18.04.1936
Efri deild: 50. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (701)

19. mál, eyðing svartbaks

*Jón Baldvinsson:

Það er eins og einhver hiti sé í sumum hv. þm. út af þessu máli, og þeir tala mjög hátíðlega um þessa hluti, en málið er í sjálfu sér einfalt og ætti að vera hægt að tala hispurslaust um það. Við viljum ekki, ýmsir af þm., gefa hreppsnefndum eða mönnum í einstökum héruðum, sem ef til vill eru orðnir sljóvgaðir fyrir meðferðinni á svartbaknum vegna þess skaða, sem hann hefir gert þeim, heimild til að finna upp á hvaða aðferð, sem þeim dettur í hug til þess að eyða þessum fugli. Það er náttúrlega svo, að í náttúrunni gengur á ýmsu, og svartbakurinn er ekki verri eða grimmari en margar aðrar skepnur, svo ég sé ekki ástæðu til að setja löggjöfina í gang til þess að heimta sérstaklega grimmúðlegar aðferðir til þess að eyða þessum fallega fugli. Ég vil ekki segja, að svartbakurinn sé alveg nytjalaus fugl. Það eru þó nokkrar tekjur, sem bændur hafa af því ekki óvíða á landinu að hirða svartbaksegg. Ef búið væri að útrýmt svartbaknum, hætti hann sennilega að verra, — eða ætli það ekki? — Það er því enginn leikur með málið, þó komið sé inn í frv. ákvæði, sem gerir ráðh. mögulegt að varna því, að einstrengingslega sinnaðar hreppsnefndir geti fundið upp á að setja samþykktir um hvaða drápsaðferðir, sem þeim sýnist. (PM: Hvaða aðferðir gætu þeir komið með?). Ég þori nú varla að fara út í það, en það var farið mjög nákvæmlega út í þetta alltsaman í Nd., allt til þeirra aðferða að veiða svartbakinn á öngul eða láta hann éta glerbrot, niðurklippt blikk o. s. frv. Það er ástæða til að hafa hemil á þessum hlutum og að ráðh., sem er hlutlaus í þessu efni, geti komið í veg fyrir, að hreppsnefndir, sem þættust eiga einhvers að hefna á svartbaknum, setji svívirðileg ákvæði gegn honum, sem ráðh. gæti ekki verið þekktur fyrir að samþ. Það verður að gera ráð fyrir að ráðh. myndi heldur ekki gera mönnum ókleift að halda uppi vörnum gegn svartbaknum, ef hann gerist sérstaklega nærgöngull, þannig að hann mundi leyfa mönnum að viðhafa eyðingaraðferðir, sem að gagni koma. Annars skil ég ekki í öðru en að menn hefðu samtök um að halda uppi vörnum gegn þessum fugli, ef hann gerir eins mikið og almennt tjón eins og látið er í veðri vaka þarna fyrir vestan. Ef menn væru sammála um, að það eigi að útrýma svartbaknum, mundi það vera gert án sérstakra lagafyrirmæla. Því er ástæða til að ætla, að þetta sé mönnum ekki eins mikið áhugamál almennt eins og látið er í veðri vaka. Ég vil því halda fast við brtt. mína, og tel, að það væri mikil lagfæring á frv. að samþ. halla.

Ég veit ekki, hvort ástæða er til að flytja brtt. til lagfæringar á frv. að öðru leyti. Í 4. gr. stendur t. d.: „Hreppsnefnd ræður svortbaksskyttur“. Ég veit ekki, hvort þessi „svortbakur“ er sérstakur fugl. Þetta þyrfti að leiðrétta, ef hér er átt við svartbak, en þá þyrfti málið líklega að fara til Nd. aftur.