20.02.1936
Neðri deild: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (494)
7. mál, þingsköp Alþingis
*Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Frv. þetta er samhljóða frv., sem ég flutti á síðasta þingi hér í þessari hv. d. og þá komst til 2. umr. Það komu þá þegar fram óskir um það, að stjórnmálaflokkarnir reyndu að semja sín á milli um þau atriði, sem í frv. felast og skiptar skoðanir eru um. Bjóst ég því satt að segja við, að tíminn á milli þinganna hefði verið notaður til þessara hluta, en nú hefi ég heyrt, að svo muni ekki hafa verið, og að um málið hafi ekkert frekar verið rætt, og tel ég það verr farið.
Hvað málið snertir, þá vildi ég gjarnan, að um það mætti nást samkomulag, þó vitanlega þannig, að auðveldara yrði hér eftir um afgreiðslu mála í þinginu en oft hefir viljað verða að undanförnu.
Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv. þetta á þessu stigi; það er í sama búningi og á síðasta þingi, en þá gerði ég ýtarlega grein fyrir því.
Að umræðunni lokinni legg ég til, að frv. verði vísað til allshn.