06.04.1936
Efri deild: 43. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í B-deild Alþingistíðinda. (850)

88. mál, vegalög

*Þorsteinn Þorsteinsson:

Það var dálítil skekkja í ræðu hv. þm. S.-Þ., sem ég vil leyfa mér að leiðrétta. Hann sagði, að fjvn. hefði á síðasta þingi öll verið sammála um að lækka úr hámarki framlag ríkissjóðs til sýsluvega. En þetta er ekki rétt að því er mig snertir; ég greiddi atkv. á móti því í n., og þegar fór fram atkvgr. um þetta í Sþ., þá greiddi ég einnig atkv. á móti því. Ég áleit það ekki rétt að lækka fjárveitinguna úr ríkissjóði til sýsluveganna. Mér fannst, að hún ætti að haldast eins og hún áður var og það er mikil hjálp að því í atvinnuleysi og erfiðleikum manna að geta fengið þannig fé fyrir starfa sinn, og fá þann helminginn, sem ríkissjóður á að greiða, strax borgaðan í peningum, og með þeim hlutanum, sem sýslusjóður á að borga, greiða þeir svo manntalsbókargjöld og önnur opinber gjöld.

Þessum orðum hv. þm. S.-Þ. vildi ég ekki láta ómótmælt.

Ég ætla ekki að lengja umr. um þetta mál nú að þessu sinni, en það getur verið, að ég minnist nokkru meira á það við 3. umr. En ég vil taka það fram, að ég sakna þess mjög, að ekki liggja hér fyrir till. vegamálastjóra um veginn til Krýsuvíkur, og vildi ég vita, hvort þeirra er ekki von. (JJ: Hann hefir lofað þeim). Ég á erfitt með að greiða atkv. um þetta mái fyrr en fyrir liggja skýrslur og skilagrein um þann veg. Ég fyrir mitt leyti legg mikið upp úr því, sem vegamálastjóri segir um vegi, því hann er þeim málum kunnugastur allra manna á landinu, og mér þykir óþægilegt að greiða atkv. um þennan lið áður en ég sé skýrslu hans.