06.04.1936
Efri deild: 44. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (592)
102. mál, alþýðutryggingar
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég get ekki komizt hjá að láta það í ljós, að ummæli hv. 1. þm. Skagf. um ákvæði 62. gr. l. eru á misskilningi byggð. Því fer fjarri, að ætlazt sé til, að sjóðurinn verði tekinn af embættismönnum og barnakennurum. Þeir eiga auðvitað rétt til þess fjár, sem þeir hafa greitt í sjóðinn, en myndu aðeins missa vextina af því. Hinir, sem halda áfram að greiða til sjóðsins, fá svo ellistyrk úr honum eftir þeim reglum, sem settar eru í samþykkt sjóðsins. Í því einu tilfelli gæti komið til mála, að embættismenn misstu nokkurs, að það sýndi sig, að iðgjöldin hefðu verið svo varlega áætluð, að sjóðurinn ætti fé umfram, er þeim hefði verið greitt, sem inni eiga í sjóðnum. En um þetta er engin reynsla komin enn, þar sem sjóðurinn er ekki búinn að starfa lengur en 16 ár.
Ég tek þetta fram af því, að hv. þm. sagði, að það ætti að svipta menn fé því, sem þeir eiga löglega.
Hv. þm. kvað það óþarft að leita álits barnakennara og embættismanna. Um það er ég ekki á sama máli og hann. Nú þegar hafa ýmsir óskað að fá endurgreidd úr sjóðnum iðgjöld sín, og bendir það til þess, að þeir vilji losna við þessa árlegu kvöð og fá peninga sína endurgreidda, enda þótt þeir yrðu að láta af hendi tryggingar sínar, en það er hverjum manni frjálst. Hinsvegar tel ég líklegt, að mikill meiri hl. vilji halda áfram greiðslum til sjóðsins.
Félagsskapur embættismanna mun ekki lengur vera til. Hinsvegar er til sérfélag póst- og símamanna og fleiri slík félög. En ríkisstj. mun hafa ráð með að leita álits embættismanna, þótt þeir hafi ekki með sér neinn allsherjarfélagsskap.
Viðvíkjandi því, að fleiri atriði í frv. hefðu þurft breytinga við, fullyrði ég, að ekkert atriði er þar, sem eins aðkallandi var að breyta og þetta.