07.03.1936
Neðri deild: 18. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (506)

7. mál, þingsköp Alþingis

*Jakob Möller:

Stjórnarflokkarnir hafa nú upp á síðkastið tamið sér það mjög að vitna í lýðræði og þingræði og allar slíkar fagrar hugsjónir, sem þeir ekki treysta sér til að leggja á móti í orði, og reyna þess vegna að láta líta svo út sem þeir vilji framfylgja þeim, þó að þeir í verkinu afneiti öllum slíkum hugsjónum mjög kröftuglega.

Ef maður nú í sambandi við þetta mál athugar, hvað er meint með lýðræði, þá er óhjákvæmilegt að gera sér það ljóst, að með þeirri breyt. sem hér er um að ræða að gera á þingsköpum, er stefnt alveg í þveröfuga átt við lýðræði. Lýðræði táknar það, að meiri hl. þjóðarinnar ráði löggjöfinni. Þjóðin velur sér fulltrúa til að taka sæti á Alþingi til þess að fara með þennan rétt sinn. Það er auðvitað tilgangur grundvallarlöggjafar hverrar þjóðar, sem býr við lýðræði, að engin lagasetning nái fram að ganga, nema það sé svo tryggt sem unnt er, að hún hafi fylgi meiri hl. þjóðarinnar. Fylgi meiri hl. þjóðarinnar getur ekki komið fram í þessu sambandi nema á þann hátt, að meiri hl. þm. lýsi sig fylgjandi þeirri löggjöf, sem um er að ræða.

En höfuðtilgangur þessa frv. er að koma því til leiðar, að unnt sé að setja löggjöf, sem ekki hafi fylgi meiri hl. þm., og þess vegna ekki meiri hl. þjóðarinnar.

Það er blátt áfram hlægilegt að vera að vitna til löggjafar annara þjóða, sem að vísu er talið, að hafi lýðræðið í heiðri, löggjafar, sem kemur þessu máli að öðru leyti ekkert við. Hv. frsm. allshn. vísaði til þess, að sú breyt., sem hér er aðallega um að ræða, sé í samræmi við það, sem gildir í þessum efnum í Danmörku, og í samræmi við það, sem hefir gilt áður hér samkv. l. þeim, sem hér voru sett og sniðin eftir danskri venju. En hvað kemur þetta málinu við, ef sýnt er, að það að framfylgja slíkum skilningi á l. þýðir að ganga á móti aðalhugsjónum og kenningum lýðræðisins?

Þegar þetta frv. var borið fyrst fram, þá var slegið á þá strengi af stjórnarflokkunum, að það miðaði fyrst og fremst að því að takmarka hið „óstjórnlega málæði“ andstöðuflokka stj. Vitanlegt var, að þetta var ekkert annað en fyrirsláttur og ekki höfuðtilgangur lagabreyt.; eins og nú er komið á daginn, er ágreiningsefnið ekki það, sem miðar að því að takmarka umr. á þingi, heldur þau ákvæði, sem snerta formlega meðferð á málum og fullnaðarsamþykkt þeirra á þingi. Það sem blátt áfram er miðað að, er að breyta kröfunum, sem gerðar eru í sambandi við fullnaðarsamþykkt lagasetningar á Alþingi.

En af því að hv. frsm. meiri hl. vék að því, hvernig andstöðuflokkar stj. hefðu tekið þessu frv. í sambandi við þann rökstuðning, að það miðaði að því að takmarka umr. á þingi, þá vil ég benda á það, að mjög eðlilegt var, að andstöðuflokkar stj. tækju slíkri nýbreytni fálega, þegar því var opinberlega kastað fram, að brýna nauðsyn bæri til að takmarka málfrelsi þm. Því að öll takmörkun á málfrelsi þm. stefnir líka í þveröfuga átt við tilgang lýðræðis. Og þess vegna var það sjálfsagt og skylt þeim mönnum, sem virkilega halda lýðræðið í heiðri, að rísa hart gegn þeirri kenningu, að það væri nú orðin brýnasta nauðsynin í sambandi við löggjöfina að takmarka málfrelsi þm. á þingi. Hinsvegar hefir það sýnt sig, að þau ákvæði frv., sem að þessu lúta, eru miklu minna virði en ráða hefði mátt af því, sem var látið fylgja frv. af hálfu stjórnarflokkanna, þegar það kom fram. Því að eins og það var fram borið, var í raun og veru enginn munur á ákvæðum þess og gildandi löggjöf annar en sá, að bæta nýrri heimild til forseta til þess að bera upp fyrir þingdeild eða sameinuðu þingi till. um það, að umr. um einstök mál skuli takmörkuð fyrirfram, án þess að skera hana niður. Það er í raun og veru ekki farið fram á annað en að breyta dálítið framkvæmd á því, sem þegar er heimild til í þingsköpum, sem sé að takmarka umr., ef meiri hl. þm. fellst á. Þessi breyt. er því ákaflega lítils virði, sem sjá má líka á því, að n. hefir nú öll orðið sammála um að mæla með því, að þau ákvæði verði ekki samþ., því að n. gengur lengra en frv. upprunalega, þar sem hún gerir ráð fyrir að hægt sé að takmarka ræðutíma hvers einstaks þm.

Ég tel þessar breyt. óheppilegar. Ýmsir stjórnarandstæðingar hafa ekki fundið ástæðu til þess að leggja á móti þeim, sem er auðvitað af því, að þeir telja þær óverulegar. En það er hægt að færa ríkar sannanir fyrir því, að það sé óhugsandi, að stjórnarflokkarnir telji í alvöru, að stjórnarandstæðingar hafi misbeitt aðstöðu sinni á þingi með því að teygja umr. og tefja þingstörf. Ef borin er saman framkoma núverandi stjórnarandstæðinga og fyrrverandi stjórnarandstæðinga á fyrri þingum, þá kemur í ljós, að umr. hafa teygzt margfalt á við það, sem tíðkast í tíð núverandi stj. Ég skal færa orðum mínum stað með því að vísa í skýrslu, sem birt er í þingtíðindunum um ræðuhald einstakra þm. á hverju þingi. Í þeim samanburði kemur í ljós það sem ég hefi sagt.

Ég hefi tekið tvö kjörtímabil, 1924–'27 og 1928–'31, og tekið saman ræðufjölda og ræðulengd 4 þm. þeirra, sem mest og lengst hafa talað úr hvorum herbúðunum fyrir sig, stjórnar og stjórnarandstöðu. Árin 1924–'27 fóru með völdin þeir menn, sem mynda nú í aðalatriðunum stjórnarandstöðuna, en 1928–'31 þeir, sem nú skipa eða ráða stj. Árið 1931 eru bæði vetrarþingið og sumarþingið talin með, sem gerir samanburðinn óhagstæðan fyrir þáverandi stjórnarandstæðinga. Þá voru ræður þessara 4 fulltrúa, sem ég hefi gert skýrslu um, að lengd 2574 dálkar í Alþt. Árið 1924 var engin skýrsla gerð um ræðulengd. En ræðulengd 4 stjórnarandstæðinga á þessum 3 þingum af kjörtímabilinu 1924–'27 var 3658 dálkar, eða meira en eitt þúsund dálkum lengri en ræðuhöld stjórnarandstæðinga á seinna tímabilinu.

Það er af þessu alveg augljóst, að núverandi stjórnarflokkar þurfa sízt að kvarta yfir því, að núverandi stjórnarandstæðingar misnoti málfrelsi sitt í samanburði við það, sem þeir sjálfir gerðu meðan þeir voru í stjórnarandstöðu. Svipað hlutfall kemur út ef tekinn er ræðufjöldinn. Á fyrra tímabilinu eru þær hjá þáverandi stjórnarandstæðingum 1830 öll árin til samans, en á seinna tímabilinu hjá núverandi stjórnarandstæðingum 1660. Það er þess vegna alveg auðséð, að um málþóf bera núverandi stjórnarflokkar svo langsamlega af núverandi stjórnarandstæðingum.

Þetta styður enn þá skoðun, að það hefir ekki getað verið mitt höfuðatriði eða réttmætt höfuðatriði a. m. k. hjá þeim, sem beittu sér fyrir, að þetta frv. var borið fram, að koma í veg fyrir málþóf. Þessi samanburður nær ekki til allra síðustu þinga, með því að ekki liggja fyrir skýrslur nema frá einu þingi síðan síðustu kosningar fóru fram. En 1934 var ræðulengd þeirra 4 stjórnarandstæðinga, sem mest töluðu, 610½ dálkur, en á þinginn 1927 1428½ dálkur, eða sem sagt töluvert meira en helmingi meiri ræðuhöld, sem þáverandi stjórnarflokkar standa fyrir. Það skal játað, að þingið 1934 var nokkru styttra en þingið 1927, en ekki nándar nærri eins og þessum mismun nemur. Það var líka fyrsta þing eftir kosningar, og hefði mátt búast við töluvert meiri ræðuhöldum hjá stjórnarandstæðingum en annars.

Það er því deginum ljósara, að þessi fyrirsláttur stuðningsmanna þessa frv. um það, að frv. sé borið fram í þeim tilgangi að hamla óhæfilegu málþófi stjórnarandstæðinga, á ekki við hin minnstu rök að styðjast. Hitt er líka augljóst eins og ég sagði áður, að höfuðtilgangurinn með frv. er allur annar.

Því er nú borið við, að tilgangurinn með breyt. á ákvæði viðvíkjandi samþykkt mála sé einnig sá, að greiða fyrir þingstörfum, vegna þess að stjórnarandstæðingar grípi til þess ráðs til að tefja þingstörfin, að taka ekki þátt í atkvgr., þegar svo ber undir. En ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að það er að sjálfsögðu ekki höfuðtilgangurinn með slíkri framkomu stjórnarandstæðinga að tefja þingstörfin. Það er blátt áfram tilgangurinn að hindra framgang mála, sem þeir telja skaðleg og vilja beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir, að nái samþykki. Og er auðvitað, að stjórnarandstaðan hefir fullan rétt til að beita hverri löglegri aðferð, sem hún ræður yfir, til að hindra framgang máls.

Hv. frsm. meiri hl. sagði, að óeðlilegt væri, að þm. gætu skotið sér undan að greiða atkv. Því fer fjarri. Það er ekkert óeðlilegra en hitt, að hann greiði atkv. á móti ákveðnu máli. Það er því ekki annað en rökþjófnaður, er hv. þm. segir þetta. Það er fullkomlega réttmætt að skjóta sér hjá því að greiða atkv. og í fullu samræmi við tilgang lýðræðisstefnunnar, því að ekkert mál á að ganga fram, nema tryggt sé, að það hafi fylgi meira hl. þings og þjóðar.

Frv. miðar að því fyrst og fremst að brjóta niður tryggingar þær, sem til eru í gildandi l. gegn því, að minnihlutaflokkur geti komið fram löggjöf, sem ekki nýtur fylgis meira hluta þjóðarinnar.

Ég skal svo ekki teygja umr. um málið, en vil aðeins vekja athygli á tveim atriðum í brtt. n., sem mér virðast geta verið nokkuð vafasöm. Það á raunar aðallega við um annað atriðið.

6. brtt. n. á þskj. 101 er um það, hvernig skipa skuli autt sæti í Ed., ef þm. fellur frá. Er svo fyrir mælt, að sætið skuli skipað af þeim flokki, er þm. tilheyrði. Mér virðist þetta vafasamt. Eðlilegra væri að láta þetta fara eftir því, hvort uppkosning, sem farið hefir fram, hefir breytt styrkleikahlutfalli flokkanna. Ef flokkur hefir misst rétt til að hafa jafnmarga menn í d. og áður, ætti hann ekki að fá manninn, heldur sá flokkurinn, sem við endurkosningu hefir fengið flest atkv. Ég vænti þess, að n. taki þetta til athugunar.

Hitt atriðið er í sambandi við 11. brtt. n. Þar segir svo: „Eigi má þó, meðan nokkur þm. kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma við neina umræðu meira en svo, að hún standi skemur en 3 klukkustundir alls“. Þetta er leiðinlegt orðalag. Maður þarf lengi að velta þessu fyrir sér til þess að skilja það. Sannleikurinn er sá, að orðunum „meira en“ er blátt áfram ofaukið, og er einfaldasta ráðið að fella þau alveg niður.