20.02.1936
Neðri deild: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (499)
7. mál, þingsköp Alþingis
*Jakob Möller:
Ég vil beina athygli hv. þdm. að þeim galla á frv., er það var flutt á síðasta þingi, og ég benti á, að frv. fæli í sér ákvæði, sem væru greinilegt brot á stjórnarskránni. Þetta stóð óhrakið þá, og stendur það enn, enda óhrekjanlegt. Ég ætla ekki að rifja upp rökin fyrir því að þessu sinni, því tækifæri mun gefast til að gera það nánar síðar. En þetta er einmitt augljósasta sönnunin fyrir því, að það er allt annað, sem vakir fyrir stjórnarflokkunum með þessu frv., en það að vernda þingræðið, því það liggur í augum uppi, að aðferðin til þess að vernda þingræðið er ekki sú að fótum troða stjórnarskrána. Það er augljóst, að allt annað liggur á bak við, þó það hafi ekki verið opinberlega játað fyrr en í síðustu ræðu hv. 2. þm. Reykv. Hann sagði þar, að ekki kæmi til mála að hafa samvinnu við andstöðuflokka stjórnarinnar um þingmálin, við þá flokka væri ekki annað að gera en reyna að halda þeim niðri. Þetta er nú andi þeirra manna, sem telja sig forvígismenn lýðræðisins, og það er alveg augljóst, að það er hinn sami einræðis- og ofbeldisandi og ríkir í þeim löndum, þar sem einræðisstefnan hefir náð hámarki sínu. Þar er það takmarkið að halda andstæðingunum niðri, jafnvel að banna þeim að vera til. Þetta er því byrjun stjórnarflokkanna til þess að ná hér algerðu einræði, það á að byrja á því að banna andstæðingunum málfrelsi, og halda síðan áfram eins og hæstv. forsrh. boðaði í sínum nýársboðskap. Það á ekki að láta staðar numið með það að svipta þm. málfrelsi, næsta sporið á að verða að hefta ræðu- og ritfrelsi manna utan þings. Þetta er í samræmi við það, sem annar stjórnarfl. hefir lýst yfir að hann ætli að beita sér fyrir, en það er að herða mjög á hegningarákvæðum laganna gagnvart opinberum skrifum um landsmál. Það á að þyngja refsingar við því, að ráðizt sé eða deilt á stjórnarvöldin fyrir það, hvernig þau stjórna landinu. Ég hefi engar yfirlýsingar séð frá jafnaðarmönnum um það, hvernig þeir taka þessum boðskap hæstv. ráðh., en það er kunnugt, að sá flokkur hefir í nálægum löndum einmitt átt drýgstan þátt í því að milda slík refsiákvæði og koma því til leiðar, að leyfðar væru yfirleitt opinberar umr. um mál þjóðanna, án þess, að yfir mönnum vofði fangelsanir og pyndingar, þó ekki verði sannaður hver stafur af því, sem skrifað væri. Það er vitanlega hægt að færa rök að því, að mönnum eigi ekki að haldast uppi með að fara með vísvitandi róg um stjórnarvöldin á hverjum tíma, en ákvæði um þetta efni er vitanlega hægt að hafa svo ströng, að í skjóli þeirra megi bæla gersamlega niður alla andstöðu gegn ríkjandi stj. Tilgangurinn bak við allt þetta er hjá stjórnarflokkunum enginn annar en sá að bæla gersamlega niður alla opinbera gagnrýni á núv. stjórnarflokka, og er sú lýðræðisstefna þessara flokka ákaflega ólík slíkum stefnum í öðrum löndum, því hún er gersamlega eins og einræðisstefnan í öðrum löndum, og það er athyglisvert, að það eru einmitt stjórnarfl., en ekki andstæðingar þeirra, sem fylgja þessari einræðisstefnu. Þetta frv. er fyrsti angi einræðisins, en stjórnarfl. ætla að færa sig upp á skaftið, því að þeir ætla blátt áfram að banna alla opinbera gagnrýni.
Hv. 2. þm. Reykv. er oft óheppinn í ræðum sínum; þess vegna er það skiljanlegt, að hann af persónulegum ástæðum vilji gjarnan láta takmarka umr. á Alþingi. Það var ekki það eina, sem hann sagði, að það þyrfti að halda stjórnarandstæðingum niðri. Hann sagði annað síðar í ræðu sinni, sem ekki var síður óheppilegt fyrir hans málstað og hverjum manni hlýtur að vera ljóst, að voru rök gegn því, sem hann vildi halda fram. Hann sagði, að Sjálfstfl. væri á móti því að hlíta venjum og reglum þingsins. En hvernig stendur þá á því, að stjórnarflokkarnir skuli nú vera að bera fram frv. um það að breyta þessum reglum? Sýnir það ekki einmitt, að það eru þessir flokkar, en ekki Sjálfstfl., sem ekki vilja hlíta þingreglum. — Hv. samþm. mínum, 2. þm. Reykv., hefir orðið það á að undirstrika hvað eftir annað það, sem lá á bak við þetta frv., en ekki átti að segja frá, en það er einræðishugur og ofbeldisstefna stjórnarflokkanna.