30.03.1936
Sameinað þing: 8. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (3174)

62. mál, raforkuveita frá Soginu

*Pétur Ottesen:

Með þeirri till. til þál., sem hér liggur fyrir til umr., er farið fram á það að rifja upp aftur eða hefja að nýju rannsókn á því, hvernig haganlegast muni verða að hagnýta þá orku, sem til verður við það, að Sogið verður virkjað.

Eins og bent hefir verið á, bæði af hv. 1. flm. till. og af hæstv. atvmrh., þá eru til áætlanir um þetta, sem að vísu ná ekki yfir allt það svæði, sem gert er ráð fyrir, að hægt sé að byrgja upp með raforku frá þessari virkjun, en til þeirra staða, sem mest líkindi eru til, að geti staðið af eigin rammleik straum af þeim kostnaði, sem af því leiðir.

Ég verð að telja það vel til fallið, og er hv. flm. þakklátur fyrir að hafa rifjað þetta mál upp. Þá er áætlanir voru gerðar um þetta, fyrir a. m. k. 4–5 árum, var miðað við þáv. verðlag, og þótt þær áætlanir, sem þá voru gerðar, hafi verið á góðum rökum reistar, þá vita allir, að allmiklar breyt. hafa síðan orðið á verðlagi, en til þess að gera sér hugmynd um þann kostnað, sem verður við hagnýtingu rafmagns á þessum stöðum, þá er nauðsynlegt að geta séð það í réttu ljósi, miðað við núv. verðlag.

Hv. flm. fór nokkrum orðum um þá miklu þýðingu, sem það hefði fyrir okkar kalda land að geta notað nokkuð af afli fossa vorra bæði til upphitunar og ljósa og fleira þess, sem þörf er á. Það er þess vegna eðlilegt, að augu landsmanna séu opin fyrir því og sterk tilhneiging hjá mönnum til þess að nota sér þá miklu aflgjafa, sem fossar landsins eru, og að því er fullur gaumur gefinn að leggja sem beztan og traustastan grundvöll að hagnýtingu þessa mikla afls, svo að það geti orðið að sem beztum notum.

Það hefir verið að því vikið, bæði af hv. flm. og hæstv. ráðh., með hverjum hætti mundi líklegast að hagnýta rafmagnið, þegar um það er að ræða að færa notkun þess út á vítt svið. Allt þangað til tekin var ákvörðun um að hagnýta vatnsafl Sogsins, hafa allar framkvæmdir í þessu efni beinzt að því að nota raforku í smærri stíl og fullnægja notaþörf hvers sveitaheimilis út af fyrir sig, og þar sem um kaupstaði hefir verið að ræða eða kauptún, að fullnægja þörfum þeirra hvers fyrir sig. Hingað til hafa ekki verið gerðar tilraunir til þess að flytja rafmagnið út til hinna dreifðu byggða, eða leiða það til kauptúnanna langa leið í gegnum byggðirnar. Það er fyrst nú, eftir að hafizt er handa um virkjun Sogsins, að þetta er fyrirhugað, og þarf þá að athuga, hvaða leið muni vera heppilegust til að afla fjár til þessara framkvæmda, ef ekki er vafi á, að önnur skilyrði séu fyrir hendi. Í nágrannalöndunum eru bæði einstakir menn og félög, sem eru búnir því fjármagni, að þeir geta tekið slík verk að sér, og þykir þá heppilegt að fela þeim framkvæmdir þeirra, og eru þá sett sérstök lög um þá aðilja, sem þar eiga hlut að máli, hvort sem verkið er unnið fyrir bæi, ríki eða sveitir. Á þessu hafa orðið allstórar framkvæmdir í nágrannalöndunum. Nú er þessu ekki til að dreifa hér. Hér eru hvorki einstaklingar né félög með slíkt fjármagn. Þess vegna er það hér eina leiðin, að ríkissjóður sé aðili og að ríkisvaldið beiti sér fyrir málinu, með tilliti til þess, að mikið erlent lánsfé þarf til framkvæmdanna, og í því að útvega það lánsfé hefir ríkisvaldið miklu sterkari aðstöðu en einstaklingar. Þess vegna –en ekki af því, að það sé að öðru leyti heppilegri lausn á málinu — verður ríkisvaldið að taka að sér forustu þessara framkvæmda. Ég vildi láta það koma fram, að ég verð að fallast á, að ekki séu til möguleikar til framkvæmda í þessu efni á öðrum grundvelli en þessum, Reykjavíkurbær, sem vitanlega er langsterkasti aðilinn hér á landi, hefir ráðizt í þessar framkvæmdir með tilstyrk ríkisins, að því er snertir ábyrgð, en ég get ekki séð, að nokkur annar aðili hér á landi sé þess megnugur, og þess vegna verður að fara þá slóð, að ríkisvaldið beiti sér fyrir þessu.

Um kjördæmi okkar hv. þm. Mýr., þ. e. a. s. Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, má segja það,að þar hafi alla tíð verið vakandi áhugi fyrir því að notfæra sér fossaaflið. Ég held það hafi verið fyrir 1920, sem héraðsstjórnin í Borgarfirði beitti sér fyrir því, að gerð var ýtarleg rannsókn á fossinum í Andakílsá, og var sú rannsókn miðuð við það, að rafmagnið yrði notað fyrir héraðið og auk þess að komið yrði upp nokkrum iðnaði í sambandi við virkjun fossins. Þetta mun vera með þeim fyrstu stóru athugunum, sem gerðar hafa verið hér á landi í þessu efni.

Fossarnir voru þá í eign Englendings, sem keypti þá um 1910 eða 1912 og með framkvæmdir fyrir augum, sem engar urðu. En áhugi Borgfirðinga var svo mikill í þessu máli, að þegar sýnt var, að ekki yrði af framkvæmdum hjá hinum erlenda eiganda fossanna, þá réðust þeir í að kaupa þá, og nú fyrir nokkrum árum hafa kaupsamningar verið fullgerðir, svo Mýra- og Borgarfjarðarsýslur eru nú eigendur þessara fossa, sem áður voru í eign Englendinga.

Eins og hæstv. atvmrh. gat um, þá var samþ. síðastl. vor að fara þess á leit við ríkisstj., að hún léti gera áætlun um virkjun á Andakílsfossum og um leiðslur þaðan, miðað við fulla þörf Akraness og Borgarness og þeirra staða, sem á þeirri leið eru, og virkjuninni hagað svo, að auðvelt væri að færa hana út. Nú hefir hæstv. ráðh. orðið við þessum tilmælum og falið vegamálastjóra að láta framkvæma þetta verk, og ég hygg, að hann hafi fengið Steingrím Jónsson til þess að gera áætlanirnar miðaðar við þetta, sem fram var tekið, og gera samanburð á því, hvort hagkvæmara yrði að ráðast í virkjun þar efra eða að notfæra þá möguleika, sem skapast við Sogsvirkjunina, og þykir mér mjög vænt um, að svo vel hefir verið við brugðið, og vil tjá hæstv. ráðh. þakkir mínar og héraðsbúa fyrir að hafa orðið svo vel við tilmælum okkar, og bíðum við nú eftir því, að fyrir liggi úrskurður rannsóknarinnar um það, hvort hagkvæmara verði fyrir héraðið að ráðast í þessa virkjun, eða fá rafmagnið leitt frá þeirri miklu stöð, sem nú rís við Sogið.

Ég get tekið undir það með hæstv. atvmrh., að það megi heita tómt mál, eins og viðhorf er nú, að tala um slíkar framkvæmdir, hvort sem er heldur þar í héraði eða í Árnessýslu. En svo framarlega sem vænta má, að þjóðin eigi nokkra framtíð fyrir sér, þá er það eitt af stærstu málum hennar að hagnýta sér raforkuna, og rannsóknum er því ekki á glæ kastað eða því, að búið sé í haginn með faglega þekkingu. Það er gott að hafa málið vel undirbúið á hverjum tíma, því þá er enginn efi á því, að þeir möguleikar, sem fyrstir verða til framkvæmda, verða notaðir.

Í Borgarnesi og á Akranesi er ekki til annað rafmagn en það, sem framleitt er með mótorum. Þessar mótorstöðvar eru dýrar í rekstri og endast illa. Þess vegna er það, þar sem svo mikið afl er í fossum þessa lands, neyðarkostur að búa við að kaupa erlenda orku, sem við gætum framleitt á ódýrari hátt, ef hægt væri að kljúfa stofnkostnaðinn, með því að hagnýta okkur þá orku frá jöklum og fjöllum þessa lands, sem fer ónotuð í hafið.

Ég legg áherzlu á, að þessi till., sem hér liggur fyrir, verði samþ., svo að fram komi almennur áhugi Alþ. fyrir því, að sem bezt sé búið í haginn fyrir alla einstaklinga til að geta notað vatnskraftinn, og að þegar batnar með fjárhag, þá standi ekki á því, að rannsókn liggi fyrir á öllum atriðum. Það er rétt, að verðlag getur breytzt, og má gera ráð fyrir, að svo verði, en ef að öllu öðru leyti er búið að þrautrannsaka aðstöðu alla, þá er minnst fyrirhöfnin að breyta kostnaðaráætlun samkv. breyttu verðlagi, t. d. ef búið er að bera saman, hvort hagkvæmara er að ná rafmagninu með smærri virkjunum í héraði eða að leiða frá stórri aflstöð í meiri fjarlægð, því mér skilst, að það afl, sem næst úr Soginu með þeirri aflstöð, sem þar er byggð, eigi að fullnægja þörf alls þessa svæðis.