03.03.1936
Neðri deild: 14. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (3197)

45. mál, atvinnumöguleikar á Bíldudal

*Flm. (Sigurður Einarsson):

Ég get verið fáorður um þessa þáltill., af því að ástæðurnar til þess, að hún er fram borin, eru prentaðar og koma fullgreinilega fram í fskj. því, sem fylgir þáltill., þar sem oddviti Suðurfjarðahrepps hefir snúið sér til mín og farið þess á leit, að ályktun í þessa átt yrði borin fram hér á Alþ., og tilgreinir ástæður til þess.

Það, sem ennfremur veldur því, að ég get verið fáorður um þáltill., er það, að fyrir þessari hv. d. hefir legið frv. um kaup á Bíldudalseign, og hafa inn í umr. um það frv. blandazt umr. um ástæðurnar, sem liggja til grundvallar þessari þáltill. og hafa knúð fram þessar hjálparbeiðnir Bílddælinga. Ég held, að ennfremur megi ganga út frá því, að allmörgum hv. þm. muni það kunnugt, að hér hafa verið á ferð þrír hreppsnefndarmenn af Bíldudal, sem í viðtölum við þm. hafa skýrt þeim frá öllum ástæðum þorpsbúa í þessu efni.

Það er engum blöðum um það að fletta, að svo er nú komið fyrir íbúum þessa kauptúns, að engin von er til þess, að fólkið geti haldizt þar við, nema gangskör sé að því gerð að láta rannsaka, hvernig heppilegast sé að koma fótum undir atvinnurekstur á Bíldudal, sem íbúarnir geti sæmilega lifað af. Ég ber ekki fram frv. um kaup á Bíldudalseign, þó að vel geti auðvitað verið, að slík kaup yrðu liður í þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegar teldust, að fenginni rannsókn á því efni, sem um er að ræða. En það, sem farið er fram á með þáltill., er, að þessi rannsókn á atvinnumöguleikum verði gerð þarna að tilhlutun hins opinbera. Og mér dettur ekki í hug að gera mér í hugarlund, þó að þessi till. komi fyrst fram í sambandi við Bíldudal aðeins, að ekki reki að því, að slíka rannsókn og athuganir verði að gera á fleiri stöðum á landinu, þar sem svipaðar ástæður eru eða verða fyrir hendi og þær, sem nú eru til staðar á Bíldudal.

Nú þegar er búið að leigja burt mannlausan annan línuveiðabátinn, sem þarna á heima á staðnum, og líkur eru til þess, að hinn verði ekki hreyfður til athafna fyrr en e. t. v. í sumar. Og þar sem ennfremur er komið fram á vertíð, þegar mönnum verður það ljóst, að sjómenn, sem gerðu sér vonir um atvinnu við bátana, og fólk, sem bjóst við atvinnu í landi af vinnu við aflann, verður algerlega án þessarar atvinnu, hefir það enga aðstöðu til að ráðstafa sér til vertíðar á þessum vetri. Hefir mér því þótt rétt að bæta við ályktun þess efnis, að hv. Nd. skori á ríkisstj. að gera ráðstafanir til þess, að íbúum á Bíldudal verði, unz úr rætist um atvinnu, forðað frá yfirstandandi skorti, og að leita sér heimildar um fjárgreiðslur í því skyni.

Það er ekki gaman að þurfa að bera slíka hluti fram á Alþ., en það er samt óhjákvæmilegt. Það er augljóst af skýrslu oddvita Suðurfjarðahrepps í fskj. þáltill., að hversu báglega, sem fólkið er statt á þessum stað, þá er algerlega lokað það úrræði fyrir því að leita til sveitarstj. um hjálp. Hreppsn. þar er þess ekki megnug að hjálpa, vegna þess að útsvör hafa ekki greiðzt og hún hefir því ekki eyrisvirði í höndum til hjálpar.

Mér þykir miður, að frv. hv. þm. Barð. um kaup á Bíldudalseign skyldi vera vísað til fjhn. Þó að ákveðin hafi verið ein umr. um þessa þáltill., þá vildi ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann fresti umr. um þetta mál og að það verði látið ganga til n. Eðlilegast teldi ég að það færi til einnar og sömu n., sem frv. um kaup á Bíldudalseign hefir til meðferðar. Nú er það fjhn., en mér skilst, eftir eðli málsins, að það hefði átt að vera allshn., sem um það hefði fjallað.

Ef ekki gefst sérstakt tilefni, skal ég svo ekki fara frekar orðum um þáltill. að sinni.