10.03.1936
Efri deild: 20. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

50. mál, eftirlit með útlendingum

Magnús Guðmundsson:

Allshn. flytur hér á þskj. 121 fáeinar brtt. við frv., og skal ég með örfáum orðum gera nokkra grein fyrir þeim. — Fyrst er dálítil orðabreyt. á 2. gr. N. virtist, að eins og 2. gr. er orðuð í frv., gæti hún valdið misskilningi. Það er auðséð, að ekki er ætlazt til þess, að ákvæði gr. geti átt við alla menn, sem hingað koma, heldur er aðeins átt við útlendinga, og þess vegna er af hálfu n. ætlazt til, að gr. orðist þannig: Útlendingum, sem koma hingað til lands, er óheimilt að fara í land til dvalar, nema þeir hafi skilríki, sem sýni á fullnægjandi hátt, hverjir þeir eru.

Allshn. ætlast til, að það sé fellt burt, að skylt sé að hafa vegabréf, en hafa aðeins ákvæði um fullnægjandi skilríki. Það, sem fyrir n. vakir, er það, að hún vill helzt komast hjá því að gera vegabréf að skyldu. Þó er þannig frá þessu gengið af n. hálfu, að ríkisstj. er heimilt að gera vegabréf eitt af þeim skilríkjum, sem hlytu að falla undir ákvæði þessarar gr. En fyrir n. vakir að forðast vegabréfaskylduna eins lengi og unnt er. Í öðrum löndum er hún sumsstaðar upphafin, og n. lítur svo á, að bezt sé að forðast hana í lengstu lög.

Þá er önnur brtt. n., sem er við 3. gr. frv. og er hún aðeins til að leiðrétta orðalag. — 3. brtt. er við 4. gr. frv.; tilgangur hennar er að kveða skýrt á um það, að annaðhvort farþegaskrá eða útdráttur úr farþegaskrá sé alltaf sent til lögreglustjóra eða umboðsmanns hans í hverju héraði, þar sem útlendingar koma á land eða fara úr landi, en eftir því, sem frv. er orðað, lítur út fyrir, að aðeins eitt afrit af farþegaskrá eigi að senda, og þá til lögreglustjóra í því umdæmi, þar sem skip eða loftfar kemur fyrst við land eða fer síðast frá landi. Þetta þótti n. ekki eins hentugt eins og að hver lögreglustjóri fái að vita í hvert skipti, hverjir útlendingar koma í land og fara úr landi í hans lögsagnarumdæmi. Það er t. d. ekki nóg, að lögreglustjóri Vestmannaeyja fái að vita um það, hverjir koma til Reykjavíkur. Náttúrlega er hægt að skipa þessu með reglugerð, en n. þótti réttara að setja þetta í lögin sjálf. Þá er síðari hluti brtt., sem er aðeins breyt. á orðalagi. Það er ekki viðkunnanlegt að segja, að menn skuli framfylgja skyldum þeim, sem á þeim hvíla; er sjálfsagt venjulegra að segja, að þeir eigi að fullnægja þeim, og er þessi brtt. því í samræmi við málvenju.

Við 5. gr. er dálítil brtt., sem þó er ekki veruleg. Er farið fram á að fella burt 2. málsgr. N. sá ekki annað en að sama regla gæti verið um alla þá útlendinga, sem hér á land koma. Það gæti verið spursmál um, hvort ekki væri rétt að fella niður orðin „fast aðsetur“, og verður það athugað í n. fyrir 3. umr. En mér finnst ekki óviðfelldið, að sama regla gildi um alla útlendinga, og sé ekki, að til of mikils sé mælzt, þótt það sé heimtað, að þeir geri grein fyrir sér innan viku. — Svo eru orðabreyt. við 6. og 7. gr., þar sem talað er um fátækrastyrk og sveitarstyrksþurfa, því að samkv. hinum nýju framfærslulögum á þar að vera framfærslustyrkur og framfærslustyrksþurfi, og er þessi brtt. því aðeins til samræmingar.

Þá er lítilfjörleg brtt. við 1. málsl. 12. gr. N. gerir ekki ráð fyrir, að það sé lögmælt eftirlit, þar sem menn koma, og gengur n. út frá, að útlendingar megi fá að fara í land þar, sem þeir ekki ætla að setjast að. Það er undarlegt, ef farþegar mega ekki stíga í land án þess að vera háðir þessu eftirliti, þótt þeir hafi ekki leyfi til að dvelja í landinu án þess. Það er svo í öðrum löndum, t. d. í Englandi, að þar fá farþegar að fara í land án þess að gera grein fyrir sér, og er þó eftirlit strangt þar. Skipverjar geta verið dögum og jafnvel vikum saman í landi án þess að við því eigi nokkuð að gera, því að það er eðlilegt, að menn, sem eru á skipum, hvort sem það eru farþegar eða skipverjar, hafi mök við land. Skal ég svo ekki fara fleiri orðum um þetta að sinni, og vil ég vona, að brtt. verði samþ.