12.03.1936
Neðri deild: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
7. mál, þingsköp Alþingis
*Pétur Ottesen:
Það urðu endalok þessa máls á síðasta þingi, að það var þá dregið til baka með það fyrir augum, að unnið yrði að því á milli þinga að fá samkomulag milli þingflokka um þau atriði frv., sem þá var mestur ágreiningur um. Nú var því lýst yfir af hv. flm., 1. þm. Árn., við 1. umr. málsins, að úr þessu samstarfi flokkanna um frv. hefði ekkert orðið. En hinsvegar hefir í hv. allshn. orðið samkomulag á milli fulltrúa stjórnarflokkanna og fulltrúa Sjálfstfl. um sum af þeim ágreiningsatriðum, er deilt var um á síðasta þingi. Þó eru enn eftir nokkur atriði í frv., sem sjálfstæðismenn telja, að rekist á ákvæði stjskr.; um þessi atriði hefir því ekki náðst samkomulag við fulltrúa Sjálfstfl., hvorki í allshn. eða í þd. Þessi skoðun Sjálfstfl. var mjög vel og ljóslega rökstudd við 2. umr. af hv. 8. landsk. og hv. 3. þm. Reykv. Ágreiningurinn er byggður á því, að einstök ákvæði þessa frv. samrýmast ekki ákvæðum stjskr.; t. d. ákvörðun frv. um, að þeir þm., sem sitja hjá við atkvgr., geti talizt greiða atkvæði eða taka þátt í atkvgr. Hv. l. þm. Árn. vill skýra þetta þannig, að þeir, sem sitja hjá við atkvgr., skuli teljast þátttakendur í atkvgr. — Það er nú sennilegt, að skilningur sjálfstæðismanna á þessu atriði, eins og hann kom fram við 2. umr., verði ofurliði borinn, og að þetta frv. verði knúð fram, enda þótt þetta atriði sé í fullu ósamræmi við stjskr. En þó að þessu sé sleppt, þá get ég ekki betur séð en að á öðrum vettvangi í frv. hv. 1. þm. Árn. sé einnig skýlaust stjórnarskrárbrot. Það er í 10. gr. frv., eins og það var upphaflega, en nú í 16. gr., eins og það var afgr. við 2. umr. Í 16. gr. frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Þá er Alþingi, sem nú segir, skipar eina málstofu, þarf til þess, að gerð verði fullnaðarályktun um mál, meira en helmingur þm. að vera á fundi og eiga þátt í atkvgr.“ En í 40. gr. stjskr. segir svo um þetta: „Þegar Alþingi skipar eina málstofu, þarf meira en helmingur þm. úr hvorri þingd. að vera á fundi“ o. s. frv. Mér virðist, að í 16. gr. frv. sé því gersamlega brotið í bág við þessi ummæli stjskr. Og auk þess er hér einnig brotið í bág við núgildandi þingsköp; því að þar stendur í 26. gr., að í sameinuðu Alþingi „þurfi meira en helmingur þm. úr hvorri þingd. að vera á fundi“ til þess, að fullnaðarákvörðun verði tekin um mál.
Við nánari athugun á þessu máli sé ég, að þetta hefir skolazt til í sérprentun þeirri, sem gerð hefir verið af þingsköpum Alþingis, því að hún inniheldur sama orðalag og hv. 1. þm. Árn. hefir tekið upp í frv. sitt. En þetta er algerlega gagnstætt ákvæði stjskr. og núgildandi lögum um þingsköp, eins og þau eru birt í stjórnartíðindunum. Ég hefi þess vegna flutt brtt. um það að inn í þessa frvgr. verði tekið samskonar ákvæði eins og er í núgildandi þingsköpum, og sem er í samræmi við ákvæðin í 40. gr. stjskr., og það leiðir vitanlega af sjálfu sér, að það verður að samræma stjskr. og þingsköpin að þessu leyti, þar sem þetta ákvæði er alveg skýlaust og getur ekki valdið neinum ágreiningi.
Þá hefi ég ennfremur flutt litla brtt. við 24. gr. þessa frv., um það, að felld verði burt úr 3. málsl. fyrri efnisgr. orðin: „meira en“, sem mér virðist vera alveg ofaukið í þessu sambandi, og sé bara hortittur í málinu, sem getur ef til vill raskað réttri hugsun; en þegar þessi orð eru felld burt, þá verður málsl. svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Eigi má þó, meðan nokkur þm. kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma við nokkra umr. svo að hún standi skemur en 3 klukkustundir alls.“
Ég hefi ekki flutt fleiri brtt. við þetta frv.; ég er samþykkur þeim brtt., sem hér liggja fyrir, að öðru leyti en því, sem kom fram í ágreiningi þeim, sem sjálfstæðismenn hafa gert að því leyti, að þeir álíta ekki, að sú breyt., sem gerð er með frv. á atkvgr., samræmist ákvæðum stjskr. um sama efni, auk þess sem þeir álíta, að af þeirri breyt. geti líka leitt ýmislegt, sem sé ekki heppilegt eða rétt að ýta undir, en af því að það mál er orðið svo þrautrætt, þá sé ég ekki ástæðu til að fara frekar út í það.
Til viðbótar þessu vil ég þó minnast á það ákvæði þessa frv., sem gerir ráð fyrir, að lagt verði í hendur forseta, mikið meira en verið hefir, vald yfir umr. á Alþingi, þannig að hann hefir það mjög mikið á sínu valdi, að vísu innan vissra takmarka, hvernig umræðum skuli hagað að ýmsu leyti, og getur skorið þær niður ýmist með ákvörðun um það fyrir fram eða á hvaða stigi máls, sem er, svo að hann hefir umr. yfirleitt mjög mikið á valdi sínu. Um þetta atriði varð þó samkomulag í n., enda fengust ýmsar lagfæringar á frv. Samkv. frv. átti t. d. skerðing á umr. ekki að neinu leyti að ná til ráðh.; þeir áttu að hafa óskertan umræðurétt, þótt umræðuréttur þm. væri skertur; innan n. fékkst samkomulag um það, að það sama skyldi gilda um þá í þessu efni eins og um aðra þdm., og er það vitanlega spor í rétta átt, að það skuli hafa tekizt að fá þetta atriði lagfært.
En ég vil benda á það, að ef slíkt vald er í höndum harðdrægs forseta, sem vitanlega er skipaður af meiri hl. Alþingis og hefir þess vegna hin pólitísku ráð yfir gangi mála á Alþingi miklu meira í sinni hendi heldur en áður var, þá hefir forseti mjög mikið vald í þessu efni, ef hann vill beita því. Ég vil vekja athygli hv. þdm. á því, að þótt slíkt vald hafi komizt í hendur forseta í þingum nágrannaþjóðanna, t. d. í Danmörku, Noregi og ef til vill í Svíþjóð, þá er þar allt öðru máli að gegna vegna þess, að forsetarnir þar eru valdir með allt öðrum hætti heldur en hér; hér er það svo, að það er meirihlutavaldið á Alþingi, sem ræður því algerlega á hverjum tíma, hver skipar forsetasæti, en í þessum löndum, sem ég nefndi, er farið eftir stjórnmálaflokkum þeim, sem sæti eiga á þinginu, án tillits til meirihlutavaldsins, og í Danmörku, ætla ég, að þessu sé þannig háttað, að aðalforsetinn er valinn af stærsta þingflokknum, en hann þarf vitanlega ekki að vera ráðandi þingflokkur. Eftir þessari reglu yrði þetta þannig hjá okkur, að Sjálfstfl. ætti að skipa fyrsta forseta. Þegar tekið er tillit til þess, að minnihluta flokkum á Alþingi er mjög mikill styrkur í því að eiga mann í forsetastól, þá liggur það í augum uppi, að völd hans má ekki miða við völd forsetanna í nágrannaþingunum, því að kosning þeirra byggist á allt öðrum grundvelli heldur en kosning á forsetum Alþingis, eins og ég minntist á áðan. Ég vil benda á þetta atriði í sambandi við það, að það getur komið á daginn, að það sé ekki áhættulaust fyrir minni hl. á þingi í hvert skipti að hafa lagt eins mikið vald í hendur forseta og gert er með þessari breytingu, nema því aðeins að sú breyting fylgi í kjölfarið, að allir flokkar þingsins fái að ráða einhverju um það í sameiningu, hverjir verði skipaðir forsetar.
Það er sýnilegt, að þetta frv. gengur fram, og það er óneitanlega margt í því, sem stefnir til bættrar skipunar frá því, sem nú er, enda kemur þetta fram sem afleiðing af þeim breyt., sem gerðar hafa verið á ýmsum lögum, og það er því ekki annað, sem skilur í þessum málum, en það sem ég gerði grein fyrir við 2. umr., og það, sem ég hefi nú bent á í þessu sambandi.