14.04.1936
Efri deild: 48. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

91. mál, dómþinghá í Djúpárhreppi

Sigurjón Á. Ólafsson:

Um þetta mál er fátt eitt að segja. N. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. Er frv. fram komið vegna þess, að einum hreppi í Rangárvallasýslu hefir verið skipt, og er því tvímælalaust rétt og nauðsynlegt að setja sérstaka dómþinghá í hinum nýja hreppi. N. hafði ekkert við frv. að athuga, en var einhuga um að mæla með, að það yrði samþ.