01.04.1936
Efri deild: 39. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (540)

7. mál, þingsköp Alþingis

Magnús Guðmundsson:

Það er ekkert annað en tvíverknaður að ræða málin bæði við 2. og 3. umr., ef hægt er hjá því að komast. Auk þess veit hv. þm. ekki, hvernig sú brtt. yrði, sem fram kynni að vera borin. Það gæti hugsazt, að hún yrði þannig, að ekki væri hægt að samþ. hana, eftir að 2. umr. er búin. Ég sé ekki, að það geti gert nokkuð til, þótt þessari umr. sé frestað um einn dag, þegar í n. liggja stórmál, sem allir flokkar eru sannnála um, að eigi að ganga fram á þessu þingi. Það er ekkert annað en óþarfa stífni að vilja ekki verða við þeirri beiðni minni að taka málið út af dagskrá, og ég held fast við þá ósk mína, enda sagði hæstv. forseti hér í gær, að hann óskaði eftir því, að n. bæri sig saman, en til þess hefir ekki unnizt tími ennþá.