16.04.1936
Sameinað þing: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

1. mál, fjárlög 1937

*Jakob Möller:

Mér finnst það vera ljóst af ræðu hæstv. fjmrh., að hann væri sér þess fyllilega meðvitandi, að það væri í rauninni réttmætt og ætti við full rök að styðjast, sem við sjálfstæðismenn í fjvn. höldum fram, að óhætt mundi vera að fella niður þessa tvo tekjuliði, sem við höfum farið fram á, að verði felldir niður, vegna þess að bæði mundu aðrir tekjuliðir fjárhagsáætlunarinnar gefa það meiri tekjur en áætlað er, og einnig mætti skera niður útgjöld eða fresta þeim, svo að þetta samanlagt mundi hrökkva fyrir þessum tekjumissi, sem af niðurfellingu þessara tveggja tekjuliða stafaði. Hæstv. ráðh. viðurkenndi, að áætlun ýmissa tekjuliða væri svo lág, að það mundi tvímælalaust vera óhætt að hækka tekjuáætlunina sem svaraði þeim hækkunum, sem gerðar kynnu að verða á gjaldaliðum fjárl. við þessa umr. og þá 3. Nú veit að vísu enginn, hversu miklar þær hækkanir kunna að verða. En gera má e. t. v. ráð fyrir að hæstv. ráðh. muni geta ráðið nokkru um að þær verði ekki allt of miklar. Ég vil ekki nota mér af þeirri óvarkárni, sem liggur í þessari umsögn hæstv. ráðh. um, að það muni vera óhætt að hækka tekjuáætlunina nokkuð takmarkalaust, þar sem hann hefir enn engan úttalaðan fyrirvara um það, hvað gjöldin megi hækka mikið við þessa og 3. umr.

En viðvíkjandi því, sem hann stiklaði á þessum tekjuliðum, sem ég hefi vakið athygli á, hve miklu lægra eru áætlaðir heldur en tekjur hafa orðið af þeim á síðastl. ári, og viðvíkjandi þeim fullyrðingum, að þessir tekjuliðir muni gefa minna af sér 1937 heldur en þeir gerðu árið 1935, þá hefi ég það að athuga, að þetta tal er í rauninni náttúrlega alveg út í bláinn. með því að hæstv. ráðh. veit ekkert um það, hverju fram kann að vinda. Hann talaði t. d. um tekjur af áfengisverzluninni og áfengistollinn og sagði, að á þessum mánuðum, sem liðnir eru af árinu 1936, hefðu þessar tekjur orðið miklu minni en á sama tíma 1935. Við þetta er bara það að athuga, að við erum ekki að tala um árið 1936, heldur 1937, og það er kunnugt, að það er einmitt talsverður mismunur á neyzlu áfengis frá, ári til árs, eins og á við yfirleitt um allskonar vörur. Og í raun og veru mætti alveg eins álykta svo, að því minna sem drukkið væri á árinn 1936 af áfengi, því meiri yrði neyzla þess á árinu 1937 (Rödd af þingbekkjum: Þá yrðu menn orðnir þyrstir), því að ef mjög mikið verður skorið niður á þessu ári, tæmast allar birgðir, og verður þá óhjákvæmilega að auka innflutninginn aftur stórlega.

Viðvíkjandi því sem hann sagði í sambandi við niðurskurð á innflutningi áfengis, sérstaklega dýrari tegundunum, vegna gjaldeyrisskorts, má benda á það, að líkur eru til, að sá niðurskurður geti orðið hagur fyrir ríkissjóð, því að álagning á ódýrari tegundirnar er miklu meiri, svo að ef meira yrði notað af þeim, yrði gróði ríkissjóðs meiri, enda þótt minna yrði flutt inn af dýrari tegundunum.

Um annað af því, sem hæstv. ráðh. stiklaði á, er það að segja, að það var svo óákveðið, að vart var hægt að festa þar hendur á. Áætlunina um kaffi- og sykurtollinn taldi hann ófært að hækka af því, að það yrði hvort sem væri að klípa af innflutningnum. Hæstv. ráðh. bætti því við, að ekkert útlit væri fyrir, að vörutollurinn yrði eins hár 1936 sem 1935. Má segja, að þar sé allt út í bláinn.

Ég vil henda á, að ég tók til samanburðar árið 1936, af því að ég vildi ekki vera ósanngjarn eða gera ógætilegri ágizkanir um tekjur 1937 en rétt væri. Hinsvegar yrði munurinn enn meiri, ef borið væri saman við árið 1934. Mér virðist tóbakstollurinn hafa orðið l00 þús. kr. hærri og vörutollurinn eyða í hndr. — Þetta bendir til þess, að innflutningurinn hafi orðið minni 1935 en 1934, og hefir það að vísu verið svo. En af því leiðir væntanlega, að 1937 hlyti innflutningurinn að aukast aftur mjög mikið, sérstaklega vegna þess, hve mikið verður skorið niður á yfirstandandi ári.

Ég vil svo beina nokkrum orðum til hæstv. ráðh. út af því, sem hann sagði í niðurlagi ræðu sinnar, að vísu í sambandi við annað atriði. Hann sagði að eins og nú væri ástatt yrðu einstaklingarnir að standast greiðslur ein, og frekast væri unnt, erfiðleikarnir væru svo miklir. Ég staðhæfi nú, að erfiðleikarnir séu hvergi meiri en hjá atvinnurekstrinum. Allur atvinnurekstur er nú svo staddur, að álitamál er, hvort hægt er að halda honum gangandi. Ég sé ekki, hvar meiri þörf er að hlaupa undir bagga en með atvinnurekstri, sem svo er komið fyrir, að líkur eru til, að hann verði að stöðvast, ef ekki verður af honum létt einhverju af þeim kvöðum, sem á honum hvíla. En hér er ekki farið fram á annað en að létt verði af atvinnurekstrinum þeim álögum, sem ósanngjarnastar eru.

Ég þarf ekki að láta hæstv. ráðh. segja mér það, að hækkunin á tekjuáætlun fjárlfrv. þyrfti ekki aðeins að jafna upp þann l400 þús. kr. halla, sem leiða hlyti af till. sjálfstæðismanna í fjvn. Ég gerði grein fyrir þessu í fyrstu ræðu minni. En ég bætti því við, að ef slík hækkun nægði ekki til að tryggja afkomu ríkissjóðs, yrði að athuga, að hve miklu leyti hægt væri að lækka útgjöldin. Inn á það fór hæstv. ráðh. ekki, en ég vona, að hann taki það til alvarlegrar íhugunar, hvort ekki sé hægt að leggja inn á þessa braut, sem við höfum bent á.

Ég vil svo beina þeirri ósk til hæstv. forseta að þegar til atkvgr. kemur, þá verði þeir tveir liðir 2. gr. frv., sem við leggjum til, að felldir verði niður, bornir upp sérstaklega.