07.04.1936
Sameinað þing: 11. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (67)

1. mál, fjárlög 1937

*Jón Pálmason:

Hv. hlustendur! Það eru aðeins fá atriði, sem hægt er að minnast á, á þeim stutta tíma, sem ég ræð hér yfir.

Ég vil byrja á því að mótmæla þeirri firru hv. þm. Ísaf. að ég hafi haldið því fram, að það ætti að lengja vinnutímann. Ég hélt því fram, að öllu verkafólki væri það betra að hafa vinnu sem mestan hluta árs og hafa hátt árskaup, heldur en að hafa hátt dagkaup en fáa vinnudaga á ári og þar af leiðandi lágt árskaup. Þetta er allt annað heldur en það, sem hv. þm. Ísaf. sagði að ég hefði haldið fram. Hvort sem það stafar af því, að hann hefir ekki skilið þetta eða af öðru.

Þá vil ég svara hæstv. forsrh. með nokkrum urðum. Hann hóf svarræðu sína með því að segja, að það væri hörmulegt að til væri bóndi, sem léti skáka sér fram til að tala í útvarp fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem er stærsti flokkur þessa lands. Þessu vil ég svara með því að láta í ljós undrun mína yfir því, að nokkur maður skuli vilja vera forsætisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn eftir þann feril, sem sá flokkur hefir að baki sér og með því ástandi, sem stjórnmálastarfsemi hans hefir skapað hér á landi.

Þá var hann að mótmæla því, að það væru 9 ár, sem þeir hefðu stjórnað, því Sjálfstæðisflokkurinu hefði verið í stjórn í 2 ár af þeim tíma. — Þeir hafa nú hnakkrifizt hér við þessar umræður núverandi og fyrrverandi landbúnaðrráðherra og er gott fyrir þjóðina að kynnast þessum ræðumönnum, því þeir hafa báðir verið ráðherrar fyrir sama flokk, og það er algerlega þýðingarlaust fyrir hæstv. forsrh. að ætla sér að slengja nokkurri ábyrgð á Sjálfstfl. fyrir meðferð á fjármálum og landbúnaðarmálum ríkisins á 9 síðustu árum. Sú ábyrgð hvílir öll á hans eigin flokki.

Viðvíkjandi því, að öll umbótamál sveitanna hafi verið borin fram af Framsóknarflokknum og að okkar flokkur hafi verið þeim mótsnúinn, þá er því til að svara, að þetta er aðeins ein þeirra mörgu blekkinga, sem fram hafa verið bornar í blöðum framsóknarmanna og í umr. þeirra hér á Alþ., en allir vita, að þetta er aðeins blekking og að þessi mál hafa komizt fram vegna þess, að þau hafa verið studd af Sjálfstfl. eða beinlínis borin fram af honum. Má í því sambandi minna á jarðræktarlögin, sem þeir Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastj. og Valtýr Stefánsson voru helztu hvatamenn að. Þá má og minna á, að flokksmaður hæstv. forsrh., Klemens Jónsson, neitaði að bera fram kröfu um styrk til mjólkurbúa, en 1. flm. þess var form. okkar flokks, hv. þm. G.-K. Þannig er það í öllum þeim atriðum, sem hæstv. forsrh. var að guma af, að Framsfl. hefði unnið fyrir sveitirnar, en við verið umbótunum andvígir. Það má einnig minna á erfðaábúðar- og óðalsréttarlöggjöfina og sömuleiðis á nýbýlalögin, eftir að þau höfðu verið löguð hér í landbn., en eins og þau komu hér fyrst fram, voru þau algerlega óviðunandi.

Viðvíkjandi því, að brýn nauðsyn sé á að vera í sambandi við sósíalista í bæjunum, vil ég taka það fram, að frá sjónarmiði okkar eru það hættulegustu mennirnir. Bæði hæstv. forsrh. og hv. þm. vita, að það er hættulegt fyrir landbúnaðinn að hafa samband við sósíalista og að þeir gera óleik í öllum þjóðmálum, bæði til sveita og í bæjum, þar sem áhrifa þeirra gætir á annað borð, sem því miður er allt of víða. Þau heillaspor, sem hv. stjórnarflokkar hafa markað í íslenzkt þjóðlíf, má m. a. sjá á því, að síðan árið 1927 hafa um 10 þús. manna flutt burt úr sveitunum — burt frá þeirri atvinnugrein, sem framtíð þjóðarinnar byggist á, bæði efnalega og menningarlega. Of hvert haf, þessi 10 þús. farið? Og að hverju hafa þau horfið? Þau hafa farið í kaupstaðina og fylla nú þann hóp atvinnuleysingja, sem þar er.

Mér hefir aldrei dottið í hug — eins og hér hefir verið borið á mig — að halda því fram, að ekki væri lifandi hér í sveitum. Ég veit vel, að í sveitum landsins gæti verið margfalt fleira fólk en nú er þar, en ekki með því stjórnarfari, sem nú er og verið hefir á undanförnum árum. En það er ekki sveitunum sjálfum að kenna, þótt illt stjórnarfar og óhollar öfgastefnur sé að eyðileggja þær.

Annars er það undarlegt, ef athugaðar eru útvarpsumræður þær, sem hér fara fram nú, og farið hafa fram á undanfarandi þingum, að fulltrúar stjórnarflokkanna gera ekki annað en skamma minni hl. fyrir það, sem aflaga fer og segja, að það sé honum að kenna. Þeir skamma atvinnufyrirtækin, sem búið er að mergsjúga með sívaxandi sköttum í allan þennan tíma. Þegar þau eru að sligast undir byrðunum, þá skamm, þeir þau fyrir að geta ekki staðið betur. Þegar verið að sjúga úr þeim síðasta blóðdropann, þá er bent á þau og sagt: þarna sjáið þið hve vel þetta ber sig. Þessi aðferð er óverjandi, og því trúa engir, sem eru greindir og gæta þess hverju fram fer, þeim flokki, sem búinn er að ráða í 9 ár og ekki hefir reynzt betur fallinn til stjórnar en Framsóknarfl. Því trúir heldur enginn, að allt það illa sé að kenna þeim flokki, sem hefir verið í minnihl. aðstöðu á Alþ. nú í 9 ár.

Ég vil enda þessi orð mín með því, að skora á alla að athuga gaumgæfilega, hvort nokkur líkindi geti verið til þess, að þeir annmarkar, sem eru á atvinnulífi og fjármálum þjóðarinnar séu helzt þeim að kenna, sem nú í 9 ár eru búnir að vera í minni hl. á Alþ. og að þeir, sem ráðið hafa lögum og lofum hefðu ekki getað komið því í betra horf, ef þeir hefðu kostað kapps um það, að stjórna á sæmilegan hátt og í samræmi við þarfir okkar fátæku þjóðar og unga atvinnulífs.

En þeir hafa stjórnað um of eftir anda þeirrar kenningar, að það þurfi að granda þjóðskipulaginn. — Rauðu flokkarnir ætla að granda þjóðskipulaginu. Eg vona að þeim takist það ekki, þótt því miður horfi þannig við nú, að augljós hætta sé fyrir dyrum.

Ég óska svo þess að lokum, að breyting verði á frá því, sem nú er, og verið hefir á undanförnum árum, svo að öllum mínum hlustendum megi vel vegna og hin íslenzka þjóð stefni fram til vaxandi velmegunar og þroska. — Góða nótt!