22.02.1936
Neðri deild: 6. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

21. mál, botnvörpuveiðar

Flm. (Finnur Jónsson):

Á árinu, sem leið, var lítilsháttar byrjað að stunda rækjuveiðar á Vestfjörðum, og eftir því, sem fiskirannsóknir hafa leitt í ljós, munu rækjur vera til mjög víða hér við land. Rækjuveiðar eru mestmegnis stundaðar með einskonar botnvörpum, sem dregnar eru hægt, oftast með smábátum, og eru því að áliti fiskifræðinga óskaðlegar nytjafiski. Hinsvegar getur verið, þó það sé ekki víst, að veiðar þessar komi í bága við l. um botnvörpuveiðar, og er vissara að fá úr því skorið af Alþingi hvort svo er. Í l. um bann gegn botnvörpuveiðum er svo tiltekið, að ekki megi stunda fiskiveiðar með botnvörpu í landhelgi. Nú má segja að rækjan sé ekki fiskur, heldur krabbategund, og er því ekki víst, að rækjuveiðarnar komi í bága við lögin. En til þess að taka af allan vafa er frv. flutt, því ef það sýnir sig, að eins mikið er af rækju við strendur landsins eins og rannsóknir benda til, þá er hér um útflutning að ræða, sem á skömmum tíma gæti skipt hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum kr. Rækjuveiðar hafa verið stundaðar í Noregi síðan árið 1897, og álíta fiskifræðingar þar, að veiðarnar séu óskaðlegar nytjafiski.

Á þessum tíma, þegar mest ríður á að stunda sem mest annan veiðiskap heldur en þorskveiðar, af því svo erfitt er að selja þorskinn, þá vænti ég, að þetta mál fái góðar undirtektir á Alþingi, og óska ég, að því verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og sjútvn.