05.05.1936
Neðri deild: 63. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í D-deild Alþingistíðinda. (3213)
77. mál, síldveiði í Faxaflóa og fyrir suðurströnd landsins
*Guðbrandur Ísberg:
Sú þáltill., sem hér liggur fyrir, er í 2 liðum, merktum a. og b. Ég er sammála b-lið, þar sem farið er fram á, að gerð sé rannsókn á því, hversu bezt verði hagnýttir síldveiðamöguleikarnir við Faxaflóa og suðurströnd landsins. Slík rannsókn er nauðsynleg og sjálfsögð, og geta væntanlega engir þm. verið henni andvígir.
Hinsvegar verð ég að segja, að ég er algerlega mótfallinn a-lið, sem hnígur að því að ákveða fyrirfram síldveiðamönnum við Faxaflóa 1/3 af leyfum fyrir söltun matjessíldar. Slíkt tel ég hreina fjarstæðu að gera að órannsökuðu máli. Þess vegna finnst mér líka, að b-liðurinn hefði átt að vera á undan, sá, sem krefur rannsóknar. Annars skiptir það ekki miklu máli. — Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. á þskj. 170, þar sem till. er öll orðuð um og lagt til, að a-liður falli niður.
Í grg. fyrir þessari till. er því haldið fram, að Faxaflóasíld muni vera jafngóð fyrir matjessíld eins og Norðurlandssíld. Ég hefi ekki fengizt við síldarsöltun, það skal ég viðurkenna, en eftir upplýsingum frá þeim fagmönnum, sem ég hefi talað um þetta við, er þetta mesti misskilningur. Norðurlandssíldin, sem óumdeilt er miklu feitari en Faxaflóasíldin, er einnig miklu betri til matjessöltunar. Svo að það er fjarstæða, svo framarlega sem nægilega mikið veiðist af Norðurlandssíld, að hverfa að því að salta miklu verri síld úr Faxuflóa. Þá síld verður að hagnýta á einhvern annan hátt. Annars skal ég ekki fjölyrða mikið um þetta. En ég vil gera það ákveðið að till. minni að fresta umr. og vísa till. til sjútvn. Þar eru menn, sem hafa sumpart sjálfir reynslu og sumpart nægilega þekkingu á þessum atriðum, til þess að geta gefið þd. í nál. þær upplýsingar, sem ættu að nægja. — Hirði ég svo ekki að fjölyrða meira.