16.04.1936
Sameinað þing: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (78)

1. mál, fjárlög 1937

*Guðbrandur Ísberg:

Ég hefi leyft mér að bera fram nokkrar brtt. við fjárl.frv., eins og sjá má á þskj. 329.

Fyrsta brtt. er við 16. gr. frv., um að Skógræktarfélagi Eyfirðinga verði veittur 3 þús. kr. sterkur. Skógræktarfélag þetta hefir starfað í nokkur ár og ráðizt í ýmsar framkvæmdir, sem á margan hátt mega teljast merkilegar. Til þessa hefir félag þetta ekki notið neins opinbers styrks, en nú hefir það hugsað sér að færast í fang framkvæmdir, sem hafa mikinn kostnað í för með sér, en það er að koma upp stórri skógargirðingu til þess að friða stórt landssvæði fyrir ágangi búfjár. Þó að félagsmenn safni til þessa töluverðu fé með frjálsum samskotum o. fl. móti, þá munn þeir vart treysta sér til þess að koma þessu í framkvæmd nema með því að fá opinberan styrk að einhverju leyti. — Til þess að sýna hv. þm. fram á, að hér á hlut að máli félag, sem mikils má vænta af, vil ég geta þess, að það hefir gert merkilega tilraun með skógrækt á Þelamörk, þar sem menn vissu ekki til, að nokkur skógarhrísla væri til. Félagið girti þarna af dálítið svæði, svo að engin skepna kæmist þar inn, friðaði það algerlega fyrir áreitni manna og dýra, en það hefir haft þann árangur, að nú eru farnar að koma þarna upp birkihríslur, sem lifað hafa huldar í jarðveginum. Þetta er ekki aðeins merkilegt fyrir þennan stað, heldur getur það verið lærdómsríkt fyrir almenning. Þá hefir félag þetta einnig gert aðra merkilega tilraun, en hún er sú, að það hefir girt af gildrag, þar sem reyniviðarhrísla er búin að standa um áratugi, án þess að fleiri hríslur hafi vaxið þar upp. Með því að girða þarna dálítinn blett og friða nágrenni hríslunnar fyrir áreitni búfjárins, þá hefir komið í ljós, að nýjar hríslur eru þegar farnar að skjóta öngum sínum í kringum hina gömlu. Að þetta hefir ekki gerzt fyrr, er ekki sökum þess, að gamla hríslan hafi ekki sáð sér út fyrr, heldur sakir hins, að nýgræðingurinn hefir ekki fengið tækifæri til þess að dafna og þroskast fyrr en búið var að friða umhverfi gömlu hríslunnar. Að ég bendi á þetta hér, er til þess að sýna, að félagið er brautryðjandi um nýjungar á þessum sviðum og á því skilið styrk frá því opinbera. Nú er hugmynd félagsins sú, að taka stóran blett til friðunar, hinn svo nefnda Reynishól í Saurbæjarhreppi. Að vísu er þar eins og nú standa sakir dálítill vísir að skógi, en hríslurnar eru mjög dreifðar og því búin mikil bætta af ágangi búfjár og annara eyðandi afla, ef ekkert er að gert þeim til friðunar. En eins og ég þegar hefi tekið fram, þá er hér um svo mikið og dýrt verk að ræða, að félagið treystir sér ekki til þess af eigin rammleik. — Læt ég svo útrætt um þetta atriði, og vænti þess, að hv. fjvn. sjái sér fært að leggja með þessari litlu styrkbeiðni, og jafnframt vænti ég þess, að hv. þm. ljái þessu góða máli fylgi sitt.

Þá á ég enn brtt. á þessu sama þskj., ásamt hv. þm. A.-Húnv., þar sem við förum fram á, að veittar verði 3000 kr. til rafveitu Austur-Húnavatnssýslu, gegn jöfnu framlagi annarsstaðar að. Um þessa rafveitu er svo háttað, að þegar hún var fullgerð, kom það í ljós, að hún varð um það bil helmingi dýrari en hún hafði verið áætluð. Kostnaðurinn við byggingu hennar varð sem sé nær 220 þús. kr., í stað 110 þús., sem hún hafði verið áætluð. Þetta, að verk fari fram úr áætlun, er vitanlega ekkert nýtt. En í þessu sambandi vil ég benda á, að um ráðningu manns til þess að sjá um framkvæmd verksins var þegar í upphafi leitað til rafmagnseftirlits ríkisins. og það haft með í öllum ráðum. Að svona tókst til, að verkið varð helmingi dýrara en það hafði verið áætlað, er því fyrst og fremst á ábyrgð þessa aðilja. Rafstöð þessi, sem nú er aðeins fyrir Blönduóskauptún, er byggð með það fyrir augum að geta verið fyrir alla Austur-Húnavatnssýslu, og er því hægt að auka afl hennar um helming með tiltölulega litlum lagfæringum. Eins og nú standa sakir, getur stöðin ekki selt allt það rafmagn, sem hún framleiðir, en það mun því miður geta dregizt nokkuð, að því verði veitt út um sveitirnar. En þegar að því kemur, að það verði gert, verður það án efa gert með styrk frá hinn opinbera. Að standa undir kostnaðinum af fyrirtækinu, eins og hann er nú orðinn, þangað til, verður meira en erfitt fyrir hlutaðeigendur. Þeir geta það hreint og beint ekki. En með því, að þeir fengju styrk þann, sem hér er farið fram á, myndi þeim verða kleift að fleyta fyrirtækinu áfram um nokkur ár, eða þar til að það gæti farið að standa undir sér sjálft. Þar sem nú að vitanlegt er, að hið opinbera hefir jafnan hlaupið undir bagga, þegar vandræði hafa steðjað að, hvort heldur sem það hefir verið af völdum jarðskjálfta, vatnsflóða eða öðru, þá treysti ég því, að það geri það einnig hér, því að ég fæ ekki séð að það sé svo mikill eðlismunur á því, af hvaða sökum héruðin geta ekki risið undir þeim byrðum, sem á þeim hvíla. Þegar þeim er alveg um megn að greiða það, sem á þeim hvílir, eða það, sem þau verða að greiða, hvort sem það stafar af völdum náttúrunnar, eða öðru, þá verður hið opinbera að hlaupa undir bagga. Í þessu tilfelli hefir fátækt hérað orðið fyrir því, að fyrirtæki, sem ekki var áætlað dýrara en það, að héraðið hefði getað staðið undir því, ef áætlunin hefði verið nærri lagi, hefir orðið 110 þús. kr. dýrara, en ráð var fyrir gert. Slíkt óhapp er sú blóðtaka fyrir héraðið, að alveg er óumflýjanlegt, að hið opinbera hlaupi undir bagga með því.

Þá á ég enn brtt. á þessu sama þskj. Hún er við 18. gr. Þar er farið framá, að Jóhanni Ragúels á Akureyri verði veittur 800 kr. styrkur, og til vara 600 kr. — Maður þessi hefir verið mjög sjóndapur í 20 ár, og er nú nálega blindur. Að minnsta kosti algerlega lesblindur, og því ófær að gegna almennum störfum. Að undanförnu hefir maður þessi haft ofan af fyrir sér með verzlun, en með verzlunarhöftum síðustu ára hefir dregið svo úr möguleikum fyrir hann að hafa af fyrir sér með því móti, að nú getur hann það ekki lengur.

Menn munu nú segja, að svo sé um fleiri Og er það rétt, en ég vil vekja athygli á því, að það er sérstakt um þennan mann. Hann er blindur og ekki hægt að segja honum að hverfa að öðru starfi. Alþ. hefir þegar veitt öðrum blindum manni styrk, og ég trúi ekki öðru en hv. þm. líti svo á, að Alþ. beri að sjá svo um að þessum manni, sem hefir verið sviptur atvinnu sinni með aðgerðum hins opinbera (án tillits til þess, hver hann er), verði rétt hjálparhönd. — Ég vil skjóta þessari litlu kröfu undir dóm hins háa Alþingis og vona að henni verði vel tekið.

Hv. fjvn. hefir ekki enn tekið afstöðu um ríkisábyrgðir, og ég hefi ekki borið fram till. um það efni. En ég vil beina því til hv. fjvn., að það liggur fyrir beiðni frá bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar um ríkisábyrgð fyrir láni til rafstöðvar, sem í ráði er að reisa við Goðafoss. Ég vildi minna á þetta, sem og á umbeðna ábyrgð fyrir tunnugerð á Akureyri.

Þá vil ég benda hv. fjvn. á prentvillu — eða misskilning — sem er hér í fjárlagafrv. og sem þarf að leiðrétta. Það stendur hér í 16. gr. 16,c „til Guðmundar Andréssonar til að stunda dýralækningar í Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu“. Á síðasta þingi voru orðin og AusturHúnavatnssýslu réttilega felld aftan af og þau eiga ekki að vera.

Á 22. gr. er ríkisstjórninni heimilað að greiða á árinu 1937 dýrtíðaruppbót á laun embættismanna eftir sömu reglum eins og á árinu 1936. Þ. e. a. s. eftir sömu reglum eins og á síðasta ári. Í sambandi við þetta vil ég benda á, að þær reglur, sem eru hafðar við greiðslu dýrtíðaruppbótar á þessu ári, eru ákaflega einkennilegar og þeim þyrfti að breyta.

Sá maður, sem hefir 3900 krónur í laun, fær í uppbót 973 krónur eða samtals 4875 krónur, en sá maður, sem hefir það erfiðara starf — eða starf, sem krefst meiri þekkingar, að honum eru ætluð 300 krónum hærri laun eða 4200 krónur. Hann fær aðeins 546 kr. í uppbót og verða því laun hans samtals 4746 kr., eða 129 kr. lægri heldur en hins, sem hefir aðeins 3900 kr. Þetta þarf að leiðrétta. Sá möguleiki má ekki vera fyrir hendi, að sá maður, sem er á lægri launum vegna þess að starf hans er ekki talið eins erfitt eða að það krefst minni þekkingar, geti orðið á hærri launum heldur en sá, sem ráðinn er á hærri laun þegar búið er að veita báðum dýrtíðaruppbót.

Þá er að lokum eitt atriði. Hv. fjvn. hefir tekið hér upp ýmsa liði til listamanna og skálda og er þar með talinn Bjarni Björnsson leikari. Mér kemur þetta ókunnuglega fyrir sjónir. Ég veit ekki til þess, að þessi maður sé skáld og ekki heldur að hann sé listamaður í þeirri venjulegu merkingu þess orðs. Ég hefi engin rök heyrt færð fram fyrir þessari till. og hefði ég óskað að fá frekari grg. fyrir henni.