07.04.1936
Sameinað þing: 11. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (55)

1. mál, fjárlög 1937

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Í ræðu sinni fyrir skömmu benti hv. þm. V.-Húnv. á það sem aðalbjargráðið í kreppunni að lækka gengi krónunnar. Þar með væru öll vandræði atvinnurekenda leyst og atvinnuleysið úr sögunni. Án þess að ég ætli að fara ýtarlega út í gengismálið, get ég ekki stillt mig um að benda á það, hve fljótfærnisleg og vanhugsuð þessi skoðun er. Afleiðingarnar liggja í rauninni í augum uppi. Allar skuldir ríkisins í erlendum gjaldeyri myndu hækka að sama skapi og gengið lækkar, svo að ríkissjóður yrði að auka tekjur sínar stórkostlega með nýjum sköttum. Sama er að segja um skuldir bankanna, hækkunin á erlendum skuldum þeirra hlyti að leiða til þess, að vextir myndu hækka. Allar aðkeyptar nauðsynjavörur hlytu að hækka í verði. Ég veit, að aðalvon þeirra manna, er berjast fyrir gengislækkun er sú, að kaupgjald lækki, þ. e. þeir treysta því, að samtök verkalýðsins fái ekki hækkað kaup hans eftir því, sem dýrtíðin vex.

Ég held að þetta séu falsvonir. Ég býst við því, að samtakamáttur verkalýðsins sé það mikill, að hann geti hrundið þessari kauplækkunarárás, eins og svo mörgum öðrum.

En hver yrði nú afleiðingin fyrir bændur, ef verkamönnum tækist ekki að fá hækkað kaup sitt í hlutfalli við gengislækkunina? Nú sem stendur er aðalmarkaður bænda við sjóinn. Þ. e. a. s. sá múgur manna þar, sem selur vinnu sína fyrir ákveðið kaup, og ef kaupið er fellt með gengislækkun, þá minnkar að sama skapi það, sem þeir geta keypt af framleiðsluvörum bændanna, svo að með gengislækkun og þar af leiðandi kauplækkun herða bændur aðeins snöruna að sínum eigin hálsi. Ég held það sé mála sannast, að gengislækkun sé álíka haldgott bjargarráð eins og ef kaldur ferðamaður að vetrarlagi pissar í skóinn sinn til þess að ylja á sér tærnar. Það getur verið bót að því í bili, en ég hygg, að það muni samt fljótlega hefna sín.

Í ræðu minni í gær benti ég á það, hve samvizkulaust athæfi það er sem áhrifamenn Sjálfstfl. hafa beitt gegn fiskimálanefnd. Á meðan n. er að leita nýrra markaðsmöguleika og reyna að vinna nýja markaði og leita fyrir sér með nýjar verkunaraðferðir á fiski, þá er hún rógborin, hrúgað upp gróusögum um hana og allt hugsanlegt gert til þess að spilla fyrir árangri af störfum hennar. Ég benti einnig á það í gærkveldi, hversu ástatt mundi um S. Í. F., ef það hefði verið beitt sömu vopnum. Ef — þegar það var að störfum sínum — hefði verið hleypt upp fundum í þeim tilgangi að gera starf þess tortryggilegt og skapa andúð gegn því og ef blöð stjórnarliða hefðu fyllt dálka sína af slúðri og rógi um framkvæmdir þess. Ég hygg að þeim sömu mönnum, sem hafa beitt þessari aðferð gegn fiskimálanefnd, hefði þótt slíkt hin mesta óhæfa og ég tel einnig, að svo hefði verið. Ég hefði kosið, að fullt samkomulag væri á milli þessara tveggja aðilja, og ég hefi borið þá von í brjósti, að svo mætti verða, því verkefnin eru nægileg fyrir þá báða, og má í því sambandi minna á það, að sölusambandið hefir ekki snúið sér að því enn, þótt ég voni, að það muni gera það innan skamms, að fá fasta umboðsmenn í þeim löndum, sem mest kaupa af óverkuðum saltfiski, og á ég þar fyrst og fremst við Danmörku og England, og þó einkum við England, því nú hafa Englendingar fengið hækkaðan kvóta sinn á Spáni og þurfa að kaupa fisk frá öðrum þjóðum til þess að geta fyllt hann, og þess vegna ætti það að vera mikilvægt atriði að geta tryggt það að sá blauti fiskur væri keyptur hér.

Hv. 6. þm. Reykv. flutti skörulega ræðu hér áðan, og þótt ég telji ekki í raun og veru ástæðu til þess að skipta orðum við þennan hv. þm. nú fremur en endranær, þá voru samt nokkur atriði í þessari ræðu, sem ég tel rétt að drepa á með nokkrum orðum. Hann notaði að vanda allstór orð, og snjöll á stundum. Kvað hann upp einskonar útlegðardóm yfir mér, að því, er mér skildist, ekki eingöngu úr hinu pólitíska lífi þjóðarinnar, heldur vildi hann jafnvel dæma mig útlægan af landi hér. Það er til gamalt máltæki, sem segir, að þeir lifi lengst, sem með orðum eru vegnir, og hvort sem sá málsháttur á hér við eða ekki, þá er það víst, að ég á ekki aðra ósk betri mér til handa heldur en þá, að ég geti sem lengst hagað störfum mínum þannig, að ég hljóti jafnan last hans fyrir því það er nú einu sinni þannig, að last sumra manna er á borð við lof góðra manna og réttsýnna.

Hann sagði, að ég hefði farið með blygðunarlaus ósannindi, þegar ég sagði frá sendiförinni til Ameríku. Nú veit hann samt, að það, sem ég sagði um það, var allt rétt og eftir staðfestum fundarbókum.

Hinn 4. júlí flutti Jón Árnason till. um að hafizt yrði handa um undirbúning á saltfisksölu til Suður-Ameríku. — En það sýndi hv. þm. Ísaf. áðan, hve hrapalega gamla union vanrækti að athuga markaðsmöguleika jafnvel svo, að þeim, sem skrifuðu henni, var ekki einu sinni svarað. — Þann 15. ágúst flutti svo Magnús Sigurðsson till. um það, að maður væri sendur til Suður-Ameríku, og það var samþ., og Thor Thors var sendur. Ég nefndi ekki nafn mannsins, en ég talaði um þann árangur, sem orðið hefði af ferðinni og sem sýndi, hvers mætti vænta af því í framtíðinni. En það hörmulega við þetta er að ekki skyldi vera hafizt handa áður en gjaldeyrisvandræði og markaðsvandræði voru dunin yfir.

9. okt. flutti svo Héðinn Valdimarsson till. um að senda mann til Norður-Ameríku og Kúba í sömu erindum. Þetta er innfært í fundabók og undirskrifað bæði af formanni og ritara, óvefengt og athugasemdalaust af öllum, og það þýðir ekki að þyrla upp neinu reyki um það, að þetta séu ósannindi, og það er næsta óviðkunnanlegt, að slíkt skuli vera gert af þeim manni, sem veit eins vel um þetta eins og hv. 6. þm. Reykv., sem sjálfur á sæti í stj.

Þá staðfesti hv. 6. þm. Reykv. það, sem ég sagði um sölutilraunina á Steady-farminum, þótt hann segði, að ég hefði sagt það ósatt. Hann sagði, að það væri ekki rétt, að Kristján Einarsson hefði fengið aðeins einn umboðsmann vestra, heldur hefði hann fengið þrjá umboðsmenn eða 4, ef sá í Kúba er talinn með. En ég sagði einmitt í ræðu minni í gær, að farminum hefði átt að skipta á milli þriggja umboðsmanna, þannig að þeir fengju samtals 130 tonn, en 70 tonn voru ætluð frjáls til sölu. Hitt er svo annað mál, að aðeins einn af þessum umboðsmönnum seldi 45 tonn, en hinir ekkert, og að salan á þessum 40 tonnum brást af þeim ástæðum, sem ég greindi. Ég sé ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum, það sem ég sagði í ræðu minni í gær var í raun og veru staðfest af ræðu hv. 6. þm. Reykv.

Það hefir enginn hreyft hnjóðsyrðum að þeim Thor Thors og Kristjáni Einarssyni fyrir afskipti þeirra af saltfiskssölu eða fyrir þær tilraunir, sem þeir hafa gert vestunhafs til að vinna markað fyrir saltfisk. Þeir eru sjálfsagt mjög kunnugir saltfisksölu, en þeir eru engu kunnugri sölu á öðrum fiski heldur en tóbakssalinn, sem nú er vesta og mest hefir verið um rætt; hins vegar álíta margir, að tóbakssalinn sé engu óslyngari kaupsýslumaður heldur en hver hinna sem er.

Þá skildist mér, að hv. fl. þm. Reykv. væri mjög móðgaður af því, að ég hefði ekki nefnt alla stjórnendurna, en ég veit ekki, hvers vegna hann ætti að vera móðgaður af því, ef það er ekki af því, hverja ég nefndi, en þeir sem ég nefndi, voru Sigurður Kristjánsson og Jón Kjartansson, og ef hann telur sig móðgaðan af því, að þessir eru nefndir, þá verður hann að gera það upp við sig, hvort honum finnst það vegsauki eða hnekkir fyrir sölusambandið, að þessir menn skulu eiga sæti í stjórn þess. Mér finnst það eðlilegt, að Jóhann Jósefsson og Kristján Einarsson eigi sæti í stjórninni, en hitt þykir mér hlálegt, að ég ekki segi grátlegt, að menn eins og Sigurður Kristjánsson og Jón Kjartansson skuli vera í stjórninni, því ég hygg, að þeir hafi minna til brunns að bera en margir aðrir, en ég hafði ekki meint það sem neina móðgun fyrir félagið, þótt ég nefndi þessi nöfn, en ef hann álítur, að það sé svo, þá hann um það.

Þá sagði hann, að sölusambandið hefði snúið sér til mín sem ráðh. og sótt um söluleyfi og styrk fyrir Steady farminum og að ég hefði með því að neita þessu eyðilagt sölumöguleikana í Norður-Ameríku. En ef þetta væri rétt, þá væri ég ekki einn í sökinni, og er nú rétt að gera sem bezta grein fyrir þessu atriði.

Það er rétt, að fisksölusambandið sótti um styrk í þessu skyni. Það sótti um útflutningsleyfi og styrk fyrir allt að 200 tonnum og sagði, að það væri samkv. till., sem hefði verið samþ. stjórnarfundi í sölusambandinn þann 8. febr. Nú skal ég með leyfi hæstv. forseta lesa hér upp till., sem samþ. var á stjórnarfundi sölusambandsins þann dag. Till er frá Jóni Árnasyni og er þannig: „Þar sem fiskimálanefnd hefir undanfarið haft með höndum tilraunasendingar á freðfiski til útlanda og fær framvegis fé til slíkra tilrauna, álítur stjórn S. Í. F. eðlilegt, að fiskimálanefnd annist sölu á tilraunasendingum af freðfiski til Norður-Ameríku, og er fús til þess að greiða fyrir slíkum viðskiptum, með því að mæla með við umboðsmenn sína, að þeir aðstoði fiskimálanefnd við þessar framkvæmdir eftir því, sem hún kann að óska.

Þessi till. var samþ. á stjórnarfundi S. Í. F. þann 8. febr. með 4:3 atkv. Ég ætla, að um þetta þurfi ekki að fara fleiri orðum. Sjálf stjórn sölusambandsins, sem í augum hv. 6. þm. Reykv. er óskeikult æðsta vald, telur það eðlilegt, að það sé fiskimálanefnd, sem hafi þessa sölu með höndum, og vill mæla með því við umboðsmenn sína að þeir styðji fiskimálanefnd eftir því, sem hún óskar.

Á sama fundi var borin fram till. þessi frá þeim Sigurði Kristjánssyni, Kristjáni Einarssyni og Jóni Kjartanssyni: „Þar sem ekki hefir tekizt að ná samkomulagi við fiskimálanefnd um sendingu á frystum fiski til Ameríku, þá felur stjórn S. Í. F. framkvæmdastjórum sínum að sækja nú þegar um útflutningsleyfi og styrk, samanber lög fyrir fiskimálanefnd, fyrir allt að 200 tonnum af frystum fiski til sölu til Ameríku og gera allar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til þess að hrinda þessu máli í framkvæmd hið skjótasta,

Þessi till. var samþ. með 3:2 atkv., en 2 greiddu ekki atkv. Síðan skrifa framkvæmdastjórar S. Í. F. mér sem ráðh. og biðja um styrk og útflutningsleyfi samkv. þessari till., en láta ekki getið fyrri till., sem samþ. var, og það varð beinlínis að heimta af þeim þá till., sem ég las áðan, þar sem talið er eðlilegt, að fiskimálanefnd hafi með höndum allar framkvæmdir í þessu efni. Þetta held ég, að sé sæmilega ljóst hverjum meðalgreindum manni. Sjálf stjórn S. Í. F. telur það sjálfsagt og eðlilegt, að fiskimálanefnd hafi þessa starfsemi með höndum, og leggur til, að umboðsmenn sínir aðstoði hana eftir föngum. Þetta er heldur ekki þakklætisvert, það er ekki nema sjálfsagt, að þeir snúist vel við og geri eins og fyrir þá er lagt í þessu efni.

Ég get látið þetta nægja viðvíkjandi ræðu hv. 6. þm. Reykv., en af því að hann hefir tekið að sér að vera sjálfkjörinn málsvari sjávarútvegsmanna gegn ágangi stjórnarflokkanna, sem vilja taka þá kverktaki og fleygja þeim í dyflissu –hann notaði þessi biblíulegu orð — þá held ég, að það sé rétt að drepa hér á till., sem ég ætla, að séu bornar fram af hv. 6. þm. Reykv. og eiga væntanlega að sýna vilja þess hluta Sjálfstfl., sem fylgir honum að málum. 1. till. þarf ég ekki að lesa, hún er áskorun til Alþingis um að leggja fiskimálanefnd niður og láta S. Í. F. taka við störfum hennar. — 2. till. er svo, með leyfi hæstv. forseta: „Fundurinn telur eðlilegt, að framkvæmdastjórar S. Í. F. sjái um sölu á öllum fiski, sem félagsmenn þurfa að selja fyrir sig, og í hvaða ástandi, sem hann er. Einnig telur fundurinn, að framkvæmdastjórar félagsins hafi bezt skilyrði til að leysa sölu vel af hendi og með hóflegum kostnaði fyrir fiskeigendur. Felur því fundurinn stjórninni að undirbúa og leggja fyrir næsta aðalfund þær breytingar á félagslögum, að S. Í. F. skuli sjá um sölu á fiskframleiðslu félagsmanna í hverju verkunarástandi, sem er.“ Hv. 6. þm. Reykv. drap mjög á það í ræðu sinni, að ríkisstj. hefði verið með þann bakþanka að taka upp einkasölu á salfiski. En þessi till. gengur miklu lengra, og hér á að fela framkvæmdastjórum S. Í. F. eða með öðrum orðum hlutafélögunum Alliance og Kveldúlfi þessa einkasölu. Till. segir, að fundurinn telji það eðlilegt, að framkvæmdastjórar S. Í. F. sjái um sölu á öllum fiski félagsmanna í hvaða verkunarástandi, sem hann er, hvort sem hann er frosinn, hertur eða ísaður eða nýr, og hvort sem er heldur á útlendan eða innlendan markað, eins og t. d. til neyzlu hér í Reykjavík, og úthluta þeim leyfum öllum, sem veitt kynnu að verða. Það er að segja sú rammasta einkasala, sem hægt er að hugsa sér, en það eru þessir sjálfvöldu framkvæmdastjórar, sem eiga að hafa þessa einkasölu með höndum. — Ég get ekki hugsað mér öllu vanbugsaðri till. en þessa. Ég vil líka minna á, að þegar S. Í. F. var endurreist, að þá var það fram tekið í lögum þess, að markmið þess væri að selja saltfisk til útlanda, og því var alls ekki hreyft, að það væri heppilegt að sölusambandið hefði annað með höndum. Þessi till., sem ég las hér, er líka órækur vottur þess, að þeir eru búnir að finna, að það er ekki hægt nema með því móti, að lögunum sé breytt.

Þá var enn ein till., sem kom fram á þessum sama fundi. Hún var frá hv. þm. N.-Ísf., en ekki frá hv. 6. þm. Reykv., og var þannig, með leyfi hæstv. forseta: .,Í því skyni að hægt verði að greiða fiskeigendum innan Sambands íslenzkra fiskframleiðenda andvirði saltfiskjarins jafnóðum og hann er afhentur á skip til útflutnings, skorar fundurinn fastlega á Alþingi það, er nú situr, að fela ríkisstjórninni að taka fyrir hönd ríkissjóðs ábyrgð á öllum þeim halla, sem orsakast kann af gengissveiflum, greiðslutálmunum og öðrum orsökum í þeim markaðslöndum, sem S. Í. F. selur fisk til.“

Hér er ekki verið að skera við neglur sér. Fyrst á að fá þessum 3 sjálfvöldu framkvæmdarstjórum í hendur einræðisvald um alla sölu á fiski, og svo á ríkisstjórnin að taka ábyrgð á öllum þeim halla, sem kann að verða af gengissveiflum og greiðslutálmunum, og ekki nóg með það, heldur líka á öllum þeim halla, sem verða kann af öðrum ástæðum, hverjar svo sem þær eru. T. d. ef þessum háu herrum dytti í hug að selja einhverju firma, sem ekki gæti borgað, þá er það ríkisstjórnin, sem á að bera ábyrgðina, en ekki þeir sjálfir. Þeir eiga alltaf að vera ábyrgðarlausir fyrir halla af sölu, hverjar sem orsakir þess halla eru.

Þetta er í fáum dráttum mynd af því átstandi, sem þeir óska, að sé ríkjandi í þessu máli og á öðrum sviðum atvinnulífsins. Nokkrir sjálfvaldir stórlaxar, sem fari með framkvæmdirnar og hirði ágóðann, þegar hann gefst, en hallinn lendi svo á bönkum landsbúa svo lengi sem þeir sligast ekki algerlega undir þeim.