07.04.1936
Sameinað þing: 11. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (71)

1. mál, fjárlög 1937

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Hv. þm. G.-K. sagði í lok ræðu sinnar, að hann hefði sannað býsna margt; ég álít, að það sé rétt, að hann hafi a. m. k. sannað eitt mjög greinilega, en það er ekki nýsannað, heldur er það gamall málsháttur, að það bylji hæst í tómri tunnu. Ég hefi sjaldan heyrt öllu innantómari vaðal en í þessum tveim síðustu ræðum hv. þm., nema ef vera kynni, að hv. 6. þm. Reykv. hafi sett metið.

Um gömlu konuna er það að segja, að þótt hún sé ekki betur á sig komin en hv. þm. lýsti henni, þá hefir hv. þm. samt orðið að þola það að fara hverja hrakförina á eftir annari fyrir kerlingunni, og þegar kosningar koma á sínum tíma, ekki eftir ósk hv. þm., þá á hann enn einu sinni eftir að þreyta fangbrögð við þessa gömlu konu.

Þessar fáu mínútur, sem ég hefi til afnota, ætla ég að nota til þess að draga saman höfuðatriði þessara umræðna. Þó verð ég að svara einu atriði fyrst, sem hv. þm. G.-K. drap á í sinni næstsíðustu ræðu. Hann sagði, að ég hefði haldið því fram, að hann hefði mælt af óheilindum, þegar hann lézt vilja bæta úr atvinnuleysinu. Hélt hv. þm. því fram, að slík ummæli sæmdu ekki ráðh., og hvað hann þá skyldu hvíla á mér, að ég færði rök fyrir þessum orðum mínum. Ég skal nú endurtaka þessi rök. Ég hefi ekki trú á því, að Ólafur Thors mæli af heilindum í þessu efni, og hefi ég sannað, að hann gerir það ekki. Sannanirnar fyrir þessu eru þær till., sem hann hefir borið fram í sambandi við afgreiðslu fjárl., því að þær till. miða allar að því að auka atvinnuleysið og draga úr verklegum framkvæmdum og atvinnubótum. Þetta er líka skiljanlegt, þótt það sé leiðinlegt að þurfa að segja það, vegna þess að hann lítur svo á sem það sé aðalatriðið að tryggja afkomu atvinnurekendanna. Þessir menn eru ekki komnir lengra en það,að þeir telja sér mestan hag í því að hafa kaupgjald verkalýðsins sem lægst, og með langvarandi atvinnuleysi vilja þeir koma fram kauphækkun, annaðhvort með beinni kauplækkun í krónum eða gengislækkun, sem hv. þm. G.-K. og hv. þm. V.-Húnv. hafa hampað mjög á þessu þingi.

Þetta sýnir bezt, hvílíkur geysimunur er á því, hvernig stjórnarflokkarnir og andstæðingarnir vilja mæta erfiðleikum yfirstandandi tíma. Samvinna stjórnarflokkanna byggist á þeim skilningi, að svo sé bezt komið hag allra landsmanna, að hönd hjálpi fæti, að bændur og verkamenn vinni saman. Með kjötlögunum hafa verkamenn í kaupstöðum og sveitaþorpum tekið á sig byrðar verðhækkunar á kjötinu vegna þess, að þeim er það ljóst, að bændum er þetta nauðsynlegt til þess að geta haldið áfram sínum atvinnurekstri, og verkamenn eru hinsvegar fegnir því, að bændurnir þurfi ekki að flosna upp frá búum sínum og bætast við atvinnuleysingjahópinn í kaupstöðunum. Á sama hátt er þessum stéttum báðum ljóst, að bezta leiðin til þess að tryggja betur en verið hefir sæmilegt verð fyrir mjólkurafurðir bænda er að koma því skipulagi á söluna, að hún geti aukizt, og hún eykst bezt með því, að verðinu sé stillt í hóf og lækkað eftir föngum. Því meiri mjólk, sem selst, því hærra verð fá framleiðendur fyrir sína vöru.

Stjórnarflokkunum er það líka ljóst, að það verður að fyrirbyggja það, að útflytjendur undirbjóði hver annan, og er það gert með lögum um síldarútvegsnefnd og fiskimálanefnd, en þessu verður ekki komið í kring, án þess að takmarka möguleika einhverra stórlaxa, af því stafar andúð andstæðinganna gegn þessum lögum, sem þeir þó viðurkenna, að séu nauðsynleg, af því að það er bersýnilegt, að það er ekki hægt að komast hjá þessu, eins og tímarnir eru nú.

Stjórnarflokkarnir telja nauðsynlegt að hafa sérstaka stofnun til þess að brjóta nýjar leiðir og skapa þar með betri afkomumöguleika fyrir almenning.

Þetta er trygging fyrir því, að því, sem veitt er af hinu opinbera, sé varið til hagsbóta fyrir alla.

Gjaldeyrishöftin eru nauðsynleg á þeim tímum, sem nú eru, til þess að beina kaupum okkar til ákveðinna landa og skapa með því móti möguleika fyrir okkar vöru. Það er vitað, að þetta verður ekki gert, án þess að takmarka eða minnka töluvert verzlunarhagnað þeirra manna, sem hafa hagnað af því að flytja inn þessar vörur og verzla með þær. Það er ástæða til þess, að verzlunarmenn og stórkaupmenn séu ekki alls kostar ánægðir með gjaldeyrishöftin, en þau eru samt nauðsynleg fyrir allan almenning í landinu.

Þá sýnir njósnamálið afstöðu flokkanna í þessu efni. Það er þýðingarmikið mál fyrir alla bátaútgerð landsmanna og yfirleitt fyrir útgerðina í landinu að eftirlit sé með því, að landhelgisgæzlan sé í lagi, en fyrir störf togarafélaganna er það mikið hagsmunamál, að gæzlan sé ekki í lagi.

Vitanlega dettur engum í hug að neita því, að ríkissjóður þurfi að afla sér tekna, og í erfiðu árferði þarf hann þess fremur með en ella. En um það er deilt, hvernig hann eigi að afla sér tekna. Stjórnarflokkarnir hafa lækkað tollana, þeir hafa lækkað útflutningsgjald á síld, lækkað toll á kaffi og sykri, afnumið útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum, fellt niður markaðs- og verðjöfnunarsjóðsgjald. Þessu gleyma andstæðingarnir, þegar þeir tala um skattabrjálæði. Það er satt, að tekjuskatturinn hefir verið hækkaður, og viðskiptagjaldið hefir verið hækkað um 750 þús. kr. til þess að geta greitt kostnaðinn við alþýðutryggingarnar og stuðlað að verklegum framkvæmdum. Þetta hefir verið gert til þess að mæta þeim erfiðleikum, sem fyrir eru.

Nýbýlamálið sýnir einnig, að viðhorfið hjá núv. stj. er ólíkt því, sem það er hjá andstöðuflokkunum. Það skapast möguleikar fyrir þá, sem nú leita úr sveitunum og til kaupstaðanna, og einnig fyrir þá, sem vilja leita til sveitanna úr kaupstöðunum, til þess að sjá sér og sínum farborða með því að stunda landbúnað. Þeim er t. d. veittur styrkur til þess að afla kartaflna hér heima, í stað þess að þær séu fluttar inn.

Ég ætla, að þessi mál sýni nokkurnveginn afstöðumun stjórnarflokkanna og andstöðunnar.

Ég játa það og vil enga dul á það draga, að tímarnir, sem fram undan eru, eru býsna ískyggilegir. Það getur enginn sagt, hverju við verðum að mæta á næstunni. Ef viðskiptastríðið harðnar enn, þá er ómögulegt að segja, nema erfiðleikarnir verði svo miklir, að við fáum varla rönd við reist. Og enginn veit, nema svo kunni að fara, að öll norðurálfan lendi í ófriði. Hvernig á að mæta þessum tímum? Verður það bezt gert með því að láta fólkið í friði, eins og formaður Sjálfstfl. óskaði eftir á síðasta þingi? Ég segi nei. Þessu verður bezt mætt þannig að afla í sameiginlega sjóði af þeim, sem geta eitthvað af mörkum látið, til þess að geta fyrirbyggt það, að nokkur hluti þjóðarinnar líði skort, til þess að hjálpa þeim fátækari til þess að vinna fyrir sér og halda áfram sínum atvinnuvegi. Erfiðleikum þeim, sem að steðja á öllum tímum, verður bezt mætt með því að jafna tekjur og eignir þjóðarinnar.

Ég læt svo lokið máli mínu, og ég vona, um leið og ég býð góða nótt, að þetta eldhús hafi orðið mönnum til góðs.