04.04.1936
Efri deild: 42. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í B-deild Alþingistíðinda. (803)
93. mál, Menningarsjóður
Magnús Guðmundsson:
Ef ég skil þetta frv. rétt, þá gengur það út á það, að til vísinda og lista skuli renna það fé, sem kemur inn vegna brota á áfengislögunum, þ. e. a. s. sektir fyrir brugg og smygl, en ef þetta fé verður ekki svo mikið, að nemi 50 þús. kr. á ári, þá skuli það, sem á vantar, greiðast úr ríkissjóði.
Ég verð að segja, að ég hefi alltaf kunnað því illa að láta listir og vísindi lifa á lögbrotum, eins og smyglun og bruggi, eða þá óhófsdrykkju. Mér finnst sjálfsagt, þegar veitt er fé til einhvers, þá sé það veitt úr ríkissjóði, en síðan hirði ríkissjóður allar sínar tekjur og greiði sín ákveðnu gjöld beint úr sameiginlegum sjóði. Ég vil því spyrja hv. þm. S.-Þ., hvort hann geti ekki gengið inn á það, að í lögunum skuli standa, að verja beri árlega til vísinda og lista 50 þús. kr., en það þýðir, að þá er skylt að taka þá upphæð árlega í fjárl. Er þetta ólíkt viðkunnanlegri leið. En hitt er óviðkunnanlegt, að láta líf vísinda og lista í landinu vera undir því komið, hvort menn í stórum eða smáum stíl brjóta landslög eða ekki. — Mér finnst líka óþarft að gefa áfengislagabrjótum þann móralska styrk, sem í því liggur, að jafnhliða því, sem þeir fótumtroða lögin, þá séu þeir að styrkja vísindi og listir.
Ég tók eftir því, að hv. þm. sagði, að þetta væri ekkert einsdæmi hér, heldur ætti það sér líka stað í öðrum löndum, og minntist í því sambandi á Carlsbergssjóðinn danska. En þar er um allt annað að ræða; það er félag einstakra manna, sem stofnaði þann sjóð. Að vísu hefir félagið grætt á ölframleiðslu, en á löglegan hátt. Þetta er því ósambærilegt við það, sem hér er um að ræða, sem sé sektarfé, sem greitt er fyrir að brjóta landslög.
Ég skal ekki í þetta skipti fara inn á að ræða þann gjaldauka, sem af þessu leiðir fyrir ríkissjóð, en það kemur fram hér sem oftar, að hv. stjórnarflokkar eru alveg óragir í því að binda ríkissjóði varanlegar byrðar, og þó munu þeir eiga fullerfitt með að rogast með þær byrðar, sem honum þegar eru bundnar. Hér er að sönnu ekki um stóra upphæð að ræða, en þó er það svo, að kornið fyllir mælinn, og ef haldið er áfram að leggja á meiri og minni útgjaldabyrðar frá ári til árs, þá kafnar allt að síðustu undir fargi því, sem þannig leggst á atvinnuvegi landsins.
Það, sem ég vildi aðallega fá að vita hjá hv. þm. S.-Þ., er það, hvernig hann tæki í það, að fyrirskipað væri í l. að leggja árlega 50 þús. kr. til menningarsjóðs, í stað þess fyrirkomulags, sem stungið er upp á í frv. Ég hefi frá upphafi litið svo á, að þessi þrí- eða fjórskipta stj. sé of marghöfðuð fyrir svo litla stofnun sem þessa. Vil ég því höggva af nokkur af höfðunum, sem þarna reka upp kollinn.