24.02.1936
Neðri deild: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (331)

10. mál, útflutningur á kjöti

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti! Ég sé eiginlega ekki ástæðu til að tala neitt um þetta frv. N. hefir orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt. — Það hefir legið fyrir undanförnum þingum, og allar þær ástæður, sem voru fyrir því á þinginu 1933, að það þótti nauðsynlegt að láta þurfa leyfi til þess að flytja út kjöt til Noregs og jafna útflutninginn á milli útflytjenda, eru til staðar enn.

Hv. þm. þekkja því gang þessa máls og þurfa þess vegna ekki að eyða tíma í að ræða það. N. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.