera hlutlausastur allra og vernda á þann hátt öryggi réttvísinnar. Ég hefi heldur aldrei heyrt fyrr en nú í þessum umr., að lögreglustjórinn í Rvík væri pólitísk persóna, sem menn gætu ekki treyst til að kveða upp hlutlausan dóm.

Hér hefir verið óskað eftir, að sett væri upp einskonar rannsóknarnefnd til þess að athuga rökin fyrir úrskurði lögreglustjórans. En ég skal henda á, að slíka n. getur aðeins komið til greina að skipa, ef um yfirsjónir er að ræða hjá einstaklingum eða fyrirtækjum, sem heyra undir framkvæmdavaldið, t. d. misfellur í embættisrekstri o. fl. Þá getur verið eðlilegt að skipa rannsóknarnefnd þá, sem stjskr. ræðir um í 34. gr. En hér er að ræða um athöfn, sem dómsvaldið sjálft hefir gert. Og þar sem fyrir liggja þau rök, sem úrskurðurinn er reistur á, ber að láta hann ganga til hæstaréttar, því hann er það eina vald, sem rétt hefir til þess að dæma um, hvort úrskurðurinn er réttur eða ekki. Þessa úrskurðar verður krafizt af sækjanda og verjanda málsins, sem fá aðgang að öllum skjölum, er það snerta, og síðan verður af æðri dómi, hæstarétti, kveðinn upp dómur um það, hvort undirdómurinn hafi verið réttur. Það er sú eina rannsóknarnefnd, sem getur athugað og dæmt um, hvort undirdómurinn sé réttur. Við skulum setja svo, að n. yrði skipuð til þess að athuga úrskurðinn, og að hún gæfi út álit um, að hann væri ekki á rökum reistur. En hvaða þýðingu hefði það, þar sem hún hefir ekkert vald til þess að fella úrskurðinn úr gildi? Og álit þeirrar n. mundi ekkert hafa að segja, þegar hæstiréttur tekur ákvörðun um, hvort úrskurðurinn sé á rökum reistur eða ekki. Þess vegna er það alveg fráleitt um mál, sem algerlega heyrir undir dómsvaldið og fer fyrir æðri dóm, þar sem sækjandi og verjandi hafa aðgang að öllum skjölum, að setja aðra rannsókn á þau verk. Lögregluvaldið er sú hlutlausasta rannsókn, sem hægt er að fá á málinu, og þess vegna er dómsvaldinu bezt treystandi til að skera hlutlaust úr, enda vill svo vel til, að þetta mál gengur til hæstaréttar.

Ef þingið kveður upp úrskurð í þessu máli. er það, með því að draga undir sig dómsvaldið, að teygja sig inn á svið, sem því heyrir ekki til og er því alveg óviðkomandi. — Ég held, að ég hafi þá minnzt á flest atriði úr ræðu hv. 3. þm. Reykv., sem þörf er að svara.