30.03.1936
Neðri deild: 37. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (773)
80. mál, skotvopn, skotfæri o. fl.
*Pétur Ottesen:
Það var verið að tala um það áðan í sambandi við annað málið á dagskránni (frv. til 1. um sérstaka dómþinghá í Djúpárhreppi í Rangávallasýslu), að aldrei hefði verið talað fyrir því hér í d. Ég held, að það sama megi segja um þetta frv. Ég veit ekki til, að meiri hl. allshn., sem flytur frv. fyrir hönd dómsmrh., hafi gert nokkra grein fyrir því, og ekki ríkisstj. heldur. Mun dómsmrh. ekki hafa verið við í þau tvö skipti, sem málið hefir verið tekið til meðferðar. En þar sem með frv. er verið að gera víðtækar ráðstafanir og íhlutun um, hvað fólkinu í landinu er leyfilegt að gera, jafnvel þegar það ætti líf sitt að verja, er vissulega fullkomin ástæða til þess að fara fram á, að gerð sé grein fyrir, hvað raunverulega í frv. felst og hvað víðtækar ráðstafanir er hugsað til að gera, en þær gerir frv. ráð fyrir, að flestar verði ákveðnar með reglugerð. Ég vil því bera fram fáeinar fyrirspurnir, sem ég býst við, að allshn. eða hæstv. forsrh., sem nú er viðstaddur, svari.
Í 1. gr. frv. er dómsmrh. gefin heimild til þess að ákveða með reglugerð, hvernig fara skuli með birgðir þær af skotvopnum og skotum, sem fyrir eru í landinu. Hvernig verður t. d. um þær blýbirgðir, sem til eru í landinu? Má ekki hreyfa þær, til hvers sem á að nota þær, nema eftir settum reglum? Ennfremur má segja það sama um stál. Skotvopnin eru að nokkrum hluta úr stáli, og þess vegna getur það fallið undir 7. gr. (BÁ: En tré?), Jú, það má nota í sköft. Það er sem sagt allt mögulegt, sem tilheyrir skotvopnum eða hægt er að nota við tilbúning þeirra. Það er allt komið undir dómsmrh., hvað honum þóknast að kalla bannvöru. Það getur náð til flestra hluta, eins og hv. þm. Mýr. benti á, og er því ástæðu til að fá skýringu frá hæstv. ráðh. um, hve víðtæk ákvæði hann muni setja og til hvaða hluta þau muni ná. Í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir, að þeir einir fái heimild til þess að verzla með þessa hluti — hvort sem þeir eru úr málmi eða tré — sem sýna skilríki fyrir því, að þeim sé það gagnlegt, eða nauðsynlegt vegna atvinnu sinnar. Ennfremur er í 2. gr. gert ráð fyrir, að haldin sé skrá yfir alla þá menn, sem verða fyrir þeirri náð að fá að hafa þessa hluti í vörzlum sínum. Mér skilst eftir þessu, að gera þurfi allsherjartalningu í landinu á öllum, sem slíka hluti hafa undir höndum, svo sem skotfæri, byssur og aðra þá hluti, sem undir þetta falla. Svo yrði að skrá hvað út af fyrir sig á nafn þess manns, sem hlutinn ætti.
Í frv. stendur ekkert um, hverjir eigi að semja þessar skrár eða með hverjum hætti þeirra skuli aflað. Það hefir sem sagt ekkert komið fram, hvorki um það né annað, sem felst í frv., þar sem ekki eitt einasta orð hefir verið um það sagt og engin grg. látin fylgja því. Að vísu hefir verið vitnað í grg., sem fylgdi frv. á síðasta þingi, en þá strandaði það í n., eða kom a. m. k. aldrei á dagskrá í Nd. Málið er því algerlega forsvarslaust hér í þessari hv. d. Þess vegna er því meiri ástæða til þess að óska skýringa um, hvað víðtækar ráðstafanir eigi að gera. Það sýnist vera talsvert umfangsmikið starf að safna öllum þessum skýrslum. Þó menn stundi ekki dýraveiðar, eru til 1., sem banna að aflífa dýr öðruvísi en með skoti, og þess vegna eru til um allar sveitir lundsins ein eða fleiri kindabyssur á hverjum bæ, sem þarf að skrásetja, ef bókstaflega á að fylgja frv.
Ég skal ekki dæma um, hve víðtækar ástæður liggja til þess að hefja þessa eftirgrennslan. Hvort þetta er byggt á hættu á því, að menn fari að gerast djarftakir með slík vopn eða verkfæri eða ímyndaðri stríðshættu af baráttulöngun fólksins, skal ég ekkert um segja eða hvort ástæðu er til að gera svo víðtækar ráðstafanir, sem kosta jafnmikið ómak og hér er lagt út í við að safna öllum þessum skýrslum, og fylgjast svo með því ár frá ári, hverjar breyt. verða á byssueign landsmanna. Þá væri einnig fróðlegt að vita, hverjir eiga að framkvæma slíka skýrslusöfnun og hvort þeim, sem það eiga að gera, er séð fyrir greiðslu fyrir ómakið. Frv. gerir ekki ráð fyrir fjárútlátum, og þess vegna er e. t. v. ætlazt til, að slíkt verði borgaraleg skylda. Þá er gott að fá að heyra, hverjir það eru, sem eiga að fá að taka á sig þá borgaralegu skyldu.
Þá er það ekki fleira, sem ég vildi segja, en ég óska aðeins eftir, að grein sé gerð fyrir tilgangi frv. og hvaða ástæður eru fyrir slíkri löggjöf.