20.03.1936
Neðri deild: 29. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (723)
18. mál, útsvör
Forseti (JörB):
Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. 2. þm. N.-M. við brtt. á þskj. 104, svo hljóðandi:
„a-liður orðist svo: Ef hann á sérstakan sumarbústað, sem bakar hlutaðeigandi sveit útgjöld til almenningsþarfa, svo sem hækkun á sýslusjóðsgjaldi, enda fari útsvarið ekki fram úr því, er þeirri gjaldhækkun nemur.“
Brtt. þessi er of seint fram komin og skrifl., og þarf því tvennskonar afbrigði.