09.03.1936
Neðri deild: 19. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

67. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

*Stefán Jóh. Stefánsson:

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, fer fram á það, að gildi 1. um skattgreiðslu h/f Eimskipafélags Íslands framlengist um 2 ára skeið, þannig, að það njóti áfram þess skattfrelsis, sem það hefir notið á undanförnum árum. En það skattfrelsi, sem gilt hefir samkv. þeim l., sem nú eru í gildi, fellur niður við næstkomandi áramót.

Eimskipafélagið hefir snúið sér til Alþingis og beðið um framlengingu skattfrelsis áfram. Þessu erindi hefir verið vísað til fjhn., og hefir hún orðið sammála um að flytja frv. þetta um framlengingu skattfrelsisins fyrir árin 1937 og 1938, með þeim skilyrðum, sem upphaflega voru í l., að Eimskipafélagið léti af hendi 60 ókeypis farmiða til ráðstöfunar fyrir ríkið. Gildir því áfram sú kvöð, sem hvílt hefir á Eimskipafélaginu að undanförnu eftir þessum skattfrelsislögum.

Ég vænti þess, að hv. d. geti orðið sammála um þetta mál, og þar sem það er flutt af fjhn., þá er ekki ástæða til að vísa því til n., og legg ég því til, að það fari umræðulaust til 2. umr.