06.04.1936
Neðri deild: 44. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
102. mál, alþýðutryggingar
*Pétur Ottesen:
Mér skilst nú eftir því, sem hv. 6. landsk. upplýsir, að það eigi að framkvæma þessi lög, þrátt fyrir orðanna hljóðan, á þann hátt, að þeir menn verði ekki sviptir ellistyrk, sem eru á aldrinum 60–67 ára.
Ég býst nú heldur ekki við, að það hafi verið tilgangurinn, enda hefði það verið hin mesta ósvinna.
En ég veit, að það er fleira, sem þörf er á að breyta. T. d. vantar alveg ákvæði um gjalddaga í einum af 4 köflum frv., og fleira er það, sem menn munu reka sig á, að auðsælega þyrfti breytingar við væri skemmtilegast, að það væri gert nú, úr því að verið er að gera breytingar, en hv. 6. landsk. talaði um, að það yrði gert á næsta þingi, en framkvæmdavaldið sigldi um brim og boða ills frágangs þetta ár, og má vel vera, að það takist.
Mér þykir vænt um að heyra, að framkvæma eigi ákvæðið um ellistyrktarsjóðina þannig, að mennirnir á aldrinum 60–67 ára missi einskis í.