04.03.1936
Neðri deild: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (353)
21. mál, botnvörpuveiðar
*Pétur Ottesen:
Ég held, að ómögulegt sé fyrir hv. þm. að koma n. undan því, að hún með því að leggja til, að frv. verði samþ., lýsi því yfir sem sinni skoðun, að þessi veiðiaðferð sé brot á lögunum um bann gegn botnvörpuveiðum því að í frv. stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „Heimilt er ráðh. að veita vélbátum undanþágu frá banni þessu, til þess að stunda kampalampaveiðar með venjulegri kampalampavörpu.“
Ef þetta væri ekki brot á þessu banni, hvað þýddi þá að veita undanþágu frá því? Þetta er skýr yfirlýsing frá n. hálfu um það, og það verður ekki undan því komizt. Og eftir því, sem hv. frsm. sagði í sinni framsöguræðu, á þetta eingöngu við þar, sem engar fiskveiðar aðrar væru stundaðar.
Hv. frsm. kom með skýringar á þessu mjög ófullkomna orðalagi frv., að ráðh. veiti þessa undanþágu, en það stendur ekki nokkur stafur fyrir því, að ráðh. eigi að tiltaka svæðin.
Þó að kannske megi leggja þann skilning í þetta, finnst mér réttara að taka þetta fram og ef n. ekki skýrir þetta nánar, vil ég flytja brtt. á grundvelli þeirrar skýringar, sem hv. frsm. gaf í sinni framsöguræðu.