30.04.1936
Sameinað þing: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í D-deild Alþingistíðinda. (3252)
118. mál, vinnudeilur
Garðar Þorsteinsson:
Herra forseti! Snemma á þessu þingi var útbýtt frv. til 1. um vinnudeilur. Þessu máli var eftir 1. umr. vísað til allshn., sem klofnaði um málið. Fyrsti minni hl. vildi samþ. frv. eins og það lá fyrir, en lýsti sig hinsvegar fúsan til þess að athuga breyt. Annar minni hl. vildi fella frv., en sá þriðji kaus þá leið að bera fram sérstaka till. til þál. um skipun milliþinganefndar til þess að undirbúa löggjöf um vinnudeilur. Við sjálfstæðismenn í allshn. álítum, að það verði að gera einhverja gangskör að því að fá þetta mál leyst, og þar sem vitað er, að meiri hl. allshn. vill ekki, að málið fái framgang á þessu þingi, þá gerum við ráð fyrir, að sjálfstæðismenn muni vilja samþ. till. til þál. um skipun slíkrar mþn. En nú hefi ég hinsvegar nokkurn grun um, að jafnaðarmenn muni ekki heldur kjósa þá leið, heldur muni vilja láta málið sofna alveg. Þessari þáltill. var útbýtt 17. apríl síðastl. og ég vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort það sé tilviljun ein eða af gleymsku, að þetta mál er ekki á dagskrá í dag, eða hvort hæstv. forseti ætlar með forsetavaldi sínu og flokksafstöðu að standa því í vegi, að þetta mál verði afgr. á þessu þingi. Þessi till. til þál. er vitanlega alveg sjálfstæð, þannig að það þarf ekki að fara fram nein afgreiðsla á málinu í Nd. eins og það lá upphaflega fyrir. — Ég segi fyrir mitt leyti, að ég mundi kjósa, að þetta mál yrði rætt hér á Alþ. og að það yrði afgr. á einn eða annan veg. Og mér virðist hæstv. forseti ekki hafa neina ástæðu til þess að taka þessa þál. ekki á dagskrá, eins og hann hefir þó gert með aðrar till., sem útbýtt var miklu síðar.