31.03.1936
Neðri deild: 38. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (778)
80. mál, skotvopn, skotfæri o. fl.
*Pétur Ottesen:
Hæstv. forsrh. fór nú hér að útlista þetta mál, hver tilgangur væri með flutningi þessa frv. Hann vildi ekki beinlínis halda því fram, að það væri stríðshætta fyrir hendi hér á landi, þannig að ástæða væri til að grípa til slíkra ráða, sem í frv. felast, þess vegna, heldur virtist mér hann vilja með frv. fyrirbyggja það, að börn og unglingar gætu fengið keypt skotvopn og haft með höndum. Og hæstv. forsrh. sagði, að með frv. ætli að koma í veg fyrir, að misindismenn ýmsir, sem sýndu lögreglunni eða l. landsins mótþróa og yfirtroðslur og væru kannske líklegir til þess að vilja beita skotvopnum og öðru, sem í frv. getur, gagnvart lögreglunni eða öðrum slíkum mönnum, sem hafa eigu hendur í hári óbótamanna í þjóðfélaginu, — að slíkir misindismenn gætu beitt þessum vopnum gegn réttvísinni.
Hvað börnum og unglingum viðvíkur, þá virðist mér að það mundi vera hægt að ná þessum tilgangi með því t. d. að banna að selja börnum og unglingum skotvopn. En hvað því viðvíkur að girða fyrir, að þessir misindismenn þjóðfélagsins geti náð í slík tæki, þá virðist mér, að framkvæmd þess mundi verðu erfið, á meðan menn eiga samtímis aðgang að því í þjóðfélaginu að fá slík tæki keypt. Því að þó að það tækist að setja þann stimpil á einstaka menn, að þeir gætu ekki náð í slík tæki sjálfir beinlínis, þá mundu samt sem áður vera opnar leiðir fyrir þá til undanbragð, til að ná í þessi tæki á annan hátt en þann að kaupa þau sjálfir í orði kveðnu, nefnilega með því að njóta aðstoðar annara. Ég tel því mjög vafasamt, að þessum tilgangi verði náð með ákvæðum frv.
Þá kemur það ekki skýrt fram í þessu frv., hvaða skilríki menn eiga að sýna, til þess að þeir geti fengið keypt slík vopn sem þessi, því að það yrðu þá sennilega að vera til staðar einhver vottorð um, að þeir mættu hafa slík vopn með höndum, eða um, að þeir mættu afla sér þeirra, og að þeir, sem eiga þessi tæki, mættu afla sér nýrra, þegar þau eldri ganga úr sér.
Hv. þm. Ak. minntist á það nýskeð í sambandi við þetta mál, að engin ákvæði væru í frv. um það, hvort ríkisvaldið væri skaðabótaskylt til þeirra manna, sem nú eiga skotvopn, bæði byssur og annað þ. h., en hinsvegar teldust ekki hafa rétt til þess að hafa þau með höndum framvegis. Og ef frv. þetta á að verða að l. þá þarf hér að koma til viðbótar skýrt ákvæði um þetta. Ég býst við, að það mundi þykja harðleikið, ef þessi áhöld væru tekin af mönnum, sem þeir hafa aflað sér með löglegum hætti, án þess að bætur kæmu fyrir.
Um hitt atriðið, sem hæstv. forsrh. vildi gera lítið úr, hinni auknu skýrslugerð vegna ákvæða þessa frv., er það að segja, að hún er nú eitt af þeim viðbótarstörfum, sem hreppstjórum eru lögð á herðar, og þá lögreglustjórum í kaupstöðum. Ef ákvæðin um þær skýrslugerðir eiga að vera annað en pappírsgagn eitt, þá hygg ég, eftir því, sem það gengur yfirleitt um söfnun skýrslna í sveitum landsins, að það muni þurfa að hafa nokkra eftirgangssemi og eftirgrennslanir í þessu efni um það, hvernig er ástatt um byssueign manna á meðal. Þar af leiðandi geng ég þess ekki dulinn, að þetta mundi hafa viðbótar fyrirhöfn í för með sér. Eins og kunnugt er, þá er alltaf verið að bæta við nýjum og nýjum skýrslusöfnunum sem hreppstjórar og aðrir eiga að inna af höndum, mjög mismunandi þörfum. Og hér er þá um eina slíka viðbótarskýrslugerð að ræða, sem alls ekki þarf að gera neitt lítið úr fyrirhöfn við, ef þessi l. eiga ekki að verða pappírsgagn eitt. Ég er því hræddur um, að þetta verði einbert kák, bara komið einhverju nafni á þessa skýrslugerð, því að ég býst ekki við, að starfið byggist upp á því að það verði talið mjög þjóðnauðsynlegt að hafa þessar skýrslur, því að í raun og sannleika munu menn almennt ekki hálfa komið auga á nauðsyn þess að setja löggjöf til þess að hamla því, að menn geti fengið sér fjárbyssur eða fuglabyssur eftir því, sem þörfin krefur. Ég held því, að engin minnsta þörf sé fyrir að fara að setja reglugerð um þessa hluti hér, því að hér gilda engar herreglur, sem betur fer. Að fara að taka þetta upp hér, er þá helzt til þess að fara að apa eftir því, sem aðrar þjóðir, sem hafa heraga, gera í þessum efnum.