01.04.1936
Efri deild: 39. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í B-deild Alþingistíðinda. (550)

7. mál, þingsköp Alþingis

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Tveir hv. þdm., sem hafa talað, hafa látið í ljós undrun sína yfir því, að umr. um þetta mál skuli ekki vera frestað. En nú er auðsætt að útvarpsumr. um fjárl. liggja fyrir, og verður því að hraða málinu, eigi það að komast af fyrir páska. Þetta má eins athuga milli umr., og er e. t. v. ekki rétt að vera að svara því, vegna þess að það er auðsjáanlega borið fram til þess að tefja málið. (MJ: Hefir málið verið tafið?). Já, vegna þess að hér er verið að endurtaka það, sem búið er að segja áður.

Hv. þm. hafa verið að tala um að fella niður eða jafna þann ágreining, sem nú er um málið, sem að vísu virðist ekki vera mikill. En fyrst þegar þetta frv. kom fram, byrjuðu andstæðingar stj. að þyrla upp í blöðum og á mannfundum allskonar svívirðingum um, að með þessu væri verið að stofna til einræðis.

Um hitt atriðið, hvort ástæða sé til þess að setja ákvæði um það í þingsköpin, að þeir, sem ekki greiða atkv., án þess að færa fyrir því gildar ástæður, skuli teljast hafa greitt atkv., er því til að svara, að það er alveg ástæðulaust að gefa þm. færi í því að tefja mál með því að greiða ekki atkv. eða eins og hv. þm. sagði, að stundum hefði verið gert með brellum. Enda höfum við reynslu fyrir, að það hefir verið gert; þótt það hafi ekki verið í þessari hv. d., þá hefir það komið fyrir. Er skemmst á að minnast, að síðasta þingi lauk á þann veg. Með þessu. frv. er ætlazt til að koma í veg fyrir, að þm. geti drepið mál með því að gera ekki skyldu sína. Það ætti að duga sem nægileg rök fyrir þessu máli.

Þá sagði hv. þm., að það væri einkennilegt að vera að vitna í dönsk þingsköp. Það er alveg rétt, að það er óþarft. því það er nægilegt að vitna í okkar stjskr., en ég gerði það aðeins til þess að styrkja mitt mál, vegna þess að okkur stjskr. er að mestu þýðing úr þeirri dönsku, og þessi gr. nákvæmlega, og get ég lánað hv. þm. hana á eftir.

Hv. þm. hefir lesið hér upp þann kafla, sem máli skiptir og stendur í 60. gr. dönsku stjskr. og 39. gr. þingskapanna. Geta svo þeir hv. þm., sem betri eru í dönskunni en hv. 1. þm. Skagf. og ég, lesið textana og borið saman og úrskurðað, hvor okkar hefir á réttu að standa. Hv. þm. segir, að „at deltage í Afstemning“ þýði „að taka þátt í atkvgr.“, en ekki „að greiða atkv.“ En hvernig er hægt að taka þátt í atkvgr. án þess að greiða atkv.? Það er bersýnilegt, að þetta þýðir það sama, enda alltaf notað þannig í mæltu máli. Að taka þátt í atkvgr. þýðir því að greiða atkv. með eða móti, og svari þm.: „Ég greiði ekki atkv.“ —, er skýring á því samkvæmt þessum nýju þingsköpum, að heimilt sé að líta svo á, að hann hafi greitt atkv., að hann sé „Deltager í Afstemning.“

Ég skal svo ekki eyða tíma í að deila um þetta atriði, en ég skil ekki, hvernig hægt er að vera „Deltager í Afstemning“ án þess að greiða atkv. eða teljast hafa greitt atkv.

Þetta ákvæði er sett í þingsköpin til þess, að þm. geti ekki skotið sér undan þeirri þm.-skyldu að greiða atkv. um mál, og til þess að fyrirbyggja, að það endurtaki sig, að hægt sé að fella mál með slíkum brellum. Nákvæmlega sama ákvæði liggur fyrir í dönsku stjskr., sem sjálfsagt kemur til af því, að þm. hafa þótt líklegir til að misnota aðstöðu sína þar eins og hér.