16.04.1936
Sameinað þing: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

1. mál, fjárlög 1937

*Hannes Jónsson:

Ég á nokkrar brtt. á þskj. 329. Það er ekki heppilegt að tala fyrir brtt. mína, þar sem sú regla er orðin mjög rík, að þm. eru lítið bundnir við þessar umræður af hverju sem það stafar; ef til vill er gert ráð fyrir því, að ákvörðun um afgreiðslu ýmissa brtt. verði ekki tekin undir umræðum heldur á flokksfundi. Ég mun þó segja nokkur orð um brtt. mínar vegna þess að ég sé, að menn eru hér úr öllum flokkum þingsins. Ég kem þá fyrst að brtt. IV, sem fer fram á 3000 kr. fjárframlag til Vesturhópsvegar. Eins og hv. þm. muna, var á síðasta þingi tekin upp sama upphæð til vegalagningar á þessu svæði. Ég þarf sennilega ekki að rifja upp sögu þessa vegar. Fyrir nokkrum árum var vegurinn frá Vatnshorni að Vesturhópsvatni tekinn í tölu þjóðvega, en undir eins og búið var að því, var vegalagningunni hætt, en hreppsbúar héldu henni sjálfir áfram lengra út í Vesturhópið, og er sú vegalengd um 30 km. Geta allir séð, þvílíkur kostnaður það er fyrir mjög fátækt sveitarfélag að leggja slíka vegalagningu á sig. Ég vil minna hv. þm. á það, að nú í ár er aðeins gert ráð fyrir 3000kr. til vega í V.-Húnavatnssýslu, en í fyrra voru veittar 9000 kr. í þessu skyni. Framlagið til þjóðvega í sýslunni er því lækkað um ? frá því sem er í yfirstandandi fjárl. Ég vil líka minna á það, að samkv. frv. um frestun nokkurra laga, sem hér liggur fyrir, og gerir ráð fyrir að fella niður fjárframlag til sýsluvegasjóða að verulegu leyti, mun verða unnið fyrir um 6000 kr. minna í þessari sýslu af sýsluvegum en verið hefir. Það ætti öllum að vera ljóst, hversu slæmt þetta er fyrir héraðsmenn alla og ekki sízt þá, sem mjög hafa stundað vegagerð á sumrin sem atvinnu og verða nú að sjálfsögðu annaðhvort atvinnulausir eða neyðast til að leita úr héraðinu í atvinnuleit, og er vafasamt að þeir fái vinnu, en et þeir fengju hana, þá gengju þeir ef til vill á rétt annara til vinnunnar.

Það er vitanlega hörmulegt til þess að vita, að stórfé skuli liggja í vegi, sem ekki er hægt að nota fyrir þá héraðsmenn, sem þar búa. Og sérstaklega er leitt til þess að vita, þegar þörfin á bættum vegi er eins mikil og þarna er. Menn geta sagt sér það sjálfir, að þegar búið er að leggja á sig þann þunga skatt, sem l. um sýslusjóðagjald segja fyrir um, og búið að fara þar upp í hámark, og svo skuli vera lagt á sig aukagjald sum árin, að þá sé þörfin brýn fyrir þennan veg. Þar sem búið er að klífa þrítugan hamarinn í þessu, þá er það ekki forsjárlegt af Alþ. að draga að sér höndina um stuðning við framkvæmd þessarar vegalagningar. Ég vænti því, að þingið nú eins og í fyrra líti með velvilja á þessa framkvæmd og veiti þessa litlu upphæð, sem ekki veldur ríkissjóði neinum verulegum örðugleikum, þar sem aðeins er um 3000 kr. að ræðu. Þörf héraðsmanna á framkvæmdinni og á atvinnu helzt í hendur, svo að það ætti að verða til þess, að þingið yrði fúsara til þess að veita þessa litlu upphæð.

Þá er brtt. viðvíkjandi 13. gr., undir rómv. 6 á þskj. 329. Brtt. er um það að hækka fjárveitingu til brúargerða úr 70 þús. kr. upp í 76 þús. kr. Fyrir þinginu hafa legið áskoranir, undirskrifaðar af fjölda íbúa í Þverárhreppi, þar sem þeir óska eftir fjárframlagi til tveggja brúa á þessum umtalaða vegi. Það er áætlað, að þessar brýr kosti um 6000 kr. Það er sama að segja um þessar brýr eins og veginn sjálfan, að þær eru nauðsynlegar til þess, að vegurinn geti komizt í full not og samband fáist milli þessara tveggja vegakafla, sýsluvegarins og þjóðvegarins. Nú hefi ég að vísu heyrt, eftir að ég bar fram þessa brtt., að fjvn. hafi ekki tekið þennan lið til eins rækilegrar athugunar og hún hefir í hyggju að gera, og ég hefi jafnvel heyrt, að hún muni ætla að skipta þessum 70 þús. kr. niður á ýmsa staði, og er þá ef til vill ástæða fyrir mig til þess að taka þessa till. aftur til 3. umr., ef n. vildi athuga það enn rækilega, hvort ekki er hægt að verða við óskum þessara manna um þetta litla fjárframlag til þessara brúagerða. Ég mun því draga það að gera frekari grein fyrir þessu, þangað til ég hefi heyrt hljóðið í hv. frsm. og fengið hjá honum vitneskju um það, hvort þetta verður tekið til athugunar eða ekki fyrir 3. umr.

Í sambandi við þessar brúargerðir þá vil ég láta þess getið, að það hefir verið í ráði, og ég veit ekki annað en það sé loforð frá ríkisstj. um að byggja brú yfir Vestdalsá í Miðfirði á yfirstandandi ári af því fé, sem á fjárl. er veiti til slíkra framkvæmda. Nú þætti mér fróðlegt að fá upplýsingar um, hvort þetta verður framkvæmt í sumar eða ekki, eða hvort svo illa tekst til, að þetta verði ekki framkvæmt í ár, sem ég hygg þó, að sé loforð fyrir um. En ef svo verður, þá verður að gera ráð fyrir þessu á næsta ári, en lengur má það ekki dragast. Ég kasta þessu hér fram, og vænti þess, að hv. frsm. gefi upplýsingar um þetta, því það hlýtur að liggja fyrir hjá hæstv. stj., hvað hún ætlast fyrir í þessu efni.

3. brtt. mín er við l. gr., og er hún á þskj. 329, undir rómv. 10, og er um sundlaugar og sundskýli. Brtt. mín fer í þá átt, að fyrir 5000 kr. komi 7500 kr. Fyrir þinginu hafa ekki legið, svo mér sé kunnugt, umsóknir um styrk til bygginga sundlauga nema frá Reykjum í Miðfirði, og má vel vera, að n. hafi af þeirri ástæðu ekki tekið neitt sérstaklega fram um það, hvernig hún ætlar að verða við þessari umsókn, sem lá fyrir frá þessum eina stað, vegna þess að þessi fjárveiting yrði nægileg til þeirrar sundlaugarbyggingar. Og ef ekki kemur annað fram frá hv. frsm., þá vil ég skoða það sem ákveðið loforð frá n., að þeim 5000kr., sem á fjárl. eru, eigi að verja fyrst og fremst til sundlaugarbyggingar á Reykjum í Miðfirði. En mér þótti samt öruggara að koma með brtt. við þennan lið, svo að hann hækki um 2500 kr., því að ég hygg, að á að minnsta kosti tveim öðrum stöðum hafi verið hreyfing í þá átt að koma upp slíkum sundlaugum, bæði á Sauðárkróki og uppi í Borgarfirði. Nú þykir mér nokkurnveginn séð fyrir þessu máli þannig, að ekki yrði í því algert strand, ef það yrðu þó ekki minna en 2000 kr. á hvern stað. En þess er náttúrlega ekki að vænta, að fjvn. hafi tekið upp viðbót við þessa fjárveitingu, ef henni hefir ekki verið kunnugt um, að frekar yrði aðhafzt um framkvæmdir en þessi eina umsókn gefur tilefni til að ætla. Þó hygg ég, að önnur þessara umsókna hafi legið fyrir hjá hæstv. ríkisstj., þó hún hafði ekki komið fyrir fjvn. Ég vænti þess, að hv. fjvn. taki þessari till. vel, því það verður ekki um það deilt, hversu brýn nauðsyn er á því að efla sundkunnáttu í landinu eftir því, sem föng eru á. Ég vil taka það fram um Reyki í Miðfirði, að þar stendur alveg sérstaklega á. Það er búið að koma þar upp myndarlegu barnaskólahúsi, sem ætlað er í framtíðinni að verða fyrir Miðfjörð allan. Það var gert ráð fyrir því í upphafi, að það yrði bæði fyrir Fremri- og Innri-Torfustaðahrepp. En jafnvel þó það yrði aðeins fyrir innri hreppinn, þá er þar um heimavistarskóla að ræða, þar sem sundkennsla gæti komið að mjög miklum notum. Það þarf varla að taka það fram, að þarna er um heitt vatn að ræða, og skilyrði til sundnáms hin beztu, og til sundiðkana mundi þessi staður vera sérstaklega vel fallinn, þar sem Miðfjarðará rennur þarna rétt hjá, og því hægt að hafa bæði heitt og kalt vatn. Það má líka taka það fram, að Hvammstangi er svo skammt frá, að börn og unglingar þaðan mundu geta notið sundnáms á Reykjum, þannig að enginn kostnaður yrði hjá þeim fram yfir það, sem er hjá þeim, sem á staðnum eru. Mér finnst, að þetta mæli mjög með fjárveitingu til sundlaugarbyggingar á þessum stað.

Ég vænti því þess, að þingið taki vel undir þessa málaleitun, og ég vænti svars frá fjvn. um það, hvort hún telur ekki rétt, að af því fé, sem á fjárl. er veitt í þessu skyni, þá verði fyrst og fremst veitt til sundlaugar á Reykjum í Miðfirði.

Ég skal svo fara örfáum orðum um brtt. á þessu sama þskj. undir rómv. 12, sem ég er meðflm. að með hv. 10. landsk., en það má vel vera að hv. 10. landsk. bæti þar nokkuð við.

Fyrsta till. er um Búnaðarfél. Íslands. Í fyrra var styrkurinn til þess lækkaður ofan í 180 þús. kr., en hann hafði áður verið 200 þús. kr. Mér finnst það varla forsvaranleg ráðstöfun að draga svo mjög úr því fjárframlagi til Búnaðarfélags Íslands, sem verið hefir, þar sem ekki er um meiri sparnað að ræða fyrir ríkissjóð en 20 þús. kr., og sérstaklega þegar á það er litið, að það er ætlazt til, að þetta skiptist milli búnaðarsambandanna, þá vænti ég, að þingið verði fúsara til þess að ganga inn á þessa hækkun. Það er vafalaust, að búnaðarsamböndin muni verða að taka á sig hækkuð útgjöld vegna ýmiskonar framkvæmda á næstu árum. Ég skal taka t. d. kartöfluræktina. Búnaðarsamböndin hafa gert nokkurt átak til þess að greiða götu þessa framfaramáls landsmanna með allskonar stuðningi í þessum efnum. Ég skal líka taka það fram, að hjá okkur er að rísa upp nýr og það ekki óverulegur þáttur í atvinnulífi landsmanna, þar sem er loðdýraræktin, og hygg ég, að sú verði raunin á, að búnaðarsamböndin verði að taka á sig nokkur aukin útgjöld vegna þeirrar starfsemi, og það er ekki illa farið, þó að svo verði. Ég vil benda á það til þess að sýna, að hér er um arðvænlegan atvinnuveg að ræða, að við gætum alið þann refastofn, sem gæfi af sér a. m. k. fjórfaldar til fimmfaldar tekjur á við það, sem við fengum fyrir það kjöt, sem við fluttum til Noregs síðastliðið ár og seldum þar fyrir lágt verð. Með þessu skapast markaður fyrir allskonar kjöf, sem til fellur innanlands og ekki getur orðið verzlunarvara hvorki hér eða erlendis. Af þessari starfsemi hafa þegar komið nokkur aukin útgjöld á búnaðarsamböndin. Þau hafa tekið þetta mál þegar að nokkru leyti á sínar herðar með því að styrkja þetta með ráðum og dáð. Þau verða því að láta starfsmenn sína inna verk af hendi, sem lengir starfstíma þeirra og eykur þar af leiðandi á launagreiðslur til þeirra.

Ég býst ekki við, að ég þurfi að hafa fleiri orð um þetta. Ég ætla líka, að hér muni vera um svo sjálfsagt mál að ræða, að ekki þurfi mikið um það að fjölyrða. Þegar eins örðuglega gengur fyrir landbúnaðinum eins og að undanförnu, þá má ekki láta undir höfuð leggjast að rétta fram svo lítinn stuðning sem þetta er, ef það getur orðið til þess að vekja til lífs nýja starfsþætti, sem geta orðið tekjumiklir.

Næsti liður brtt. er við 16. gr. 4, og er hann um það að hækka framlagið til sandgræðslu um 3000 kr., svo að fyrir 27000 kr. komi 30000 kr., og sú athugasemd fylgir, að þessar 3000 eigi að gangi til sandgræðslu á Meðallandi.

Sandgræðslan er sá þáttur ræktunarmálanna, sem er ekki hvað minnst virði, og ef þeim málum hefði verið sinnt fyrr en gert var, þá væri mörg sandauðnin á landinu orðin að grasigrónu landi, sem gæfi skilyrði til búreksturs og betri afkomu á þeim stöðum heldur en raun er á orðin.

Þá er 3. liður brtt., sem er við 16. gr. 7. c, og er hann um ræktunarsjóðinn. Þar er nýr liður tekinn upp, sem hefir oft verið áður á fjárl., en hefir verið felldur niður nú um sinn. En nú er þessi greiðsla tekin upp þarna á ný, því það getur varla svo til gengið til lengdar, að ræktunarsjóðurinn sé látinn vera svo gersamlega tæmdur að fé, sam hann er núna. Ég þarf ekki að fjölyrða um þennan lið, því ég veit, að mönnum er það ljóst, hve nauðsynlegt það er fyrir landbúnaðinn, að ræktunarsjóðurinn geti haldið áfram starfi sínu.

Þá er það síðasti liður þessarar brtt., en hann er um tilbúinn áburð, eða að hækka framlagið úr 28000 kr. upp í 43000 kr. Framlög ríkissjóðs frá 1929–1934 hafa að meðaltali verið rúmlega 75 þús. kr. Lögin um tilbúinn áburð voru fyrst sett á þinginu 1928, og áttu þau að gilda næstu þrjú árin, 1929–1931. Þau gáfu þá raun, að árið 1931 voru þau framlengd og áttu þá að gilda næstu þrjá ár eða til 1934 svo að segja óbreytt frá því, sem áður var. Á þessu tímabili var veittur styrkur til flutnings á áburðinum til landsins og á hafnir kringum landið eins og hann kostaði. 1934 voru svo þessi l. enn framlengd um þrjú ár, og gilda nú til 1937, en þar kemur sú takmörkun, að styrkurinn má ekki fara fram úr 20 kr. á hvert tonn. Ég geri ráð fyrir, að þessu hámarki verði ekki náð, þó áburðarstyrkurinn verði hækkaður upp í 43 þús. kr., því magnið mun oft hafa verið 3000 tonn eða a. m. k. töluvert á þriðja þús. tonn. Það verður ekki um það deilt, að það er brýn nauðsyn á því að hafa ræktun landsins í góðu lagi. Þó að höfuðtilgangur áburðarlaganna hafi í upphafi verið sá að efla nýræktina í landinu og styðja að aukinni ræktun, þá má segja, að sama ástæðan sé að nokkru leyti fyrir hendi enn þann dag í dag. Það hefir ekki borið á neinum afturkipp í aukinni ræktun landsins undanfarin ár, og það er ekki sýnilegt, að úr henni dragi á næstu árum að neinu verulegu leyti, nema hið opinbera dragi að sér höndina.

Við þetta má svo bæta því, að löggjafinn hefir á þinginu í vetur, og jafnvel í fyrra, ýtt undir það, að hafin verði aukin jarðrækt, og það að verulegu leyti. Nú getur engin aukin jarðrækt komið til greina, nema með því móti, að hún taki töluvert af því áburðarmagni, sem landið hefir haft yfir að ráða til jarðræktar undanfarin ár. Og það væri hreinn voði, ef þessar tilraunir til aukinnar jarðræktar misheppnuðust fyrir þær sakir, að bændur hefðu ekki nægilegan áhuga, og gæfu því verri raun heldur en ástæða væri til, ef þau skilyrði væru fyrir hendi, sem nauðsynleg eru til þess, að góður árangur fáist. Það er því ástæða til þess að draga ekki að sér höndina í þessu efni, heldur ætti að auka fjárveitingu í þessu skyni. Við munum þó ekki fara lengra í þessu efni en að gera ráð fyrir, að hámarkið samkv. l. 1934 náist með rúmlega 2000 tonnum innfluttum af útlendum áburði, og er það vitanlegt, að innflutningurinn verður að vera meiri, ef ekki á að fara í órækt sú grasrækt, sem orðin er í landinu, og ef nokkur aukning á að verða í jarðræktinni.

Ég ætla svo ekki að fjölyrða um þetta frekar, en ég hefi þegar gert. Ég vænti þess, að það verði litið á þetta með velvilja, því að hér er ekki farið óhóflega í sakirnar. Hér er um smáupphæð að ræða, sem getur örvað til þeirra framkvæmda, sem ætlazt hefir verið til með áður settri löggjöf, og nauðsynleg er fyrir þjóðfélagið í heild, svo að betri afkoma geti orðið í búrekstrinum, og þá jafnframt í þjóðarbúskapnum í heild.