30.04.1936
Sameinað þing: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í D-deild Alþingistíðinda. (3244)

112. mál, skylduvinna

Forseti (JBald):

Ég skal svara þessari fyrirspurn hv. þm. Ég bað skrifstofuna að taka á dagskrá það, sem fyrir lægi af málum, svo það hlýtur að stafa af gleymsku, að þessi till. hefir ekki verið tekin á dagskrá í dag. Hinar aðrar till., sem liggja fyrir í Sþ., hafa komið til einnar umr. og hefir verið vísað til n., en það hefir ekki komið út neitt nál. um þær. — Að þessi till. hefir ekki verið tekin á dagskrá í dag, stafar eingöngu af gleymsku, en það var ekki ætlunin, að hún ætti að sæta annari meðferð heldur en aðrar till., sem fram hafa komið. Ég mun því næst, þegar fundur verður í Sþ., taka þessa till. á dagskrá.