06.04.1936
Neðri deild: 44. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (573)
102. mál, alþýðutryggingar
*Pétur Ottesen:
Úr því að komin er fram breyt. á l. um alþýðutryggingar, vildi ég benda á það, að mörg fleiri atriði er ástæða til að athuga í l. þessum, ef ekki verður ráðin bót á ágöllum þeirra á annan hátt en með lagabreytingum.
Ég vil taka eitt atriði fram hér. Mér skilst eftir ákvæðum laganna um ellistyrk og lífeyri, að þeir menn, sem eru á aldrinum 60–67 ára, séu sviptir styrks úr ellistyrktarsjóðum, eins og um ákvæði laganna er búið.
Mér finnst það ákaflega ósanngjarnt, að þessir menn séu sviptir styrk úr þeim sjóði, sem þeir eru búnir að greiða lengi til, og þeir eiga kröfu á að fá. Vildi ég a. m. k., að það kæmi fram við þessa umr., ef það telzt fært án lagabreytingar að bæta úr þessum órétti; ella virðist mér, að ekki verði hjá því komizt að breyta lögunum, svo að þessir menn fái a. m. k. þann styrk, sem þeir hefðu orðið aðnjótandi samkv. l. um ellistyrktarsjóði.