07.03.1936
Neðri deild: 18. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (504)
7. mál, þingsköp Alþingis
*Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég sé ekki ástæðu til þess að svara hv. 8. landsk. mörgum orðum, en út af því, sem hann vék að ræðu hv. 2. landsk., vil ég taka fram, að allshn. mun taka til athugunar þátttöku utanflokkamanna í útvarpsumr.
Hv. 8. landsk. minntist í ræðu sinni, þegar hann talaði almennt um breyt. á þingsköpunum, á bombu, sem stjórnarflokkarnir hefðu kastað út í þessu máli. En bomban er ekki frá stjórnarflokkunum, heldur frá andstæðingum stj., sem hafa haldið því fram, að með þessu frv. væri verið að taka málfrelsið af stjórnarandstæðingum. En að slíkt glamur hafi ekki við mikið að styðjast, hefir bezt sýnt sig á því, að í allshn. var gott samkomulag um að setja ákvæði, sem koma í veg fyrir, að umr. dragist úr hófi fram.
Hv. 8. landsk. reyndi að leiða rök að því, að 10. og 20. gr. frv. brytu í bága við 48. gr. stjskr. En í fyrri ræðu minni færði ég rök að því, sem hv. 8. landsk. hefir ekki tekizt að hnekkja, að orðalagið í ákvæðum 48. gr.: „og greiði þar atkvæði“ og orðalag 40. gr.: „eiga þátt í atkvæðagreiðslu“ merki nákvæmlega það sama. Ég færði þau rök meðal annars fyrir því, að þetta var upprunalega sett inn í stjskr. frá 1874; og í 11. gr. stjórnskipunarlaganna frá 1903 er í íslenzka tekstanum „greiða atkvæði“, en í danska tekstanum „deltage í Afstemningen“. Frá upphafi vega merkir þetta í stjskr. ekki annað en að taka þátt í atkvgr.
Ég vil því mega ganga út frá því, að í 40. og 48. gr. sé átt við, að þm. taki þátt í atkvgr. Kemur þá að því, sem ég sagði í frumræðu minni, að hægt er að gera það á þrennan hátt. Í brtt. þessari á þingsköpum er fjallað um einn, sem sé að neita að greiða atkv. án lögmætra ástæðna. Ég benti á, að þetta stendur skýrt í danskri löggjöf í samræmi við grundvallarlögin dönsku. Og ég vil bæta því við, að í fræðibókum, sem Knud Berlin, prófessor í lagadeild Hafnarháskóla, hefir ritað um þetta mál, hefir hann ekkert talið að athuga við að setja þau ákvæði um þetta efni, sem gilda, sem eru nákvæmlega þau sömu sem lagt er nú til, að verði hér upp tekin. Ég verð því hiklaust að halda fram, að það sé á misskilningi einum byggt, að telja þetta brot á stjskr.
Hv. 8. landsk. hélt fram, að þetta yrði lítil bót á ástandinu frá því, sem er, því að þeir, sem ekki vildu greiða atkv., gengju þá af fundi. En ég vil mega vænta þess, að hv. þm. skjóti sér ekki svo undan þingmannsskyldu sinni, að þeir gangi af fundi svo að segja á hverjum degi við atkvgr. Ég vil og benda á, að slíkt brýtur í sjálfu sér algerlega 3. málsgr. 44. gr. núgildandi þingskapa um þetta atriði, sem ég skal lesa upp með leyfi hæstv. forseta:
„Skylt er þm., hvort heldur í deild eða sameinuðu þingi, að vera viðstaddur og greiða atkv., nema hann hafi lögmæt forföll eða fararleyfi.“
Með því að bjóða sig fram til þings og hafa náð kosningu hafa þeir gengizt undir þá skyldu að taka þátt í löggjöfinni yfirleitt. Það er því hálfgerð uppreisn gegn þingræðinu í landinu að ganga af fundi á hverjum degi til þess með því að hindra framgang máls, og þá er fyrst farið að beita ofbeldi á Alþingi. Ég vil því mega vænta þess af stjórnarandstæðingum, að þeir grípi ekki til þess óyndisúrræðis, eftir að þessi breyt. er lögfest, sem nú liggur fyrir Alþingi.