08.05.1936
Neðri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í D-deild Alþingistíðinda. (3302)
116. mál, uppsögn viðskiptasamnings við Noreg
*Ólafur Thors:
Það er ekki af því, að ég fyrir mitt leyti telji rétt að segja upp norsku samningunum, að ég hefi kvatt mér hljóðs að þessu sinni, heldur til að minnast fornrar vináttu við hæstv. atvmrh. og hans flokk í þessu máli. Þegar það var til umr. á þingi 1933 — eftir að samningarnir höfðu verið gerðir og lagðir fyrir þingið til samþykktar — réðst hæstv. núv. atvmrh. og flokkur hans allóþyrmilega á þessa samninga, og höfðu um þá mörg óviðurkvæmileg orð. Það mætti þess vegna ætla, að þeir hefðu verið allfljótir á sér að losa þjóðina við þessa óhæfu samninga, þegar þeir fengu völdin í sínar hendur, en mér skilst nú, að a. m. k. hafi þeir ekki enn stigið það spor, sem þeir þá töldu réttmætt og sjálfsagt. Ég mun ekki fara um þetta mörgum orðum, en vil með leyfi hæstv. forseta rifja upp nokkuð af því, sem öndvegismenn Alþfl. sögðu um þetta mál á þinginu 1933. Þessi orð, sem ég vitna hér til, verða valin af handahófi, en þau eru sögð af valdamestu mönnum flokksins, og má telja, að allir séu þeir jafnábyrgir fyrir þeim. — Hv. 2. þm. Reykv., sem fyrstur þeirra tók til máls, sagði m. a.:
En þegar nú þetta frv. kemur fram, sem þrátt fyrir allar gyllingar hv. þm. G.-K. lítur fyrst og fremst á hagsmuni Norðmanna, en ekki Íslendinga, þá segir hæstv. forsrh.“ (þ. e. núv. pótitískur hálfbróðir hv. 2. þm. Reykv. Ásgeir Ásgeirsson), „að stj. hans muni fara frá völdum, ef það nær ekki fram að ganga — svo mikla áherzlu leggur hann á þetta mál.
Eftir öllum upplýsingum að dæma er hér meiri hl. þingsins að ofurselja landið Norðmönnum fyrir það eitt að fá nokkra tolllækkun á ákveðinni og minnkandi tunnutölu af kjötútflutningi til Noregs.“
Þá segir þessi sami hv. þm.: „Hvað ætli verði eftir af landinu og auðlindum þess, þegar allar þjóðir eru búnar að fá sinn rétt á þann hátt, sem hv. þm. G.-R. vill láta Norðmenn fá.
Ég vænti þess, að þeir kjósendur, sem hlusta um land allt og ekki eru bundnir sömu flokksböndum og hv. þm., þori að halda fram rétti Íslands og leyfi ekki einstökum mönnum að selja landið, heldur hagnýti gæði þess handa sjálfum sér eftir beztu föngum.“ — Það er svo sem ekkert smávægi. Það er verið að selja landið og ofurselja þjóðina erlendu valdi!
Ég kem þá að ræðu þess manns, sem nú er atvinnu- og utanríkismálaráðherra. Hann segir m. a.:
„Það vantar mikið til, að ég hafi talið upp alla þá galla, sem eru á samningnum. Ég hefi t. d. ekki nefnt það, að með honum er í raun réttri landhelgisgæzlan að engu gerð gagnvart Norðmönnum. En á það hafa aðrir bent, t. d. hv. 2. þm. Reykv., en af því, sem ég nú hefi sagt, tel ég sýnt, að það sé með öllu ógerlegt að samþ. þetta frv. um staðfestingu samningsins. Þinginu er skylt að fella það umsvifalaust.“
Þá segir hv. 2. þm. Reykv. og mælir í minn garð, vegna þess að einstakir flokksmenn Sjálfstfl. voru á móti samningnnm. Hann segir: „Sýnir þetta, að það er þó hægt að verzla svo með sjálfstæði þjóðarinnar, að blindum fylgismönnum ofbjóði.“ — Og ennfremur segir þessi sami hv. þm., að enginn þm., sem greiði atkv. með samningnum, eigi að vera kosinn aftur á þing.
Sjálfur form. Alþfl. segir: „Samningarnir verða því óhjákvæmilega til þess, að mikill fjöldi sjómanna, sem atvinnu hefir haft á sumrin af síldveiðum, verður atvinnulaus yfir sumartímann. Hvað ætlar hæstv. stj. að gera fyrir það fólk, er þannig verður svipt atvinnu sinni bezta tíma ársins? Ætlar hún að auka svo verklegar framkvæmdir, að þetta fólk geti haft þar atvinnu?
Það væri ekki að undra, þótt vinnustéttum landsins dytti í hug að neyta máttar samtaka sinna til þess að hindra þá útlendu menn að starfi við framleiðslu hér við land, sem tækju frá þeim atvinnu þá, er þeir hafa sér og sínum til lífsuppeldis.
Og það er ríkisstj., sem beitir sér fyrir því að svipta fjölda landsmanna atvinnu sinni, minnka íslenzka framleiðslu svo nemur mörgum millj. króna, sem minnkar aftur möguleika landsins og landsmanna til þess að kaupa sér nauðsynjar þær, er flytja þarf til landsins.
Þetta er hættan, sem vofir yfir, og ríkisstj. og þeir, sem samþ. frv., bera ábyrgð á. Sú aukning á atvinnuleysi í landinn, sem stofnað er til með þessum samningum, er margfalt þyngri á metunum í mínum augum en þau hlunnindi, sem talið er, að íslenzkir bændur fái með þeim.“
Þetta segir formaður flokksins, að það sé ríkisstj., sem beiti sér fyrir því að svipta fjölda landsmanna atvinnu sinni. Það liggur því alveg rökrétt fyrir, að sú ríkisstjórn, sem leyfir sér að viðhalda þessum landráðasamningum, sé áframhaldandi að beita sér fyrir því að svipta fjölda manna í landinu atvinnu sinni.
Ennfremur segir form. Alþfl.: „Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh. og ætla jafnframt að víkja þeirri spurningu til hv. sjálfstæðismanna, hvort ekki sé svipað með þennan samning og forðum daga, þegar verið var að seilast eftir Grímsey.“
Og svo að lokum segir form. Alþfl. ennfremur: „Því að það er vitanlegt, að flestir bændur, sem fala um þennan samning, eru á móti honum, þó þeir kunni kannske ekki við að kveða upp úr með það, af því að þetta er gert í því skyni að veita þeim hlunnindi.
Það var sagt hér á dögunum, og raunar fullyrt, að á búnaðarþinginu væru ekki nema 1 eða 2 menn, sem mæltu þessum samningi bót, en allir hinir væru á móti. Þetta er í samræmi við það, að bændur hafa jafnan haldið fastast á öllum réttindum landsins. En eftir þessum samningi er verzlað með landsréttindi, eins og hv. 1. landsk. tók fram við 1. umr. þessa máls.“
M. ö. o., formaður Alþýðuflokksins segir, að það sé alveg vitanlegt, að bændur séu á móti samningnum, en kunni ekki við að segja það, og ennfremur, að það sé vitað, að með þessum samningi sé verzlað með landsréttindi, og allir þessir þrír valdamenn Alþfl. hafa kallað samninginn landráðasamning og talað um, að íslenzk réttindi væru ofurseld annari þjóð og lýst því yfir, að sú stjórn, sem vilji láta samþ. samninginn, og þar af leiðandi ekki síður sú stjórn, sem heldur honum við, sé að gera leik að því að svipta íslenzka verkamenn atvinnu í mjög ríkum mæli.
Allt það, sem þessir menn þá sögðu um samninginn og um þáv. forsrh. — núv. flokksbróður þeirra — bitnar í ríkum mæli á núv. atvmrh. og öllum jafnaðarmannaflokknum á Alþingi. Það er ekki gaman fyrir hæstv. atvmrh. og þann flokk, sem styður hann, að líta nú augum sínum aftur í tímann og reka sig þar á þessi orð, sem þá voru sögð að mestu leyti á móti betri vitund og hljóta nú að varpa skugga á þennan ráðh., sem nú situr í stjórn og hefir setið í nærfellt 2 ár.
Hvernig er hægt fyrir þann ráðh., sem hefir lýst því yfir, að þessi samningur sé landráðasamningur, og fyrir form. Alþfl., sem lýsti því yfir, að bændum sé engin þægð í samningnum og að með honum séu seld landsréttindi, að vera við völd í tvö ár og láta sitja við það sama, ef þeir hafa meint nokkuð af þessu, sem þeir sögðu?
En síðan við vorum að ræða þetta á Alþingi hefir ekki eingöngu það gerzt, að sá flokkur sem harðast barðist á móti samningnum, hafi náð völdum í landinu og að sá maður, sem gekk í fylkingarbrjósti árásarliðsins, sé setztur í ráðherrastól ekki aðeins sem atvmrh., heldur einnig sem utanríkismálaráðh., — það hefir gerzt fleira. Það hefir fallið alveg skýlaus yfirlýsing frá þeim manni, sem var við þessa samninga f. h. bændastéttarinnar, um það, að fríðindin, sem Íslendingar fá með þessum samningi, séu nú miklu minna virði en þau voru þegar samningurinn var gerður. Þessi yfirlýsing hans er bókuð í fundarbók utanrmn. og hefir birzt í blöðum sósíalista, svo ég fer ekki með launungarmál. M. ö. o., til viðbótar þeim ástæðum, sem þá voru færðar fram á móti þessum samningi, hefir nú fallið þessi dómur, að þau fríðindi, sem náðust fyrir Íslendinga með honum, séu nú miklu minni en þau voru upprunalega. Hafi þess vegna verið ástæður til þess þá að hafna samningnum, þá eru þær því meiri nú.
En það hefir gerzt fleira en þetta. Það hefir gerzt, að önnur þjóð, 20 sinnum mannfleiri en Norðmenn, hefir snúið sér til Íslendinga og beðið um að fá sér til handa sömu fríðindi eins og Íslendingar veita Norðmönnum með þessum sanmingi, og í skjóli þess, að Norðmenn hafa þessi fríðindi með samningnum. — Nú skyldi maður halda, að þegar sá maður, sem taldi norsku samningana landráðasamninga, er kominn í ráðherrasess, þá væri ekki tvísýnt um, að hann mundi losa þjóðina við þessa hörmungarsamninga, og þá allra helzt þegar það er upplýst og vitað, að fríðindi þau, sem við fáum með samningunum, eru orðin miklu minni, og þegar svo þar að auki kemur krafa um það frá annari þjóð 20 sinnum mannfleiri, að láta sig hafa sömu kjör. Í slíkum málum getur ekki vitiborinn ráðh. þurft mikið að hugsa; það hlýtur að liggja svo ljóst fyrir, þegar 20 sinnum mannfleiri þjóð sækist eftir því, sem hann sjálfur hefir kallað framsal íslenzkra þjóðréttinda. Hann hlýtur þegar á stundinni að ákveða sig með það að losna við þessa samninga. Þetta hefir hæstv. ráðh. ekki gert, og með því er hann orðinn ber að öðru tveggja — hann má sjálfur velja, hvort hann kýs heldur — að hafa ekki meint neitt af því, sem hann sagði á þinginu 1933, eða sækjast svo mikið eftir sætleika valdanna, að hann hiki þess vegna ekki við að ofurselja erlendum ríkjum íslenzk þjóðréttindi í svo ríkum mæli, að landráð megi teljast að hans dómi sjálfs, eingöngu til þess að hanga við völdin í landinu. Þetta er ekki öfundsvert hlutskipti.
Hæstv. atvmrh. hlýtur að skilja, að það er ekki nema eðlilegt, að ég, sem átti þátt í þessum samningum, þegar þeir voru gerðir, krefjist nú reikningsskapar af honum fyrir svigurmæli hans þá. Getur hann skýrt það fyrir mér og hv. dm., hvernig á að samræma gífuryrði hans um landráð á þinginu 1933 við þá staðreynd, að hann hefir nú setið að völdum í nærfellt 2 ár án þess að losa þjóðina við þessa sanminga, enda þótt fríðindi þau, sem samningunum fylgja, séu minni nú en þau voru þegar samningarnir voru gerðir, og ennfremur þegar þeir meinbugir, sem fylgdu samningunum, hafa aukizt — ef nokkrir voru.
Ég hefði svarið fyrir, að það gæti hent þennan hæstv. ráðh. að tolla í valdasessi í 2 ár án þess að losna við þessa samninga, — ekki af því, að ég tryði því, að hann feldi þá í raun og veru landráðasamninga, heldur af því, að ég tel það furðulegt blygðunarleysi að geta setið svo að völdum, gagnvart þeirri fortíð, sem hann hefir í þessu máli, án þess að hafast nokkuð að.
Ég þarf ekki að lýsa þeirri skoðun minni að ég taldi þessa samninga ekki hættulega, og ég get fært skjallegar sannanir fyrir því, að þau fríðindi, sem norsku samningunnm fylgdu, voru til góðs fyrir þjóðina og að þeir voru hættulausir. Ég óska þess vegna ekki eftir því, að samningunum sé sagt upp. En ég óska eftir því, að hæstv. ráðh. noti tækifærið til að iðrast synda sinna og á drengilegan hátt afsaki breytni sína og sýni með játningu sinni, að hann hafi öðlazt nýjan skilning á þessu máli. Þetta finnst mér verðskuldað, að hann geri, og sú minnsta refsing, sem hann getur hlotið fyrir orð sín, er að sýna, hvernig þau stangast við gerðir hans síðan.