31.03.1936
Sameinað þing: 9. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í D-deild Alþingistíðinda. (3186)
76. mál, landhelgisgæzla á Faxaflóa og Snæfellsnesi
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Mér skilst, að með þessari þáltill. sé fyrst og fremst lítið á hagsmuni sjómanna við Faxaflóa, enda er full ástæða til þess, að þeirra sé gætt. En af því að mér finnst vanta í þessu máli ýmsar nauðsynlegar upplýsingar fyrir fjvn., sem ég býst við, að taki málið til meðferðar, vil ég fara um það nokkrum orðum.
Það er alveg tvímælalaust, að Faxaflói þarf sérstakrar gæzlu, enda hefir ávallt verið þar varðbátur, auk hinna varðskipanna. En spurningin er sú, hvort unnt sé, að sami bátur annist landhelgis- og veiðarfæragæzlu. Ég dreg mjög í vafa, að það sé unnt. Lóðirnar eru sem kunnugt er einkum eða eingöngu lagðar á djúpmiðum í Jökuldjúpi og úti af Köntum. Landhelgisgæzlan er hinsvegar á allt öðrum slóðum. Lóðaveiðar á djúpmiðum eru stundaðar frá því í janúar og fram í maí, en í apríl fara smábátar að stunda dragnóta- og færaveiðar. Fyrir þá báta þarf að gæta landhelginnar. En á fyrri hluta vetrar eru ekki mikil brögð að ágangi togara á innmiðum. En í apríl verður verkefni varðbátsins tvíþætt, þar sem þá þarf í senn að gæta landhelginnar og veiðarfæra á djúpmiðum.
Hér liggur fyrir brtt. frá hv. þm. Snæf. um það, að gæzlan nái einnig til Snæfellsness. Ég veit, að hann getur fært full rök að því, að þörfin sé ekki minni þar. En þá er hið upphaflega ætlaða starfsvið bátsins orðið svo stórt, að búast má við því, að einum varðbáti verði of stórt.
Bátarnir hafa undanfarið orðið að fara út fyrir takmörk Faxaflóa. Er nú tilætlunin að haga gæzlunni svo, að staðbinda fleiri báta, eins og sést hér á annari þáltill. Hv. flm. talaði um björgunarskútur, sem nú er mikill áhugi fyrir að koma upp. En hve stórar þær verði eða hve stórt verksvið þær hafi, er ekki fullráðið enn. En þó veit ég, að sú stefna er hér uppi, að þær þurfi að vera svo stórar, að þær geti einnig hjálpað skipum til hafnar, og því stærri en tíðkast í nágrannalöndunum.
Nú hefir verið safnað fé til björgunarskútu á Faxaflóa, sem á að geta, a. m. k. í færu veðri. bjargað skipum til lands. En ágreiningur er uppi um það, hvort þessi skúta eigi að nokkru leyti að hafa gæzlustarf á hendi. Ég held, að erfitt sé að samrýma gæzlu- og björgunarstarf á innanverðum Faxaflóa. En ég tel, að þegar varðbátur og björgunarskúta eru komin á Faxaflóa, eigi að verða með þeim sú verkaskipting, að annað skipið, og þá björgunarskútan, annist björgunarstarfsemi og eftirlit veiðarfæra á djúpmiðum, en báturinn landhelgisgæzluna. Þessa verkaskiptingu álít ég vel framkvæmanlega. Ég veit að vísu, að komið hefir fram andróður gegn því, að ríkið noti skipið á nokkurn hátt í sína þjónustu. En mér er ljóst, að strax og Faxaflói hefir fengið hinn nýja varðbát, kemur fram krafa, og hún réttmæt, um aukna gæzlu. Því er sú hugmynd uppi, að sameina björgunar- og gæzlustarfið. Ríkið yrði þá að sjálfsögðu að kosta rekstur björgunarskútunnar. En hvað sem þessu líður, geta allir verið sammála um það efni þáltill., að rétt sé og óhjákvæmilegt, að varðbátur verði byggður sem fyrst á Faxaflóa.
Það er rétt, að varðbátur hefir verið á Faxaflóa undanfarið, en hann hefir ekki verið svo fullkominn sem skyldi, og ekki verið hægt að beita honum í verstu veðrum, enda er skipið lítið og gamalt.
Ég vil benda á það í sambandi við brtt. hv. þm. Snæf., að miðin undan Snæfellsnesi eru ekki síður gullnáma en Faxaflói, og ætti nefndin að taka gæzlu þar til rækilegrar athugunar.
Þetta mál er stórmál fyrir okkur sem fiskiþjóð. Það er að vonum, að margur sakni þess, að annað bezta varðskipið skuli hafa verið selt úr landi en bæði var það, að rekstur þess var okkur ofviða sökum kostnaðar, og auk þess telja margir okkur önnur skip hentari til gæzlu en stór eimskip, og álíta mörg skip smá betri til gæzlu en eitt stórt, enda eru aðrar þjóðir farnar að líta svo á. Aðalatriðið er, að gæzlan komi að notum og reksturinn verði ekki óbærilegur. Þessi till. er til þess að hraða því verki, sem nú er byrjað á.