05.03.1936
Efri deild: 16. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (338)

10. mál, útflutningur á kjöti

Frsm. (Páll Hermannsson):

Það þarf fátt eitt um þetta mál að segja. Þegar l. um útflutning á kjöti voru sett 1933, þá var meginorsök þeirrar lagasetningar sú, að sölutregða var mikil bæði í Englandi og Noregi á kjöti og takmarkað það, sem þangað mátti flytja, og varð því að hafa eftirlit með útflutningnum hér heima. Þau l. giltu aðeins til eins árs, en hafa síðan tvívegis verið framlengd, og er farið fram á, að þau verði nú framlengd í þriðja sinn. Ástæðurnar eru þær sömu fyrir hendi og árið 1933. Landbn. þessarar d. vill fallast á, að þetta frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.