10.03.1936
Efri deild: 20. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (426)

50. mál, eftirlit með útlendingum

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég held, að það sé óþarft fyrir okkur hv. 1. þm. Skagf. að vera með æsing út af því, þótt við séum ekki sammála um nokkur atriði í þessum lögum. Enda þótt hv. 1. þm. Skagf. telji vera mikið um vitleysur í þessu frv., þá verð ég að segja það, að enda þótt það standi „fátækrastyrkur“ í stað „framfærslustyrk“ á tveimur stöðum, þá væri betur gengið frá frv. hér á þingi heldur en verið hefir, ef þau væru ekki verr undirbúin en það, sem hér liggur fyrir, því að það er hingað komið úr höndum færustu manna. En viðvíkjandi lagasetningunni um þetta efni vil ég taka það fram, að fyrir nokkrum árum, er ég var lögreglustjóri og hafði veitt því athygli, að hingað höfðu komið menn, sem sekir höfðu orðið um stórkostleg afbrot erlendis og byrjuðu strax að fremja hér stórkostlegustu innbrot, sem framin hafa verið hér á landi, þá vakti ég athygli dómsmrn. á því, að nauðsynlegt væri að setja lagasetningu sem þessa; fékk ég svo löggjöf frá Noregi og sendi dómsmrn. hana, en það gat ekki komið því í kring, að heimtuð væru vegabréf af útlendingum, sem hingað koma. Norska og danska löggjöfin um þetta efni hefir verið tekin til fyrirmyndar við samningu þessa frv. af þeim lögfræðingum, sem það er samið af. Það er áreiðanlega út í bláinn sagt hjá hv. 1. þm. Skagf., að ég hafi misskilið það, sem í frv. stendur, vegna þess að það er útilokað, að þingnefnd, sem hefir ekki kynnt sér þessa löggjöf, sem frv. er samið eftir, og aðeins haft 2–3 klst. til þess að fara í gegnum það, sé eins vel inni í málinu og lögfræðingarnir, sem sömdu frv. Skal ég svo drepa aðeins á þau atriði, sem okkur greinir á um, og ætti okkur að vera vorkunnarlaust að komast að réttri niðurstöðu, því að þetta er vissulega ekki pólitískt mál. Ég er hissa á því, að hv. 1. þm. Skagf. skuli nota þá röksemdaleiðslu, sem hann gerir, þegar hann er að tala um ákvæði 2. gr. frv., sem fjallar um það, hvernig eigi að koma fyrir eftirlitinu með útlendingum. Hann segir, að ákvæði 2. gr. myndu valda því, að íslenzkir menn, sem hingað koma, verði að sýna vegbréf — þeir hafa nú flestir vegabréf, þegar þeir fara til útlanda — en svo viðurkennir hann, að bæði fyrirsögn frv. og svo hvert atriðið eftir annað beri það með sér, að með þessum „mönnum“ sé aðeins átt við útlendinga; það er sama, hvort þarna stendur „mönnum“ eða „útlendingum“. Slík röksemdafærsla er alls ekki viðeigandi, þegar reynt er að komast að niðurstöðu um það, hvernig eftirlitinu með útlendingum verði bezt komið fyrir. Viðvíkjandi hinu atriðinu, hvort rétt sé að heimta vegabréf eða skilríki eða ekki, þá er það að segja, að það er mjög mikill munur á því, eins og hv. þm. geta séð, hvort heimtuð eru vegabréf eða önnur skilríki, sem vitanlega er ekki hægt að skilja öðruvísi en vegabréf eða skilríki, sem samsvarar vegabréfi, ellegar einhver önnur skilríki, sem samsvara ekki vegabréfum. Ef þessi umþráttaða gr. væri ekki einmitt orðuð eins og hún er orðuð, þá tæki Alþingi enga afstöðu til þess, hverskonar skilríki það eru, sem heimtuð eru af útlendingum, en léti stj. um það, hvaða skilríki ætti að heimta, en eins og gr. er nú orðuð, þá liggur það í augum uppi, að það er átt við vegabréf eða önnur skilríki, sem jafngilda þeim. Þetta er sá mikli munur á því, hvort orðið vegabréf er haft eða tekið burt. Það er rökleysa að halda því fram, að Norðurlönd heimti ekki vegabréf; hv. þm. getur ekki bent á neitt land, sem ekki krefst vegabréfs, en það, sem hv. þm. virðist vera að rugla með, er það, að Norðurlönd hafa gert samning innbyrðis um það, að sérstök ferðaskírteini skuli gilda milli hinna einstöku ríkja Norðurlanda, en þessi ríki heimta öll vegabréf gagnvart öðrum þjóðum. Viðvíkjandi því atriði, sem stendur í 12. gr., að refsing verði einkum þung, ef menn stíga á land án þess að þeir hafi vegabréf eða önnur jafngild skilríki, vil ég segja það, að þetta atriði frv. er ekki rangt, og það hlýtur hv. þm. að sjá, ef hann vill fallast á rök. Þetta eftirlit, sem talað er um í 12. gr., er lögmælt samkv. ákvæðum 3. gr.; það þarf náttúrlega ekki lögmælt eftirlit með þeim mönnum, sem ætla ekki að verða hér lengur en 1–2 daga.

Þetta, sem ég hefi nú nefnt, sýnir það, að hv. þm. hefir alls ekki verið með í því, sem talað er um í lögunum, og þá er ekki von, að vel fari, þegar verið er að gera brtt. við frv.