19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

1. mál, fjárlög 1937

Þorsteinn Briem:

Það er vitað, að opinberu gjöldin, tollar og skattar, hafa aldrei verið jafnhá og nú.

Það er vitað, að fjárl. fyrir þetta, yfirstandandi ár eru upp á nær 16 milljóna útgjöld. eða hærri en nokkru inni fyrr.

Og það er loks vitað að fjárlagafrv. það sem hæstv. stj. leggur nú fyrir Alþ., skríður yfir metið frá síðust. þingi, því að nú eru útgjöldin áætluð á 17. millj. kr.

Ætla mætti, að þar sem þetta er útgjaldahæstv. fjárfrv., sem lagt hefir verið fyrir Alþingi, þá væru þar stórlega hækkuð öll fyrri framlög til styrktar atvinnuvegunum, sem nú eru í kalda koli, eins og allir vita.

Þessa hefði mátt vænta vegna nauðsynja atvinnuveganna, — vegna þess ástands, sem framleiðslan á við að búa, hvar sem litið er.

Þessa hefði og átt að mega vænta af núv. ríkisstj. vegna þeirra loforða, sem stuðningsflokkar hennar gáfu fyrir síðastl. kosningar og vegna þeirra yfirlýsinga, sem þessir flokkar gáfu þjóðinni í málefnasamningi þeim, sem gerður var á milli þeirra um leið og hæstv. ríkisstj. settist að völdum.

Þar stendur:

„Færðar séu niður ónauðsynlegar fjárgreiðslur ríkissjóðs og alls sparnaðar gætt í rekstri ríkisins og opinberra stofnana, en tekjunum varið til aukinnar atvinnu og framkvæmda í landinu.“

Í þessari yfirlýsingu og stefnuskrá stj. er það að vísu ekki tekið fram, hvaða fjárgreiðslur stjórnarflokkarnir hafi há talið ónauðsynlegar.

En almenningur mun a. m. k. hafa skilið það svo sem þar væri fyrst og fremst átt við óþarfa bitlinga og nefndir og óþarft starfsmannahald.

En stj. virðist ekki hafa skilið það svo. Hún hefir ekki sparað féð í nefndirnar, bitlingana né starfsmannahaldið.

Stj. hefir verið réttnefnd nefndastjórn. Þar sem hún hefir jafnvel orðið að hafa nefnd yfir sjálfri sér. Þótt hún hafi að vísu getað laumað kostnaði sumra þeirra yfir á aðra aðilja en ríkissjóð.

Og sem dæmi um starfsmannahaldið má rétt t. d. benda á, að í einni ríkisstofnuninni hér í Reykjavík, þ. e. áfengisverzluninni, eru nú skv. skýrslu, sem þessa fjárlfrv. fylgir um 40 starfsmenn. Enda láta sumir, sem í áfengisafgreiðsluna hafa komið, svo um mælt, að það sé eins og að koma á fund, að líta þar inn fyrir búðarborðið.

Þetta eru „nauðsynleg gjöld“, sem ekki er hægt að færa niður að dómi stj.

En hæstv. ríkisstj. hefir fundið aðra gjaldaliði, sem hæfir þótt fært að fella burt eða færa niður, og hún hefir því talið miður nauðsynlega.

1. Ég get þar á meðal rétt nefnt, hvernig stj. felldi niður allar greiðslur úr ríkissjóði til þátttöku í kostnaði af afurðasölunefndunum.

Þeim kostnaði dembdi stjórnin á síðasta þingi algerlega á atvinnuvegina, og taldi fjmrh. það muna um 100 þús. kr. fyrir framleiðsluna í landinu.

2. Þá felldi stj. eða stjórnarflokkarnir niðurlögbundið framlag til ræktunarsjóðs af útflutningsgjaldi. um 15 þús. kr.

3. Hún lækkaði lögbundið framlag til búfjárræktarinnar í landinu um l0 þús. kr.

4. Hún lækkaði framlag til sandgræðslu um 73 þús. kr.

5. Hún lækkaði framlagið til sýsluvegasjóða um ca. 50 þús. — ef sá vegabóta og atvinnustyrkur fellur þá ekki algerlega niður, af því að sýslurnar sjái sér ekki fært að ráðast í vegabæturnar, þar sem ríkisframlagið til þeirra vega er nú aðeins 1/3 kostnaðar að hámarki, í stað helmings framlags áður.

6. Þá lækkaði hún framlag til flutningu á tilbúnum áburði um þriðjung frá því sem verið hefir áður. Og það á sama tíma, sem Norðmenn stórhækka þennan flutningastyrk, til þess m. a. að draga úr þörfinni á aðkeyptum fóðurbæti.

7. Og hún lækkaði framlagið til Búnaðarfélags Íslands um 20 þús. kr. Leiðir þar af m. a. að Ræktunarfélag Norðurlands og búnaðarsamböndin t. d. fá nú þeim mun minna starfsfé til sinna þörfu framkvæmda og verða að draga saman eða hætta við sumt af því, sem þeim liggur mest á.

Aðeins þessar sjö niðurfærslur á framlögum til atvinnuveganna nema fullri ¼ millj. kr. samtals, þó að ekki séu fleiri taldar.

Voru þetta gjafir síðasta þings til landbúnaðarins, áður en það fór heim eftir sína 124 daga setu, fyrir jólin.

Og má segja, að þar lýsi gjafir gefendum, þegar þetta er gert samtímis því, sem skattar og tollar eru hækkaðir um milljón ofan á milljón í því árferði, sem nú er.

Ætla mætti, að þetta væri lagfært á þessu fjárlagafrv., þar sem heildarútgjöldin hafa hækkað. En ekkert af þessu hefir verið lagfært. Landbúnaðurinn á enn aftur um næstu áramót að fá þessar niðurfærslur í nýársgjöf samkv. frv. stj.

Mega menn þá enn minnast þess, að hver er sínum gjöfum líkur.

Og svo fá þau héruð landsins, sem ekki styðja stj. tilbærilega, viðbótargjöf hér í þessu fjárlagafrv. Það er hugsað til þeirra á þann hátt, að þær litlu fjárveitingar, sem einhvern veginn tókst að fá inn á núgildandi fjárl. til vegabóta í andstæðingahéruðum, þær eru nú nálega þurrkaðar út hér í þessu fjárlfrv.

Hygg ég ekki, að nokkur landsstj. hafi þar komizt nálægt þessari um hlutdrægni og hefndarhug til heill. héraða.

Færir stj. þar, sem fyrr, sjálf á það skýrastar sönnur, að hún ætlast ekki einu sinni til þess sjálf, að á hana sé litið sem landsstjórn, heldur sem einhliða, hlutdræga og hefnigjarna flokksstjórn.

Þess var ekki að dyljast hjá hæstv. fjmrh., að hann var drjúgum upp með sér yfir því, að gjöld og tekjur hefðu nokkurn veginn staðizt á.

En „hverju var að þakka, að hún Gunna flaut?“ segir máltækið.

Hverju var að þakka, að ekki var stærri greiðsluhalli á því bráðabirgða-„uppgjöri“, sem væntanlega á eftir að breytast, þegar öll kurl koma til grafar, eins og eðlilegt er?

Því er fljótsvarað. Það er brennivínið, sem þar hefir bjargað. Vegna vínflóðsins, sem veitt var inn í landið á síðusta ári, hefir vínsala ríkisins aukizt a. m. k. um 1 millj. og 770 þúsundir eða upp í 3½ millj. á árinu. Kemur þessi ógurlega aukning fram á sterku vínunum, sem mest vinna tjónið og mest er grætt á. Tekjuafgangur á rekstrarreikningi er talinn um 500 þúsund í bráðabirgðayfirliti hæstv. fjmrh.

Á sama tíma hefir ríkissjóður fengið nýjar tekjur af áfengissölu, umfram áætlun, um 1½ millj. króna.

Í fyrra voru nýjar álögur lagðar á þjóðina um 1 millj. að minnsta kosti.

Þrátt fyrir þetta hefir orðið greiðsluhalli um 400 þús. kr. Sjá þá allir, hvernig fjárhagur ríkissjóðs hefði verið, ef ríkisstj. hefði eigi veitt slíku ægilegu vínflóði yfir landið sér til fjáröflunar.

Ef hér mætti „skemmta um hinn óskemmtilegasta hlut“, eins og meistarinn íslenzki segir, þá gæti mönnum komið í hug borðvísan gamla:

„Þeir lifa þar á mysu og mjólk, en mest á brennivíni.“

Það verður að vísu ekki sagt, að stjórnin lifi á mjólk né mysu, svo sem áður hefir verið sýnt fram á í útvarpsumræðum hér á Alþingi.

En á brennivíninu hefir hún lifað. Brennivínið hefir verið stj. einu bjargráð.

Og það vill svo vel til, að sjálfur yfirmaður áfengissölunnar, forsrh., hefir í nýprentaðri ræðu lýst því sjálfur, hvað það sé, sem stj. hefir gert. Þar kemst ráðh. svo að orði, að áfengisneyzlan sé lántaka hjá sjálfu lífinu.

Og ráðherrann bætir því við, að mönnum vilji gleymast, að „lífið lánar aldrei neitt, nema lát, endurgreiða það til fulls, og það með okurvöxtum“.

Sjálfri ríkisstj., eða a. m. k. þeim ráðh., sem fer með yfirstjórn áfengissölunnar. er það þá fullkomlega ljóst, hvað hún hefir verið að gera sl. ár, með því að veita vínflóðinu ótakmarkað inn í landið, þótt takmarka hefi orðið flestan innflutning annan.

Henni er það ljóst sjálfri, að til þess að ná þeirri fjárhagsútkomu, sem nú er, hefir hún orðið að taka lán hjá sjálfu lífinu — lífi og lífsþrótti íslenzkrar þjóðar.

Og hún veit það samkv. orðum hæstv. forsrh. sjálfs, að „lífið lánar aldrei neitt, nema láta endurgreiða það til fulls, og það með okurvöxtum“. Og af þessu sér stj. ástæðu til að státa.

Lífið, sem lánar aldrei neitt, nema gegn fullri greiðslu og okurvöxtum, er nú þegar farið að innkalla vextina af þessu síðasta láni ríkissjóðs hjá sjálfu lífinu. Þessa okurvexti eru bæjarsjóðirnir þegar farnir að greiða m. a. í framfæri drykkjumannaheimilanna.

Þessa okurvexti verða bæir og ríki að greiða m. a. með því að reisa og starfrækja óhjákvæmileg drykkjumannahæli fyrir þá tugi eða jafnvel hundruð manna, sem þar verður að vista, ef slíku fer fram.

Og þessa okurvexti verður þjóðin ekki sízt að gjalda í spilltri framtið og aumingjaskap þeirra manna, kvenna sem karla, sem annars hefðu getað orðið gagnlegir þjóðinni, ef þeir hefðu eigi orðið áfenginu að bráð.

Þá má sjá örlitla augnabliksmynd af því gjaldi, sem heimilin verða að gjalda í vexti af þessu ríkisláni hjá lífinu, í skýrslu lögreglunnar hér í Reykjavik um þau 20–30 heimili, þar sem lögreglan var tilkölluð á hinu eina og sama kvöldi vegna ölæðis föður eða sonar.

Nærri má geta, hvort heimilin sjálf gripa til þess úrræðis að kalla á lögregluþjónana, til að skakka leikinn innan sinna eigin veggja fyrr en í ýtrustu neyð.

Nærri má geta, hve hin heimilin eru margfalt fleiri, sem reyna heldur að bjargast við hjálp nábúa eða á annan hátt, þó að úr hófi keyri hörmungarnar! — Þær telur enginn!

Það verður ekki heldur reiknað, hvaða okur vexti óvaxin börn mega gjalda,. er alast upp á slíkum heimilum, því þær tölur telur heldur enginn. — En sannarlega eru það okurvextir, sem þjóðin verður að gjalda af þessu láni hæstv. ríkisstj. hjá sjálfu lífinu.

Þessi mikla lántaka er því óafsakanlegri, sem takmarka hefir orðið nær allan unnan innflutning.

Stundum fengust ekki einu sinni innflutningsleyfi eða gjaldeyrir fyrir netin til þess að veiða í síldina og ausa upp erlendum gjaldeyri.

En brennivínið fékkst.

Sumsstaðar fékkst ekki þakjárn til nauðsynlegustu bygginga vegna gjaldeyristakmarkana.

En brennivínið fékkst!

Hænsnafóður fæst ekki, til þess að hægt verði að koma í veg fyrir eggjainnflutning.

En brennivinið fæst ótakmarkað!

Það er selt, jafnvel hundrað flöskur sama manni í einu, svo að því auðveldara er að verzla með það í leynisölu að næturlagi og um helgar.

Enda hefir það nýlega verið fullyrt í útvarpinu af manni úr áfengisvarnarnefndinni, að leynisölur hafi aldrei verið fleiri hér í bæ en nú.

Ríkisstjórnin getur ekki afsakað brennivín,austurinn með því að kaupa hafi þurft af Spánverjum, því að brennivínið er ekki suðræn vara.

Ríkisstjórnin hefir ekki ein sett lögin. En hún hefir ein stýrt framkvæmd þeirra svo sem nú var ljóst.

Og nú liggur sjálf áfengisverzlunin undir einhuga kæru allrar áfengisverndarnefndar fyrir óleyfilega bakdyrasölu, sem leynisalarnir hafa líka notið góðs af.

Þetta er sýnishorn af fjármálapólitík stj. Þegar hún lofar að færa niður ónauðsynleg útgjöld, þá lækkar hún framlög til ræktunarsjóðs, til búfjárræktarinnar, sandgræðslunnar, áburðarkaupanna, sýsluvegasjóðanna og til Búnaðarfélags Íslands, Ræktunarfélags Norðurlands og búnaðarsambandanna.

Og þegar hana vantar fé í kassann til þeirra hluta, sem hún telur nauðsynlegri, þá tæpir hún á fremstu nöf laganna til þess að geta tekið lán hjá sjálfu lífinu — lán með okurvöxtum, sem teknir eru af dýrustu eigninni, sem landið á — þ. e. lífsþrótti og hamingju þjóðarinnar.