15.04.1936
Efri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (752)

18. mál, útsvör

Magnús Guðmundsson:

Ég þarf ekki að vera margorður um þetta mál, en vil bara svara hv. þm. Dal. örfáum orðum. Mér skildist, að hann væri að hæla gömlu útsvarslögunum, gömlu aðferðinni, að leggja á menn bæði í dvalar- og atvinnusveitum, eins og var fyrir 1926. Ég man, að á þingunum fyrir þann tíma var alt annað en að þm. og aðrir væru ánægðir með útsvarslögin. Þá var talið, að útsvarsl. væru svo víðtæk, að beinlínis væri eignarán, sérstaklega á þeim mönnum, er ynnu víðar en á einum stað.

Ég tel vafalaust, að það væri spor í öfuga átt, ef nú ætti að taka upp svipaðar reglur um útsvarsálagningar og giltu hér fyrir 1926. Útsvarsálagningaraðferðirnar eru mjög viðkvæm mál, þar sem útsvörin eru hæsti skatturinn, er menn verða að greiða, en það er sannfæring mín, að ekki náist betri árangur með þessari brtt. hv. þm. Dal. en eftir gildandi lögum. Það stoðar ekkert, þó að sagt sé í l., að taka skuli fullt tillit til þess við álagningu, ef maður ber útsvar eða er útsvarsskyldur í 2 hreppum, því að bæði heimilishreppur og dvalar- eða atvinnuhreppur vilja hugsa um sig, og fyrir það verður gjaldandinn að blæða. Ég veit, að það er rétt hjá hv. þm. Dal., að talsvert ber á því, að menn vilja telja heimili annarsstaðar en þeir raunverulega eiga heima, ef útsvar er hátt í heimilissveit. En þar til er því að svara, að úr því má bæta með nýrri löggjöf. Hefi ég samið frv. um þetta, en það hefir ekki fundið náð fyrir augum hæstv. stj. Ég mun samt flytja það, áður langt líður.