17.04.1936
Efri deild: 50. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (700)
19. mál, eyðing svartbaks
*Sigurjón Á Ólafsson:
Það er rétt, að allshn. óskar ekki eftir að fá þetta mál til sín aftur. Breyt., sem frv. tók í Nd., eru nauðalitlar og nánast í þá átt, sem ég get sætt mig við. — Út af brtt. þeirri, sem hér er borin fram og ekki náði samþykki í Nd., vildi ég segja örfá orð. Raunar gefur hún tilefni til þess að tala langt mál, því ef út í þá sálma er farið að koma í veg fyrir ómannúðlegar aðferðir gagnvart lifandi verum, — hve langt getur slíkt ekki náð? Ég hygg, að það mætti fara nokkuð víða, ef tala ætti um allar þær ómannúðlegu drápsaðferðir, sem leyfðar eru í lögum eða viðhafðar, án þess að það sé samkvæmt nokkrum lögum. Það er ekki ávallt viðhöfð mikil mannúð gagnvart öllu, sem lífsanda dregur. Við skulum segja, að það væri skemmtilegt að samþ. þessa brtt. og að hún yrði ekki til skaða fyrir þá stefnu frv., sem hefir gert mig því fylgjandi, að vernda atvinnugrein, sem allmargir stunda, en sem er í stórhættu vegna þessa ránfugls. Hver er þá miskunnsemin gagnvart æðarungunum, sem vargfuglinn hremmir hvern af öðrum og rífur sundur? Þetta gengur sumsstaðar svo langt, að menn telja, að það þurfi að eyða eggjum æðarfuglsins, til þess að mæðurnar hafa ekki of marga unga að verja. Það, sem farið er fram á í þessu frv. er aðeins það, að gerðar séu ráðstafanir til, að fuglinn sé skotinn, auk þess sem eggjum hans á að eyða. Hvaða aðferðir aðrar einhverjir miður réttlátir menn kunna að viðhafa til að eyða svartbaknum, kemur ekki þessu frv. við. Ef einhverjir grimmúðugir menn vilja nota slíka hluti til að sálga svartbaknum með, sem talað var um í Nd., blikkplötur og annað þesskonar, lyst ég við að þeir gerðu það jafnt, þó þessi brtt. væri samþ. En ég vona, að harðýðgin nái ekki svo langt, að menn fari að elta fuglinn á þann hátt, og ég býst við, að slíkt væri ekki leyfilegt samkv. gildandi lögum. Hinsvegar er ekki hægt að koma í veg fyrir með neinum lögum, að menn fari ómannúðlega að því að aflífa ýms dýr, ef menn vilja það viðhafa. Er það t. d. ekki ómannúðlegt, þegar fuglar eru særðir með skotum, og svo berjast þessir vesalingar við dauðann dögum saman? En þetta er það, sem daglega kemur fyrir, og við það getum við ekki ráðið. Grimmd og drápslöngun mannsins er svo mikil, að hann langar til að drepa. (JBald: Drápslöngun!) Já, maðurinn er nú einusinni með drápslöngun, og hér á landi beita menn sinni drápslöngun gegn skepnunum.
Við skulum segja, að d. vildi nú samþ. þessa brtt., sem ég býst við, að mundi gera frv. frekar máttlaust til þess að ná þeim tilgangi, sem stefnt er að. Þá yrði málið að koma fyrir Nd. á ný, og mér finnst, að það væri farið illa með þann stutta tíma, sem þing á eftir að sitja, ef jafnvel heilum degi enn væri eytt í að rífast um þetta litla mál. Ég get ekki verið með því að flækja málinu milli deilda fyrir ekki stærra atriði, og ég er hissa á jafnþroskuðum mönnum sem þessa samkomu sitja, að þeir skuli vera að leika sér að slíku máli sem þessu, eins og mér virtist koma fram í háttv. neðri deild.