06.04.1936
Neðri deild: 44. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í B-deild Alþingistíðinda. (571)
102. mál, alþýðutryggingar
Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Eins og frv. þetta ber með sér, er það flutt af allshn. eftir beiðni hæstv. atvmrh. Í grg. þeirri, er fylgir frv., er frá því skýrt, hversvegna það er flutt, og hefi ég engu við það að bæta. Samkomulag hefir líka orðið um það í allshn. að mæla með því, að leyfð yrðu afbrigði, svo að mál þetta gæti gengið í gegn í einni lotu, þar sem lög þessi eru gengin í gildi fyrir 6 dögum og nauðsyn ber til, að breyting þessi sé þegar gerð, eins og bent er á í grg.
Vil ég svo fyrir hönd allshn. mælast til þess, að frv. verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni.