14.04.1936
Neðri deild: 48. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

19. mál, eyðing svartbaks

*Sigurður Einarsson:

hað er næsta undarlegt innræti meiri hl. hv. allshn. til þeirra manna, sem árum saman hafa verið í vandræðum með að verja vörp sín gegn þeim versta vargi, sem til er hér í landi. Við fyrri umr. þessa máls hefir verið list svo vel nauðsyn þess, að varpeigendur væru ekki hindraðir í því af löggjöfinni sjálfri að eyða þessum vargi, að það hefði verið sennilegt, að nú hefðu ekki verið bornar fram nýjar till., sem stefna að því að gera þetta frv. að engu, og ég er þess fullviss, að það er í fullri óþökk hv. d., að meiri hl. hv. allshn. fer nú að búa til þessa smugu fyrir ráðh., til þess að hann geti smeygt sér framhjá því að staðfesta þær reglugerðir, sem settar verða. Þarna þarf enga smugu, og þarna á engin smuga að vera. Þeim mönnum, sem eiga að verja vörp sín, er betur trúandi fyrir því að meta, hvað eru ómannúðlegar aðferðir, heldur en Rvíkingum, sem aldrei hafa í æðar varp komið og ekkert þekkja til eðlis þessa máls, og hvað þessum brtt. viðvíkur, þá ber hv. dm. að fella þær, þar sem beinlínis er búið að lýsa því yfir, að þær séu ætlaðar til þess að höggva gat á frv., svo að það geti ekki komið að notum.

Hv. 8. landsk. sagði hér mikla reyfarasögu af því, hvernig Breiðfirðingar færu að því að blikka fuglinn til bana. Ég hefi aldrei heyrt um þessa aðferð talað, en sagan er ljót, ef hún er sönn. En mér þykir ótrúlegt, að gripið sé til svo seinvirkra ráða, og því aðeins er það gert, að varpeigendur megi ekki nota aðrar hraðvirkari aðferðir til þess að verja sig fyrir þessum vargi.

Ég verð að beina þeirri áskorun til hv. dm., að þeir felli þessa brtt. og sýni á þann hátt, að þeim er annara um þá bændur, sem vilja verja varp sitt fyrir þessum skaðlega vargi, heldur en um varginn sjálfan.