29.04.1936
Neðri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í D-deild Alþingistíðinda. (3162)

130. mál, símaleynd

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég held, að þegar mál er komið á það stig, sem þetta er komið á, þá sé mál til að virða ekki nema í hæfilegum mæli svars ræðu eins og þá, sem hv. þm. G.-K. hefir haldið hér. Ég veit fyrir víst, og sá það enda á hv. flokksmönnum hv. þm., að þeim blöskraði þetta orðbragð, æsing og tilburðir hv. þm. Eða heldur hv. þm., að það geri ósannindi hans að sannleika, þótt hann pati og bendi á mig, standi skjálfandi af æsingu og pati út í loftið? Svona ræður eru neðan við það, sem samboðið er framkomu stjórnmálaflokks á Alþingi, að maður tali nú ekki um formann eins af stjórnmálaflokkum landsins. Hv. þm. stendur upp og segir, að ráðh. hafi verið bornir þungum sökum og ekki svarað. Það væri ákaflega auðvelt fyrir mig að benda á þennan hv. þm. og segja, að hann hefði framið afbrot og væri borinn þungum sökum, sem hann bæri ekki af sér, ef hann virti ekki svars slíkar ásakanir. Ég gæti staðhæft, að hv. þm. hefði gert þetta eða hitt, hann hefði tekið úr ríkissjóði þessa eða hina upphæð, meðan hann var ráðh., eða notað aðstöðu sína í stj. til að aðvara togara með því að fá þeim í hendur dullykla, án þess að hann gæti nokkurntíma afsannað þetta. Svona æsing er ekki sæmandi málflutningi á þingi. Hv. þm. hefði líka getað séð fyrirlitninguna á andliti hv. dm., ef hann hefði litið í kringum sig. Að standa hér á þingi og hrópa, að þetta eða hitt sé lygi, er auðveld röksemdafærsla.

Hv. þm. spurði, um leið og hann veifaði höndunum, pataði í allar áttir og benti á ráðh., hvaða afbrot hefðu verið fram í bílstjóraverkfallinu eða hefði átt að fremja. Ég leyfi mér að spyrja, hvort hann álíti, að engin afbrot hafi verið framin. Í þessu verkfalli voru yfirvöld svo að segja tekin föst. Myndi hv. þm. G.-K. ekki kalla það lögbrot, ef menn sætu fyrir honum fyrir ofan bæinn, þar sem hann ætlaði í bíl austur um fjall, tækju hann með valdi og sendu hann aftur? Á ekki lögreglan að fylgjast með því, ef þessum aðferðum er beitt gegn mönnum? Eða ef stöðva á matvælaflutning til bæjarins? Kemur það lögreglunni ekkert við, þó að svelta eigi bæinn? (Ég sé, að þarna eru nokkur af vitnunum í kollumálinu á pöllunum, og vil biðja hæstv. forseta að þagga niður í þeim).

Ég sný mér þá að ræðu hv. 8. landsk. Hann áleit sig þekkja svo vel lögreglustjórann í Reykjavík, að hann væri viss um, að hann kvæði aldrei upp slíkan úrskurð sem þennan, nema tilknúður af ríkisstj. Það er þokkalegur dómur um lögreglustjórann þetta, að hann kveði upp úrskurði sína, ekki eftir sannfæringu sinni, heldur samkv. áeggjun utanaðkomandi manna. Í öðru orðinu kallar hv. þm. lögreglustjóra heiðursmann, en í hinu orðinu varmenni, sem ekki kveði upp úrskurði eftir sannfæringu sinni, heldur áróðri annara. Þarna er ekki verið að deila á stj., heldur embættismann, sem kallaður er varmenni.

Ég hefi skrifað hjá mér nokkur atriði úr ræðu hv. þm. G.-K. Hann spurði, hve langt væri komið rannsókn á skeytasendingum til togaranna. Ég verð að segja, að ég veit ekki nákvæmlega um þetta, og ekki heldur um það, að hve miklu leyti þessi rannsókn grípur til innlendra manna, sem leiðbeint hafa togurunum.

Því hefir verið haldið fram, að bæjarsíminn í Reykjavík væri sérstaklega öruggur, því að þar geta ekki aðrir en eiðsvarnir menn hlustað á samtöl manna. Lögregluþjónar þeir, sem hlustuðu í símann, voru einmitt slíkir eiðsvarnir menn. Þetta öryggi hafa allir símanotendur, nema þeir, sem liggja undir rökstuddum grun. Þegar húsrannsóknin var framin hjá Ólafi Friðrikssyni um árið, var svo úrskurðað, að skoða skyldi öll bréf, bækur og skjöl, sem kynnu að vera í vörzlum hans, hvort sem það kæmi málinu við eða ekki. Ef því er trúað, að lögreglan hafi þá verið svo örugg, að henni hafi mátt treysta til að þegja um það, sem hún varð þá vísari, hví má þá ekki trúa hinu sama nú? Nú er því haldið fram, að síminn hér sé mjög öruggur. Ég býst þó við, að menn viti, að landssíminn getur, hvenær sem er, komið inn á bæjarlínuna. En starfsfólkið við landssímann er eiðsvarið fólk, sem enginn óttast, að fari að segja frá því, sem það kann að heyra. Hví skyldi ekki lögreglan í Reykjavík vera eins örugg og þetta starfsfólk?

Ég skal svo ekki lengja umr., eftir að þær eru komnar inn á þetta svið. Býst ég frekar við, að ég taki ekki aftur til máls, þar eð bersýnilegt er, að það er þýðingarlaust að ræða málið á þessum grundvelli, því að ef eitthvað er upplýst, þá er staðið upp með taugatitringi og hrópað: Þetta er lygi! Menn eins og hv. þm. G.-K., sem eru þeirrar skoðunar, að almennt sé hlustað á símtöl manna af stjórnarvöldunum, verða að hafa þessa skoðun. Er ekkert við því að gera, og læt ég mér það í léttu rúmi liggja. En ég segi, að þetta séu ósannindi. Þeir geta trúað því, sem vilja, að ég fari rangt með, þegar ég segi, að ég hafi ekki fyrirskipað að kveða upp þennan úrskurð. Hv. þm. G.-K. segir, að þetta sé lygi hjá mér og að ég hafi vitað þetta áður en úrskurðurinn var kveðinn upp. Til hvers er að rökræða við svona menn?

Ef hv. þm. vill endurtaka þau ummæli sín utan þinghelginnar, að ég hafi fyrirskipað að kveða upp þessa úrskurði, og skipað lögreglustjóra að gera það, og ef hann vill endurtaka það þannig, að yfirlýsingar mínar séu lygi, skal ég gera honum þann greiða að stefna honum. Þá er hægt að fá upplýst, hvor okkar fer með rétt mál. Ég býð honum að endurtaka þessi ummæli utan þingsins, svo að hann geti fengið tækifæri til að sanna þau, og svo að ég geti fengið tækifæri til að gera heyrinkunnugt, að hann hafi staðið hér upp, viti sínu fjær, og hrópað: Lygi! — Þetta eru mín síðustu orð til hans, nema eitthvað nýtt komi fram, sem ég verð að svara.