14.04.1936
Neðri deild: 48. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (692)
19. mál, eyðing svartbaks
*Frsm. (Garðar Þorsteinsson):
Ég vissi það, að hv. fl. landsk. mundi taka til máls, því ég heyrði hann kveðja sér hljóðs. En þegar ég minntist á, hvað hv. þm. Ak. hefði sagt um eitrun, þá lét ég hjá líða að geta um það, sem hv. 9. landsk. sagði við 2. umr. Þá sagði hann, að alls ekki væri gengið út frá því, að eitrun yrði viðhöfð. Nú er hann búinn að gleyma þessum ummælum sínum frá fyrri umræðu, og leggur nú mesta áherzluna á það, að þeim, sem varplönd eiga, sé betur trúandi fyrir að ákveða aðferðir til að eyða fuglinum heldur en þeim, sem aldrei hafi í varplönd komið. Það er eins og þessi hv. þm. sé alinn upp af veiðibjöllum, eða þá af æðarkollum, því svo er að sjá sem hann telji, að sérstaklega náin kynni þurfi að hafa af þessum fuglum til þess að vera dómbær á það, hver meðul séu réttmæt til þess að eyða svartbak. En þetta er alls ekki höfuðatriðið. Höfuðatriðið er það, að Alþingi afgreiði ekki þetta mál á þann hátt, að það verði þjóðinni til skammar. En það er til skammar að heimila ómannúðlegar aðferðir, svo sem eitrun eða að setja blikkplötur í æti, eins og ég gat um áðan, að sumstaðar væri gert, því það hlýtur að hafa í för með sér langvinnan og kvalafullan dauðdaga.
Ég þykist vita, að æðarvarpseigendur semji reglugerðir um eyðingu fuglsins, og ég hefi ekkert á móti því, að þeir eigi frumkvæði að slíkum reglugerðum. En aftur á móti vil ég, að það sé á valdi ráðh., hvort hann samþ. þessar reglugerðir, og hann sjái um, að ekki sé þar gert ráð fyrir öðrum eyðingaraðferðum en þeim, sem sæmilegar eru. En það þarf ekki að fylgjast að, að varpeigendur hafi áhuga fyrir því að eyða veiðibjöllu, og hitt, að þeir sjái svo um, að þær eyðingaraðferðir séu sæmilegar, sem heimilaðar eru í hverju einstöku tilfelli, og þetta skilur hv. 9. landsk. vel, og við 2. umr. kom það greinilega í ljós, að hann fann það, að allir myndu hafa andstyggð á að kvelja lífið úr fuglinum með eitri eða blikkplötum. Hann fann, að ekki myndi rétt að fylgja því fram, svo að margir heyrðu, að slíkar aðferðir væru notaðar, og þess vegna sagði hann við 2. umr., að ekki væri til þess ætlazt, að fuglinum væri eytt með eitri. Nú stendur þessi hv. þm. hér upp og flytur ræðu, og er þá svo að heyra; að honum finnist engin aðferð of ómannúðleg eða grimmdarleg, ef æðarvarpseigenda samþ. hana, og þess vegna sé sjálfsagt að rígbinda ráðh. við að staðfesta hverja þá reglugerð, sem þeir kunna að gera, hversu ómannúðleg sem ákvæði hennar yrðu. Ég hélt, að traust þessa hv. þm. á núv. atvmrh. væri svo mikið að hann slægi því ekki föstu, að bændur þar vestra hefðu meira vit á þessum málum heldur er ráðh., og á meðan þessi hv. þm. hefir jafngreiðan gang að hæstv. atvmrh. eins og hann hefir nú, þá ætti ekki að vera hætta á því, að ráðh. færi ekki eftir till. æðarvarpsnotenda. Hv. þm. gleymir því, að meiri hl. allshn. er ekki að mæla því bót, að ekki megi eyða fuglinum, heldur er hann aðeins að takmarka eyðingaraðferðirnar innan þess ramma, sem hvítir menn geta aðhyllzt. Það er sjálfsagt, að leyfilegt sé að eyða fuglinum með skotum, en það er svo mikill stigmunur á því að skjóta fuglinn og á því að eyða honum með eitri eða blikkplötum, að það er ekki sambærilegt.
Hv. 9. landsk. og aðrir þeir, sem vilja samþ. þetta frv., hafa lýst því yfir, að þeir vilji ekki, að fuglinum sé eytt með eitri, og hv. 9. landsk. vildi bera fram till. um, að það yrði ekki gert með blikki. Það er því allundarlegt, ef þeir vilja ekki fella inn í lögin ákvæði, sem er vörn gegn því, að ómannúðlegum eyðingaraðferðum sé beitt. Hvers vegna vill hv. 9. landsk. það ekki? Hvers vegna segir hann það hér í ræðu, að hann vilji ekki, að notaðar séu ómannúðlegar aðferðir, en ætlar svo að stuðla að því eða opna því leið með atkv. sínu, að það verði gert? Ég held, að hv. þm. leggi of mikið ofurkapp á þetta mál. Ég veit ekki, hve margir af kjósendum hans eiga afkomu sína undir æðarvarpi. Ég held, að það sé ekki af meðfæddri grimmd hv. þm., sem hann vill eyða þessum fugli þannig, heldur hitt, að hann búist við að vinna nokkur atkv. með þessari framkomu, en ég held, að það hefni sín.